04 janúar 2008Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Nefnd geri tillögur um aðgerðir til að draga úr úrgangi vegna óumbeðins prentpappírs
Umhverfisráðherra hefur skipað nefnd sem á að skila tillögum um aðgerðir til að minnka úrgang og auka endurvinnslu á dagblöðum, tímaritum og öðrum óumbeðnum prentpappír. Nefndin á að kanna mögulegar lausnir, þar á meðal framleiðendaábyrgð.