Rannsóknasetur í hinsegin fræðum
Kannað verði hvort raunhæft sé að koma á fót rannsóknasetri í hinsegin fræðum. Skoðað verði hvort starfsemi setursins gæti farið fram innan Háskóla Íslands í nánu samstarfi viðeigandi fræðasviða. Jafnframt verði skoðað hvort setrið muni eiga samstarf við fræðafólk við aðra háskóla á Íslandi og/eða í öðrum löndum eins og við á hverju
sinni.
Meginmarkmið rannsóknasetursins verði að efla markvissar rannsóknir á sviði hinseginleika í þeim tilgangi að stuðla að markvissari stefnumótun stjórnvalda í réttarbótum, bættum aðstæðum, viðurkenningu og þátttöku hinsegin fólks í samfélaginu.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa jafnréttismála.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina hefur ekki hafist.