Stuðningur við börn og forsjáraðila barna með kynama
Mótaðar verði verklagsreglur og skýr þjónustuleið fyrir börn með kynama. Samhliða verði tryggður faglegur og samfelldur stuðningur við forsjáraðila. Verkefnið feli í sér gerð rafræns vegvísis, upplýsingagáttar og skýrra verkferla innan heilbrigðiskerfisins.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja skýran og aðgengilegan þjónustufarveg fyrir börn með kynama og veita forsjáraðilum markvissan stuðning og fræðslu.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Landspítali í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina er ekki hafin.
Í undirbúningi