Reglulegar úttektir á líðan hinsegin barna og ungmenna

Festar verði í sessi reglulegar úttektir á líðan hinsegin barna og ungmenna í grunn- og framhaldsskólum, m.a. í því skyni að greina langtímaþróun. Gefnar verði út árlegar skýrslur með samanburði á milli ára um líðan hinsegin barna í grunnskólum. Samsvarandi skýrslur verði gefnar út annað hvert ár um líðan nemenda í framhaldsskólum.

Markmið aðgerðarinnar verði að safna gögnum um líðan hinsegin barna og ungmenna í skólakerfinu til að greina þarfir, kortleggja áskoranir og meta þróun yfir tíma. Gögnin verði samanburðarhæf á milli ára til að styðja við gagnreynda stefnumótun og faglega nálgun.

Tímaáætlun: 2026.

Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Íslensk æskulýðsrannsóknin.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Úttekt á líðan hinsegin barna og ungmenna er hluti af  reglubundinni Æskulýðsrannsókn. Samantekt verið unnin úr gögnum um börn á grunnskólaaldri. 

Hafið