Fræðsla til fagaðila um hinseginleika í þjónustu við hinsegin aldraða

Unnið verði markvisst að fræðslu fyrir fagaðila sem starfa með öldruðum, með áherslu á málefni hinsegin og kynsegin einstaklinga. Fræðslan nái til heilbrigðis-, félags- og mennta­stofnana og miði að aukinni þekkingu, skilningi og hæfni í þjónustu við hinsegin og kynsegin aldraða.

Markmið aðgerðarinnar verði að efla fræðslu meðal fagaðila sem sinni öldruðum svo þeir geti betur mætt þörfum hinsegin og kynsegin einstaklinga og tryggt virðingu og mannréttindi í allri þjónustu.

Tímaáætlun: 2026–2027.

Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga. .

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Heilbrigðisráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við aðgerðina með stuðningi úr framkvæmdasjóði hinsegin mála. 

Í undirbúningi