Betri stuðningur við hinsegin þolendur heimilisofbeldis

Lögð verði áhersla á fræðslu til starfsfólks lögreglu þannig að það verði betur í stakk búið til að styðja hinsegin þolendur heimilisofbeldis og vinna að forvörnum gagnvart heimilisofbeldi. Vinnulýsingar verði yfirfarnar, boðið upp á fræðslu til lögreglu og haldin ráðstefna um málefnið. Jafnframt verði boðið upp á fræðslu til hinsegin

samfélagsins um verklag lögreglu í heimilisofbeldismálum. Sérstakur tengiliður lögreglu við hinsegin samfélagið verði skipaður við upphaf aðgerðaáætlunarinnar.

Markmið aðgerðarinnar verði að byggja upp traust í samskiptum lögreglu við hinsegin samfélagið til að hinsegin fólk hiki ekki við að leita til lögreglu eftir aðstoð vegna heimilis­ofbeldis og því sé ætíð mætt af virðingu.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við viðeigandi aðila.

Kostnaðaráætlun: Áætlað er að ófjármagnaður kostnaður við þróun fræðslu og ráðstefnu nemi um 4 millj. kr. Aðrir þættir verkefnisins rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur miðlað fræðslumyndböndum um hinsegin fólki, hinsegin heimilisofbeldi, brot gegn hinsegin fólki, samskipti og vinnustaðamenningu til lögreglufólks. Samráð verður haft við Samtökin 78 um frrekari vinnu við aðgerðina. 

Hafið