23 maí 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Manninen hlýtur
umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Umhverfissinninn Olli Manninen frá Finnlandi hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Þetta var tilkynnt í gær, á alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni. Verðlaunin, 350.000 danskar krónur (tæpar 7,7 milljónir íslenskra króna) verða afhent á árlegu Norðurlandaráðsþingi, sem í ár verður haldið í Helsinki.