02 október 2014Heilbrigðisráðuneytið
Norræn
ráðstefna um geðheilsu barna og unglinga
Geðheilsa og vellíðan barna og unglinga: Stefna og framtíðarsýn á Norðurlöndum er umfjöllunarefni ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík 8. október næstkomandi. Aðalfyrirlesarar eru Arne Holte, prófessor við Óslóarháskóla, og Jonathan Campion sem meðal annars hefur starfað sem ráðgjafi breska heilbrigðisráðuneytisins á sviði geðheilbrigðismála.