13 maí 2009Forsætisráðuneytið
Dagur upplýsingatækninnar - Upplýsingatækni til endurreisnar - Ráðstefna UT-dagsins haldin 19. maí
Dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, verður haldinn þriðjudaginn 19. maí næstkomandi. Af því tilefni er boðað til ráðstefnu þar sem fjallað verður um hvernig upplýsingatæknin geti nýst opinberum stofnunum, fyrirtækjum og almenningi í því endurreisnarstarfi sem fyrir höndum er í íslensku samfélagi.