28 febrúar 2011Utanríkisráðuneytið
Íslensk stjórnvöld styðja aðgerðir og ályktanir Sameinuðu þjóðanna gagnvart Líbíu
Íslensk stjórnvöld taka undir harðorða ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt var um helgina þar sem valdbeiting og mannréttindabrot stjórnvalda í Líbíu eru fordæmd, vopnasölubann sett á landið, svo og ákvæði um ferðabann og frystingu eigna Muammars Gaddafis.