Kynbundinn launamunur
Launajafnrétti
Markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
Markmiði um jafnrétti á vinnumarkaði skal ná með því að vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á vinnumarkaði á grundvelli kyns. Launajafnrétti er grundvallaratriði í baráttunni fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og felur í sér að kyn skuli ekki hafa áhrif á launaákvarðanir.
Hlutfall kvenna á vinnumarkaði hér á landi er meðal þess hæsta sem þekkist í heiminum og er atvinnuþátttaka kvenna ein sú mesta sem mælist meðal ríkja Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) og mælist hærri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. Í því ljósi eru launajafnrétti og aðgerðir til að vinna gegn kynbundnum launamun afar brýnt hagsmunamál.
Ábyrgð atvinnurekenda til að ná fram launajafnrétti er rík og það er eðlileg krafa að launakerfi séu gagnsæ og að launaákvarðanir byggist á málefnalegum sjónarmiðum.
Skýrslugjöf um kynbundinn launamun
Til að launajafnrétti náist í reynd þarf samspil margra þátta. Skýrslugjöf um kynbundinn launamun og eftirlit stjórnvalda er einn af þeim þáttum. Það er mikilvægt að stjórnvöld styðji við aðgerðir til að markmiði um launajafnrétti verði náð til að mynda með því að útvega viðeigandi verkfæri og tryggja eftirfylgni og eftirlit.
Ein af þeim leiðum sem stjórnvöld hafa farið í þessu skyni er að leggja þá skyldu á fyrirtæki og stofnanir að skila gögnum sem staðfesta að laun séu ákvörðuð á sama hátt fyrir allt starfsfólk og að kyn hafi ekki áhrif á launaákvarðanir.
Skýrslugjöf um kynbundinn launamun er skil á gögnum um að launakerfi fyrirtækisins eða stofnunarinnar uppfylli kröfur 8. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli er gert að skila til Jafnréttisstofu, á þriggja ára fresti, gögnum um starfaflokkun og launagreiningu, ásamt tímasettri úrbótaáætlun, ef kynbundinn launamunur mælist, þar sem fram kemur hvernig brugðist skuli við og hvernig hann verði leiðréttur.
Þetta á við um öll fyrirtæki og stofnanir af þessari stærð, jafnt á almenna og opinbera vinnumarkaðnum.
Öll ráðuneyti skulu þó skila gögnum samkvæmt lögunum óháð fjölda starfsfólks.
Gild jafnréttisáætlun fyrirtækis eða stofnunar er forsenda þess að fyrirtæki eða stofnun geti lokið skýrslugjöf um kynbundinn launamun.
Fyrirtæki eða stofnun skal kynna niðurstöður launagreiningar um kynbundinn launamun fyrir starfsfólki og gera þær aðgengilegar, eftir að þær hafa verið gerðar ópersónugreinanlegar, en að öðrum kosti að teknu tilliti til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Taka skal tillit til allra þátta launa og kjara.
Samkvæmt jafnréttislögum skal ráðherra láta meta framgang og árangur af skýrslugjöf um kynbundinn launamun á þriggja ára fresti með gerð rannsóknar á launamun kvenna og karla sem nái til vinnumarkaðarins í heild í samstarfi við Hagstofu Íslands.
Umsjón - Jafnréttisstofa
Meðal verkefna Jafnréttisstofu er að hafa umsjón með umsýslu skýrslugjafar um kynbundinn launamun, sbr. 8. og 9. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og annast eftirlit skv. 10. gr. sömu laga. Í 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020, er kveðið á um dagsektarheimildir Jafnréttisstofu.
Reglubundin skýrslugjöf um kynbundinn launamun ásamt eftirliti og eftirfylgni Jafnréttisstofu er leið að því markmiði að stuðla að launajafnrétti á vinnumarkaði.
Gögnum skal skilað í gegnum rafrænt þjónustu-og gagnakerfi Jafnréttisstofu.
Reglugerð um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun og eftirlit Jafnréttisstofu skýrir nánar framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun, þær kröfur sem gerðar eru til atvinnurekenda í tengslum við skýrslugjöfina og hvernig eftirliti Jafnréttisstofu með skýrslugjöfinni skuli háttað.
Upplýsingar um skýrslugjöf um kynbundinn launamun, m. a. leiðbeiningar um hvaða gögnum skuli skila og hvernig það skuli gert má finna á heimasíðu Jafnréttisstofu. Sjá hér. Einnig er þar að finna ýmis sýnidæmi, fræðslu og aðrar gagnlegar upplýsingar sem tengjast skýrslugjöf um kynbundinn launamun.
Lög og reglur um skýrslugjöf um kynbundinn launamun
- Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020
- Skýrslugjöf um kynbundinn launamun - Lög um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020
- Reglugerð um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun og eftirlit Jafnréttisstofu
- Lög um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020