Starfsþróunarnámskeið fyrir kennara, skólastjórnendur og starfsfólk í frístundastarfi
Útbúið verði rafrænt starfsþróunarnámskeið fyrir skólastjórnendur, kennara og starfsfólk í frístundastarfi um inngildingu og jákvæðan skólabrag með áherslu á forvarnir og viðbrögð við hatursorðræðu gagnvart jaðarsettum nemendahópum á borð við hinsegin nemendur.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu starfsfólks skóla á málefnum hinsegin fólks og bæta hæfni þess við að stuðla að bættri líðan hinsegin barna og ungmenna. Stuðlað verði að því að starfsfólk eigi auðvelt með að tala um hinseginleikann, styðja hinsegin nemendur, nýta viðurkenndar leiðir til að auka inngildingu jaðarsettra hópa í skóla- og frístundastarfi og þar með að tryggja jákvæðan skólabrag.
Tímaáætlun: 2027–2028.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina er ekki hafin.