Frumkvæði og þátttaka í alþjóðlegri baráttu fyrir hinsegin réttindum

Stuðlað verði að auknum réttindum hinsegin fólks á alþjóðavísu með öflugu málsvara-starfi og fjárframlögum til frjálsra félagasamtaka og verkefna á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Í setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 2025–2027 verði sérstök áhersla lögð á að stuðla að hinsegin réttindum, styðja starf Sameinuðu þjóðanna í málefnum hinsegin fólks og auka samstarf við önnur ríki um hinsegin réttindi. Allsherjarúttekt mannréttindaráðsins verði nýtt til að beina tilmælum um réttindi hinsegin fólks til allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna sem taka þátt í slíkri úttekt. Ísland styðji réttindabaráttu hinsegin fólks í þróunarríkjum með fjárframlögum til mannréttindasamtaka auk þess að styrkja starf mannréttindaráðsins í þágu alþjóðlegrar baráttu fyrir réttindum hinsegin fólks.

Markmið aðgerðarinnar verði að nýta sterka stöðu Íslands á sviði hinsegin mannréttinda á vettvangi alþjóðastofnana, í setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og öðrum verkefnum til að bæta hinsegin réttindi á alþjóðavísu.

Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa alþjóðapólitískra málefna.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Fulltrúar íslenskra stjórnvalda tala fyrir réttindum hinsegin fólks á alþjóðavísu í samskiptum við önnur ríki og á vettvangi alþjóðastofnana. Í allsherjarúttektum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna beinir Ísland tilmælum til allra ríkja um hvað betur megi fara í réttindum hinsegin fólks. Stutt er við réttindabaráttu hinsegin fólks í þróunarríkjum með samningsbundnum fjárframlögum til frjálsra félagasamtaka og sjóða á vegum Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðabankans. 

Hafið