Niðurstöður frárennslismælinga
Um mælingarnar í fráveitu
Hvað er verið að mæla?
Í þessu mælaborði er að finna upplýsingar um magn ákveðinna lyfja og vímuefna sem greinast í fráveitu. Mælingarnar gefa vísbendingu um neyslu vímuefna í samfélaginu þar sem þessi efni eða niðurbrotsefni þeirra skila sér í fráveituvatni þegar þau fara út úr líkama fólks.
Takmarkanir mælinga
Mælingarnar geta gefið mikilvægar vísbendingar um almenna neyslu á vímuefnum og þróun hennar. Hins vegar þarf að hafa í huga að þessar niðurstöður sýna sveiflur og strauma í neyslu en endurspegla ekki nákvæman fjölda einstaklinga sem nota efni eða hversu mikið hvert og eitt notast. Sum efni kunna að vera til staðar í mjög lágum styrk eða í notkun af smáum hópi innan samfélagsins. Þau efni eru líkleg til að vera undir greiningarmörkum aðferðarinnar. Efni sem mælist ekki yfir greiningarmörkum er ekki sýnt sérstaklega í töflum eða gröfum.
Hvernig er gögnum safnað?
Sýni eru tekin úr fráveitu yfir sjö daga samfellt tímabil einu sinni um miðjan mánuð. Sýnaúrvinnsla og greining fer fram á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands.
Hvenær hófust mælingar?
Mælingar hófust á mismunandi tímum fyrir hvert efni:
- Ópíóíðar (oxycodone, tramadol, morphine, codeine, fentanyl): Söfnun hófst um áramótin 2023–2024.
- Ketamín: Söfnun hófst september 2024.
- 4-CMC: Söfnun hófst janúar 2025.
- Fentanyl: Það hefur ekki mælst yfir greiningarmörkum í sýnum og því eru engar tölur um það birtar.