Efling hinsegin menningar
Unnin verði greining á opinberri fjármögnun menningarmála með tilliti til þátttöku, tækifæra og upplifunar hinsegin fólks. Sérstaklega verði skoðað hvort hindranir séu til staðar í núverandi kerfi og tillögur til úrbóta lagðar fram. Skoðað verði hvort niðurstöður kalli á að stutt verði frekar við menningarstarfsemi hinsegin fólks gegnum
listahátíðir og aðra menningartengda viðburði eða í gegnum aukna samþættingu við núverandi fyrirkomulag. Í framhaldi af greiningu verði haldið málþing um niðurstöður og kallað eftir tillögum að úrbótum.
Markmiðið verði að greina núverandi stöðu menningarstarfs með tilliti til aðgengis og fjármögnunar og efla enn frekar þá starfsemi sem nú þegar er til staðar í formi bókmenntahátíða, kvikmynda- og listviðburða ásamt því að styðja við nýja viðburði sem tengjast hinsegin menningu.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa menningar og skapandi greina.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina er ekki hafin