Erlent samstarf
Á árunum 2018-2020 átti sér stað mikið samráð við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD). Mennta- og menningarmálaráðherra átti fundi með Ángel Gurría framkvæmdastjóra og Andreas Schleicher yfirmanni menntamála í höfuðstöðvum stofnunarinnar í París vorið 2018. Síðar sama ár var skipulagður framhaldsfundur ráðherra með sérfræðingum OECD á sviði menntamála í París.
Fundað var hér á landi sumarið 2019 og þá um haustið fór ráðherra ásamt helstu hagsmunaaðilum til að ræða mótun menntastefnu Íslands til ársins 2030 við sérfræðinga OECD.
Í byrjun árs 2020 var skipulögð heimsókn ráðherra ásamt helstu hagsmunaaðilum til Svíþjóðar með það markmiði að kynnast menntaumbótum þar í landi. Skipulagðar voru m.a. heimsóknir í sænsku menntamálastofnunina (Skolverket), námsmatsstofnunina (Skolinspektionen) og í einn grunnskóla.
Vorið 2020 var leitað eftir formlegu samstarfi við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD) í tengslum við vinnu við menntastefnu en stofnunin veitir margháttar ráðgjöf á sviðum stefnumótunar og eftirfylgni, m.a. í menntamálum. Í samstarfinu fólst meðal annars rýni á þingsályktunartillögu menntastefnunnar og ráðgjöf um innleiðingu út frá matslíkani OECD.
Haldnir voru reglulegir fundir með OECD, hagaðilum og fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytisins í tengslum við verkefnið og sumarið 2021 kom út skýrslan Menntastefna 2030: Skýrsla OECD um innleiðingu menntastefnu.
Skýrslan byggir á matslíkani sem OECD vinnur með þegar stofnunin liðsinnir í verkefnum sem þessum, greiningu á gögnum um Ísland, viðtölum við fulltrúa íslenskra hagaðila og spurningalista sem mennta- og menningarmálaráðuneyti svaraði. Um var að ræða umfangsmikla rýnivinnu sem nýttist vel við mótun fyrstu aðgerðaáætlunar menntastefnunnar og verklag við innleiðingu hennar.
Í skýrslunni eru jafnframt dregin fram atriði sem hagaðilar lögðu ríka áherslu á í tengslum við innleiðingu menntastefnunnar og dæmi frá öðrum OECD ríkjum.
Að mati OECD eru stoðir og áherslusvið sem stefnumörkunin hvílir á af því tagi sem alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt að stuðli að vönduðum menntakerfum með jöfnum tækifærum fyrir alla. Fram kemur einnig að Covid-19-faraldurinn hafi varpað ljósi á mikilvægi þess að huga að vellíðan nemenda á þann hátt sem íslensk stjórnvöld vilja gera. Mikilvægt sé að efla kennarastéttina, auka ýmsa grunnhæfni og færni í tæknigreinum og stefna kerfinu til meiri ábyrgðar. Ýmis áherslusvið menntastefnunnar eru jafnframt þess eðlis að skólayfirvöld í öðrum ríkjum gætu dregið lærdóm af þeim, og má þar nefna vægi list- og verknáms og vísinda og rannsókna.
Meðal annarra ábendinga OECD í skýrslunni er umfjöllun um þær áskoranir sem fylgja innleiðingu nýrrar stefnu í menntakerfi sem í grunninn einkennist af lítilli miðstýringu, mikilvægi þess að skýra vel hlutverk og ábyrgðasvið þeirra sem koma að innleiðingu og framkvæmd stefnunnar og hvatning um að geta menntakerfisins til að takast á við breytingar verði aukin í því ferli sem framundan er.
Helstu niðurstöður OECD og ábendingar til íslenskra stjórnvalda fyrir innleiðingu menntastefnunnar eru eftirfarandi:
- Forsendur menntastefnunnar rýndar með raunhæfa framkvæmd stefnunnar fyrir augum:
- Framtíðarsýnin verði rökstudd með markvissum hætti og áherslur styðji við framkvæmd hennar.
- Megináherslur verði rýndar með væntanlegar aðgerðir í huga.
- Nýting fjárveitinga og mannafla verði skilgreind í samræmi við forgangsröðun áherslusviða.
- Huga að samráði við hagaðila á öllum innleiðingartímum stefnunnar:
- Könnuð verði ný tilhögun og nálgun við samráð.
- Hlutverk og ábyrgðarsvið hagaðila verði skilgreind á gagnsæjan hátt.
- Sett verði fram skýr samskipta- og kynningaráætlun fyrir allt tímabilið.
- Innleiðing nýrrar menntastefnu sniðin að kerfi með lítilli miðstýringu:
- Gerð verði grein fyrir hlutverki stofnana í tengslum við innleiðingu menntastefnunnar.
- Getu menntakerfisins til að takast á við breytingar verði aukin.
- Samræmi verði tryggt við aðra stefnumótun stjórnvalda.
- Raunhæf innleiðingaráætlun:
- Ólíkir þættir innleiðingarinna komi saman með skipulegum hætti.
- Byggð verði upp þekking og árangursmælikvarðar til að meta árangur af innleiðingu.
- Staðið verði að almennri kynningu á menntastefnunni og innleiðingaráætluninni.
Var efnið hjálplegt?