Haga-samstarfið
Norræn samvinna á sviði almannaöryggis hefur undanfarin ár grundvallast á svokölluðu Haga-samstarfi. Árlega er haldinn fundur norrænna ráðherra sem fara með málefni almannavarna þar sem farið er yfir stöðuna og stefna til framtíðar mörkuð eða áréttuð. Hluti þessa samstarfs er einnig beint samstarf á milli norrænna stofnana sem starfa á svipuðum sviðum almannavarna.
Hvert ríki leiðir samvinnuna í eitt ár og skipt er um forystu í samstarfinu á þessum ráðherrafundum.