Hoppa yfir valmynd

Réttarvörslugátt

Réttarvörslugátt er samheiti yfir verkefni sem miða að því að gera réttarvörslukerfið stafrænt.

Meginmarkmið verkefnisins eru:

  • Nútímaleg og notendamiðuð þjónusta sem mætir þörfum þolenda, sakborninga og annarra málsaðila
  • Skilvirkir og öryggir þjónustuferlar á forsendum viðskiptavina þar sem upplýsingar um ferla og stöðu mála eru aðgengilegar á hverjum tíma
  • Tækni, vinnulag og lagaumhverfi endurskilgreint til að útrýma sóun og hámarka nýtingu auðlinda

Leiðarljós verkefnisins eru aðgangur - öryggi - skilvirkni

Helstu áherslur eru:

  • Gögn verði aðgengileg rafrænt, þvert á stofnanir
  • Ferlar verði endurskoðaðir við vinnslu gagna með tilliti til nýrrar tækni og lögum breytt til samræmis
  • Bætt verði yfirsýn yfir réttarvörslukerfið í heild
  • Aðgangur verði með öruggum hætti fyrir ytri aðila, t.d. lögmenn og málsaðila

Væntanlegur ávinningur:

  • Styttri málsmeðferðartími
  • Tímasparnaður í flutningi nauðsynlegra gagna milli aðila - Gögn flæða á milli, ekki fólk
  • Færri handtö0k, minni pappírsnotkun, færri póstsendingar, minni ábyrgðarpóstur
  • Skilvirkni, ekki verið að slá inn gögn aftur, minni villuhætta
  • Aukin gæði gagna, skilgreind ábyrgð
  • Meira öryggi, trúnaður, heilindi, aðgengi og rekjanleiki

Kynning á verkefninu á Ský-fundi 4. júní 2019.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum