05 febrúar 2010Forsætisráðuneytið
110 manns hafa skráð sig á þjóðfund í Bolungarvík
Á morgun, laugardaginn 6. febrúar, verður haldinn þjóðfundur í Íþróttahúsinu á Bolungarvík þar sem koma saman fulltrúar íbúa á Vestfjörðum, sem valdir eru með tilviljunarkenndu úrtaki úr þjóðskrá, og fulltrúar hagsmunaaðila af svæðinu. Eitt hundrað og tíu manns hafa skráð sig til þátttöku.