Hoppa yfir valmynd

Skrifstofa opinberra fjármála

Skrifstofa opinberra fjármála undirbýr stefnumörkun í opinberum fjármálum á grundvelli lögbundinna grunngilda: sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæis og tölusettra fjármálareglna. Skrifstofan leiðir gerð fjármálastefnu, fjármálaáætlunar, fjárlaga og fjáraukalaga, bæði innan ráðuneytisins og gagnvart öðrum ráðuneytum. Í því felst undirbúningur að setningu heildarmarkmiða fyrir hið opinbera, þ.m.t. er varðar umfang, afkomu, skuldir og skuldaþróun, og fyrir opinbera aðila í heild. Í því felst m.a. ábyrgð á samhæfingu fjármálastefnu ríkisins og sveitarfélaga. Þá undirbýr skrifstofan ráðstafanir í ríkisfjármálum og fylgir eftir áherslum ráðherra og ríkisstjórnar varðandi fjármál ríkissjóðs. Skrifstofan leiðir samtarfvið aðrar skrifstofur um þróun og rekstur á þeim gagnasöfnum og samtengdum reiknilíkönum ráðuneytisins sem að þjóna stefnumörkuninni og áætlanagerðinni, þ.m.t. fjárlagakerfi ráðuneyta og Alþingis. Þá yfirfer skrifstofan mat ráðuneyta á fjárhagsáhrifum stjórnarfrumvarpa, reglugerða, samkomulaga og annarra stjórnvaldsráðstafana og leggur mat á samninga og aðrar skuldbindingar sem ná yfir lengri tíma en fjárlagaárið. Skrifstofan hefur forystu um gerð útgjaldagreininga (e. spending reviews) til að meta skilvirkni og árangur og skýra forgangsröðun varðandi ráðstöfun opinberra fjármuna. Skrifstofan greinir horfur og þróun í fjármálum hins opinbera til lengri tíma í samræmi við ákvæði laga.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum