Aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2026-2029
Aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2026-2029 var birt í nóvember 2025. Aðgerðaáætlunin felur í sér lýsingu á stefnu stjórnvalda á málefnasviði hinsegin mála, beinar aðgerðir sem ná til réttarbóta, vitundarvakningar, rannsókna og fræðslu til að varpa ljósi á stöðu málaflokksins og aðgerðir sem ætlað er að stuðla að framförum á sviði hinsegin málefna.
Mælaborðið sýnir framgang aðgerða á myndrænan hátt. Litaval byggist á huglægu og hlutlægu mati á stöðu aðgerðanna og er unnin í samstarfi við þau ráðuneyti sem bera ábyrgð á framkvæmd einstakra aðgerða. Mælaborðið er uppfært tvisvar á ári.