Aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022 til 2025

Mælaborð

Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 var samþykkt á Alþingi í júní 2022. Áætlunin er sú fyrsta sem snýr eingöngu að málefnum hinsegin fólks.

Áætluninni fylgir 21 aðgerð en hver og ein þeirra miðar að því að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks, samfélaginu öllu til hagsbóta. Aðgerðirnar eru margvíslegar og snerta sumar mörg svið og þar af leiðandi fleira en eitt ráðuneyti, sem og stofnanir, sveitarstjórnir, félagasamtök og hagsmunaaðila. Lögð er áhersla á fræðslutengd verkefni og vitundarvakningu um málefni hinsegin fólks, enda mikilvægt að auka þekkingu og búa til farveg fyrir málefnalega umræðu um stöðu og réttindi hinsegin fólks. Jafnframt er vikið að lagabreytingum, rannsóknum, stefnumótun og fleiru.

Hér að neðan má sjá endanlega stöðufærslu aðgerða innan aðgerðaáætlunarinnar í október árið 2025. Ný aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks tekur gildi í byrjun árs 2026 og gildir út árið 2029.