Hoppa yfir valmynd

Skrifstofa skattamála

Skrifstofa skattamálmótar stefnu í skattamálum og eftir atvikum fyrir aðra tekjuöflun ríkisins. Skrifstofan annast mótun og undirbúning skattalöggjafar og gerð lagafrumvarpa og reglugerða á sviði skattamála með hliðsjón af stefnumótun ríkisfjármála og efnahagsmálum almennt. Þar með talin er löggjöf um tolla og vörugjöld. Skrifstofan annast mat á forsendum og áhrifum skattabreytinga sem telst vera hluti af gerð lagafrumvarpa og tekjuáætlunar ríkissjóðs. Skrifstofan undirbýr setningu heildarmarkmiða fyrir tekjuöflun ríkissjóðs og setur fram langtímaáætlanir um þróun tekna í samvinnu við aðrar skrifstofur ráðuneytisins. Þá hefur skrifstofan umsjón með gerð tekjuáætlunar fjárlaga ár hvert og sinnir samtímaeftirliti með innheimtu og þróun einstakra skatt- og tekjustofna. Þá annast skrifstofan undirbúning tvísköttunar- og upplýsingaskiptasamninga við önnur ríki.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum