Hoppa yfir valmynd

Byggðaáætlun 2018-2024

Þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 var lögð fram á Alþingi og samþykkt þann 11. júní 2018 með öllum greiddum atkvæðum. Áætlunin lýsir stefnu ríkisins í byggðamálum og er ætlað að stuðla að jákvæðri þróun byggða og að efla samkeppnishæfi þeirra sem og landsins alls. Meginmarkmið byggðaáætlunarinnar er að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Margvíslegar áherslur á sviði byggðamála eru tíundaðar í áætluninni sem ýmist leiða til beinna aðgerða eða til samþættingar við aðgerðir í öðrum opinberum áætlunum til að framangeindum markmiðum verði náð. Áætlunin inniheldur alls 54 aðgerðir og verða 30 þeirra fjármagnaðar af byggðalið fjárlaga, samtals að upphæð 3,5 milljarðar á tímabilinu. Fyrir liggur að kostnaður við áætlunina verður umtalsvert meiri en það fjármagn sem kemur af byggðalið fjárlaga en með samþættingu við aðrar opinberar áætlanir verður hægt að fjármagna aðgerðir, ýmist með fjárheimild viðkomandi málaflokks eingöngu eða með fjármögnun málaflokksins og byggðaliðar. Þá eru nokkrar aðgerðir sem ekki er gert ráð fyrir að krefjist verulegs kostnaðar.

Byggðaáætlun byggist á víðtæku og opnu samráðsferli. Samkvæmt lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015 vann Byggðastofnun áætlunina í umboði ráðherra í samvinnu við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál. Formleg vinna hófst í mars árið 2016. Í vinnuferlinu hélt Byggðastofnun samráðsfundi með öllum ráðuneytum, með samráðsvettvöngum í sjö landshlutum og fleiri aðilum. Öll gögn samráðsins voru aðgengileg á veg Byggðastofnunar og var þar haldið utan um tillögur, ábendingar og athugasemdir sem bárust í samráðsferlinu. Áður en þingsályktunin var lögð fyrir Alþingi var hún sett til umsagnar í opna samráðsgátt stjórnvalda. Alls bárust 24 umsagnir inn á samráðsgáttina og var tekið tillit til þeirra eins og kostur var. Sjá nánar í samráðsgátt

Með samþykkt byggðaáætlunar liggur vilji Alþingis í byggðamálum fyrir og verður það meðal forgangsverkefna samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis að tryggja skilvirka og árangursríka framkvæmd áætlunarinnar.

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 24.11.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum