30 september 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Úthlutun úr
Framkvæmdasjóði aldraðra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra um úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2014. Alls er úthlutað 132 milljónum króna til 11 verkefna sem eiga að stuðla að bættum aðbúnaði aldraðra og bæta öryggi og gæði öldrunarþjónustunnar.