Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Boðið verði upp á fræðslu um hinsegin málefni fyrir alla kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu meðal kjörinna fulltrúa og starfsfólks sveitarfélaga um réttindi og félagslega stöðu hinsegin fólks.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Innviðaráðuneyti.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Tveir fræðslufundir verða haldnir í haust (september/október) að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Fræðslan hefur verið og verður áfram í umsjón Samtakanna 78. Stefnt er að því að boða til fræðslufunda árlega á gildistíma áætlunarinnar.
Hafið