Hoppa yfir valmynd

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn var stofnaður 1995 í kjölfar gjafar Svía til Íslendinga á 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins 1994. Þjóðargjöf þessi var peningagjöf að upphæð 3 milljóna sænskra króna og skyldi varið til menningarskipta þjóðanna.

Samkvæmt stofnskrá er fé veitt úr sjóðnum til samstarfs á breiðum grundvelli; til vísinda, félagsstarfs, kennslumála og fleira en þó einkum til menningarmála. Ekki má snerta höfuðstól en veitingar úr sjóðnum byggja á árlegum arði.

Fé er veitt til einstakra verkefna, ekki síst ferðastyrkir sem stuðla að gagnkvæmum kynnum og samvinnu. Jafnframt hefur sjóðurinn lagt fram fé til annarra verkefna eins og orðabókagerðar, til sænskukennslu á Íslandi, styrkt Íslandsdaga í Svíþjóð, auk þess stóð sjóðurinn fyrir sænskri menningarviku í Reykjavík haustið 2003 og loks hafa verið veitt Sænsk-íslensk menningarverðlaun. Síðustu árin hafa eingöngu verið veittir ferðastyrkir.

Sjóðsstjórn skipa sex einstaklingar, þrír frá hvoru landi og skiptast löndin á um að hafa á hendi formennsku.

Úr sjóðnum er veitt einu sinni á ári, að jafnaði í mars eða apríl en auglýst er eftir umsóknum í kringum áramót.
Umsóknarfrestur er til 1. mars ár hvert. Tengiliður sjóðsins er Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, [email protected].

Síðast uppfært: 29.1.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum