Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð
Dómsmálaráðuneytið vekur athygli á að samkvæmt breytingu á lögum um meðferð einkamála sem gerð var með lögum 49/2016 verður skilyrði áfrýjunar til Landsréttar, þegar um fjárkröfu er að ræða, að fjárhæð kröfu nemi a.m.k. 1.000.000 króna.
Þessari fjárhæð skal breyta um hver áramót miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs frá 1. janúar 2018, en ráðherra auglýsir í Lögbirtingablaði nýja fjárhæð ekki síðar en 10. desember ár hvert. Ráðherra hefur birt meðfylgjandi auglýsingu í Lögbirtingablaðinu um áfrýjunarfjárhæð fyrir árið 2021.
AUGLÝSING
um breytingu á áfrýjunarfjárhæð.
Áfrýjunarfjárhæð samkvæmt 1. mgr. 152. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, sbr. 17. gr. laga nr. laga nr. 49/2016, er kr. 1.095.008.
Áfrýjunarfjárhæð þessi tekur gildi 1. janúar 2021 og gildir fyrir árið 2021.
Dómsmálaráðuneytinu,
12. janúar 2021.
Sjá einnig:
Lög, reglugerðir og reglur
Dómstólar
Gagnlegir tenglar
Réttarfar
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.