Hoppa yfir valmynd

Umferðarlög

Meginmarkmið umferðarlaga er að vernda líf og heilsu vegfarenda með auknu umferðaröryggi þar sem jafnræðis er gætt milli vegfarenda, óháð samgöngumáta, og tillit tekið til umhverfissjónarmiða við skipulagningu umferðar.

Tvær stofnanir á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hafa hlutverkum að gegna við framkvæmd umferðarlaga, Samgöngustofa og Vegagerðin. Þá koma ýmsir fleiri að framkvæmd laganna, s.s. lögregla, sýslumenn, sveitarfélög og ökukennarar.

Umferðaröryggisáætlun 

Í umferðaröryggisáætlun er mörkuð stefna í umferðaröryggismálum á Íslandi. Framkvæmd áætlunarinnar er á forræði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis en ábyrgð verkefna liggur hjá ráðuneytinu ásamt Vegagerðinni, Samgöngustofu og ríkislögreglustjóra. Allar aðgerðir lúta að því að hámarka öryggi, vernda mannslíf og standa jafnfætis þeim ríkjum er fremst standa í öryggismálum.

Sjá nánar hér:

Samgöngustofa

Samgöngustofa fer með stjórnsýslu samgöngumála samkvæmt lögum nr. 119/2012 auk þess sem stofnunin annast þau verkefni sem henni eru falin með öðrum lögum. Á vef Samgöngustofu má m.a. finna skýrslur um umferðarslys, fræðsluefni, ýmsar upplýsingar og tölfræði sem tengjast umferðarmálum, upplýsingar um ökunám og svokallað mitt svæði sem býður upp á yfirsýn yfir ökutæki í eigu og umráði innskráðs notanda. Þar er hægt að framkvæma eigendaskipti, panta skráningarskírteini o.fl. Samgöngustofa sinnir m.a. skráningu ökutækja í ökutækjaskrá, skráningu umferðarslysa, setur námskrár fyrir ökunám og hefur eftirlit með ökukennslu, veitir leyfi til skoðunarstöðva sem annast skoðun ökutækja auk þess að hafa eftirlit með starfsemi þeirra o.fl.

Vegagerðin

Vegagerðin hefur samkvæmt lögum um stofnunina nr. 120/2012, það hlutverk að byggja upp, viðhalda og reka samgöngukerfi ríkisins auk þess að annast þau verkefni sem henni eru falin með öðrum lögum. Stofnunin ákveður t.d. hvaða þjóðvegir utan þéttbýlis skuli teljast aðalbrautir þar sem umferð hefur forgang, ákveður hraðamörk á þjóðvegum utan þéttbýlis og sér um að umferðarmerki til stjórnunar á umferð eða leiðbeiningar fyrir umferð verði sett á eða við þjóðvegi utan þéttbýlis.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum