Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu
Innleiðing Microsoft Copilot efnisyfirlit
Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu
Unnið er að samræmdri innleiðingu Microsoft Copilot hjá ríkisstofnunum með það að markmiði að efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Verkefnið er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.
Innleiðingin er fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og góðri gagna- og aðgangsstýringu. Áhersla er lögð á að ný verkfæri styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma — en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.
Innleiðing verður stigvaxandi og byggð á þörfum stofnana. Samhliða sem undanfari innleiðingar er unnið að mati á tæknilegu umhverfi, öryggi og gagnastjórnun til að tryggja trausta og ábyrga notkun frá upphafi.
Fræðsla og stuðningur
Í tengslum við innleiðinguna verður boðið upp á:
- Grunnfræðslu fyrir alla ríkisstarfsmenn um notkun gervigreindar, öryggi og gagnrýna hugsun
- Hlutverkamiðaða þjálfun fyrir ólíka starfshópa
- Stuðning við breytingastjórnun og upptöku nýrra vinnubragða.
Sameiginleg þekking og verkfæri
Þessi síða mun þróast áfram samhliða verkefninu og verða miðpunktur upplýsinga fyrir ríkisstarfsmenn. Hér verður m.a. að finna:
- Tímalína innleiðingarverkefnis fyrir rekstrarumhverfi
- Upplýsingar um framvindu innleiðingar
- Svör við algengum spurningum
- Dagskrá og skráningu á námskeið
Verkfærakistu fyrir stofnanir, þar á meðal stefnumótunargögn, ávinningsmat og leiðbeiningar - Markmið og mælikvarðar
- … og fleira tilfallandi.
Markmiðið er að byggja upp sameiginlegt lærdómssamfélag þar sem stofnanir deila reynslu og góðum dæmum.
Væntingar og næstu skref
Innleiðing Copilot fer fram í áföngum og verður innleidd í samræmi við undirbúning, þarfir og forgangsröðun stofnana. Nánari upplýsingar um tímasetningar og aðgengi verða birtar hér eftir því sem verkefnið þróast.