14 nóvember 2008Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tímabundinn gjaldfrestur á aðflutningsgjöldum
Á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag lagði fjármálaráðherra fram frumvarp um tímabundnar breytingar á tollalögum, þar sem lagt er til að virðisaukaskattskyldum aðilum verði veittur gjaldfrestur á hluta af aðflutningsgjöldum, þmt. virðisaukaskatti, vegna innflutnings á tímabilinu september og október 2008, en greiðsla þeirra fellur í eindaga þann 17. nóvember nk.