Afnám banns við blóðgjöf karla sem stunda kynlíf með körlum

Unnið verði að því að afnema bann við blóðgjöfum karla sem stunda kynlíf með körlum (MSM) í framhaldi af breytingu á reglugerð nr. 441/2006 og NAT-skimun, sem tók gildi 1. júlí 2025.

Markmið aðgerðarinnar verði að afnema mismunun sem blóðgjafar hafa sætt á grundvelli kynhneigðar.

Tímaáætlun: 2026.

Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Landspítali í samvinnu við viðeigandi sérfræðinga.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Stjórnvöld hafa með reglugerðarbreytingu ákveðið að aflétta banninu í haust. 

Komið vel á veg