Bætt þjónusta Sýslumanns
Unnið er að því að bæta þjónustu nýs embættis Sýslumanns.
Meðal verkefna sem unnið er að:
1. Eitt þjónustuver fyrir sameinað embætti: Eitt þjónustuver og þjónustukerfi sem samræmir þjónustu í síma, netspjalli og öðrum þjónusturásum.
2. Gervigreind í ferlum og þjónustu.
3. Rafræn auðkenning í samskiptum við notendur: Rafræn auðkenning í netspjalli og við afhendingu upplýsinga til að tryggja með öruggum hætti hver viðtakandi upplýsinganna er.
4. Aukin forvirkni og sjálfvirkni í umsóknarferlum.
5. Sameiginleg fræðsla og nýliðaþjálfun fyrir nýtt embætti: Fræðslukerfi sem heldur utan um sameiginlega fræðslu og nýliðaþjálfun. Starfsfólk virkjað í þróun þjónustu og verklags.
Ábyrgð: Sýslumaður.
Staða: Hafið
Markmið: Betri þjónusta
Ráðuneyti: dómsmálaráðuneytið