Hoppa yfir valmynd

Skipulag

 

Ráðuneytið starfar samkvæmt:

Ákvörðun um skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytis 

Fjármála- og efnahagsráðuneyti starfar samkvæmt lögum nr. 115 frá 2011, um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurði um skiptingu Stjómarráðs Íslands í ráðuneyti nr. 5 frá 31. janúar 2022 og forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 6 frá 31. janúar 2022. Samkvæmt 17. gr. laganna kveður ráðherra á um skiptingu ráðuneytisins í skrifstofur eftir verkefnum, auk þess sem heimilt er að setja á fót sérstakar starfseiningar og ráðuneytisstofnanir sem eru starfræktar sem hluti af ráðuneyti. Skipulag ráðuneytisins er í meginatriðum svo:

  1. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra sem setur honum erindisbréf. Staðgengill hans skal koma úr röðum skrifstofustjóra samkvæmt ákvörðun ráðuneytisstjóra, sbr. 16 gr. Stjórnarráðslaga.
  2. Með ráðherra starfa einn til tveir aðstoðarmenn, sbr. 22. gr. Ráðherra setur aðstoðarmönnum erindisbréf.
  3. Skrifstofu, eða sviði sem er ígildi skrifstofu í skilningi Stjórnarráðslaga, stýrir skrifstofustjóri sem skipaður er af ráðherra. Sérstakri starfseiningu eða ráðuneytisstofnun stýrir embættismaður, sbr. 17. gr.
  4. Sérfræðingar starfa innan einstakra skrifstofa eða sviða. Sama gildir um annað starfsfólk. Ráðuneytisstjóri setur skrifstofustjórum erindisbréf en sérfræðingar starfa samkvæmt starfslýsingum.

Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í eftirfarandi skrifstofur; skrifstofa efnahagsmála, skrifstofa fjármálamarkaðar, skrifstofa opinberra fjármála, skrifstofa skattamála, skrifstofa stjórnunar og umbóta, skrifstofa yfirstjórnar og skrifstofa rekstrar og innri þjónustu. Að auki er kjara- og mannauðssýsla ríkisins  hluti af ráðuneytinu og telst hún vera ráðuneytisstofnun í skilningi 17. gr. stjórnarráðslaga. 

Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, er ráðuneytisstofnun sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Umbra sinnir upplýsingatæknimálum og ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum ráðuneytanna, að hluta eða í heild, með það að markmiði að stuðla að hagkvæmni í rekstri.

Þá starfar í ráðuneytinu sérstök eining, Stafrænt Ísland, sem vinnur að því að aðstoða opinberar stofnanir við að bæta stafræna þjónustu við almenning með því að gera þjónustuna skýrari, einfaldari og hraðvirkari.

Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu og sviðs staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru þeirra. Að auki geta verið starfræktir til lengri og skemmri tíma sérstakir verkefnahópar eða -teymi til að vinna að málefnum og verkefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins, skv. nánari ákvörðun hverju sinni.

 

Nánari upplýsingar um verkefni skrifstofa er að finna hér að neðan.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum