Fræðsla til starfsfólks við málsmeðferð og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd
Þróuð verði og miðlað fræðslu um hinsegin málefni til starfsfólks við málsmeðferð og þjónustu við hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd. Jafnframt verði sjónum beint að menningar- og samfélagslegum áhrifaþáttum á stöðu hinsegin fólks í algengustu upprunalöndum hinsegin umsækjenda.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja að mannréttindi hinsegin umsækjenda um alþjóðlega vernd séu virt, stuðla að faglegri málsmeðferð og þjónustu.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Útlendingastofnun í samvinnu við Samtökin '78.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Útlendingastofnun hefur skipulagt fræðslu frá Samtökunum’78. Allt starfsfólk sem kemur að afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun mun sitja fræðsluna þar sem lögð verður áhersla á að starfsfólk sé meðvitað um sín eigin norm eða félagsleg viðmið og geri sér grein fyrir mismunandi menningar- og samfélagslegum áhrifaþáttum hinsegin umsækjenda í mismunandi ríkjum heimsins. Þá hefur fræðslunni verið bætt við fræðslustefnu stofnunarinnar sem tryggir það að sams konar fræðsla fari reglulega fram til þess að tryggja endurmenntun starfsfólks og að nýtt starfsfólk fái ítarlegri hinsegin fræðslu, umfram það sem kennt er í nýliðafræðslu