Stuðningsáætlanir fyrir hinsegin börn í skólum

Hvatt verði til þess að skólar setji sér stuðningsáætlanir fyrir hinsegin nemendur. Útbúnar verði aðgengilegar leiðbeiningar  til að aðlaga að aðstæðum í hverjum skóla fyrir sig. Metið verði innan skóla hvort skipaður verði tengiliður eða bakhjarl/ar til að styðja við starf með hinsegin börnum og sækja þekkingu til sérfræðinga á sviði hinsegin mála.

Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja fagleg viðbrögð við vanlíðan hinsegin barna, stuðla að öruggu og inngildandi námsumhverfi í því skyni að stuðla að góðri skólasókn, námsárangri og líðan hinsegin barna.

Tímaáætlun: 2028–2029.

Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við Samtökin '78.

Kostnaðaráætlun: 6 millj. kr.

Staða aðgerðar:

Vinna við aðgerðina er ekki hafin.

Í undirbúningi