Öruggt húsnæði, fræðsla og stuðningur við hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd

Metið verði með kerfisbundnum hætti hvort umsækjendur um alþjóðleg vernd tilheyri viðkvæmum hópum eins og hinsegin fólki. Tryggt verði að hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd geti upplifað sig örugga í húsnæði á vegum Vinnumálastofnunar á meðan á afgreiðslu umsóknar þeirra stendur, þeir fái viðeigandi þjónustu og fræðslu

á vegum hagsmunasamtaka auk þess sem þeim verði úthlutaður tengiliður innan velferðarteymis Vinnumálastofnunar þannig að bregðast megi við sértækum þörfum þeirra.

Markmiðið aðgerðarinnar verði að tryggja að hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd upplifi sig örugga innan íslenska verndarkerfisins, verði ekki fyrir áreiti, ofbeldi eða aðkasti á meðan þeir dvelja í búsetuúrræðum Vinnumálastofnunar.

Tímaáætlun: 2026-2028.

Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Vinnumálastofnun.

Kostnaðaráætlun: Rúmast innan fjárheimilda Vinnumálastofnunar.

Staða aðgerðar:

Vinnumálastofnun tryggir hinsegin hælisleitendum og hælisleitendum í öðrum viðkvæmum hópum öruggt húsnæði á meðan á afgreiðslu hælisumsóknar þeirra stendur. Jafnframt fá hinsegin hælisleitendurnir upplýsingar um Samtökin78. 

Komið vel á veg