Stemmt stigu við hatursorðræðu gagnvart hinsegin fólki í stafrænni þjónustu

Unnið verði að innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2065 um innri markað fyrir stafræna þjónustu og breytingu á tilskipun 2000/31/EB (tilskipun um rafræn viðskipti). Innleiðing reglugerðarinnar feli í sér að hatursorðræða gagnvart hinsegin fólki og öðrum jaðarhópum geti talist ólöglegt efni.

Markmið aðgerðarinnar verði að stemma stigu við hatursorðræðu gagnvart hinsegin fólki og öðrum jaðarhópum í stafrænni þjónustu.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Atvinnuvegaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Skrifstofa viðskipta og markaða.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Unnið er að upptöku Digital Services Act (DSA) –2022/2065, í EES-samninginn í sérstökum vinnuhópi EFTA ríkjanna. Atvinnuvegaráðuneytið ásamt utanríkisráðuneytinu, hefur tekið þátt í þessari vinnu en reglugerðin er umfangsmikil og krefst ítarlegrar skoðunar út frá álitaefnum sem varða tveggja stoða kerfi EES-samningsins. Þannig þarf að nást samkomulag um að taka þessa gerð upp í EES-samninginn og innleiða í landsrétt til að hún öðlist gildi innan EES-ríkja. 

Hafið