Skýrari viðmið í kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu Landspítala

Skýrari afmörkun verði á hlutverki Landspítala í veitingu kynstaðfestandi heilbrigðis­þjónustu. Unnið verði að skilgreiningu ábyrgðar, verkferla og þjónustuframboðs í samvinnu við fagaðila og notendur þjónustunnar.

Markmið aðgerðarinnar er að tryggja skýrleika í hlutverki og ábyrgð Landspítala gagnvart kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu og bæta þannig yfirsýn, aðgengi og samræmi í þjónustunni.

Tímaáætlun: 2026–2027.

Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Landspítali í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Vinna við aðgerðina hefur ekki hafist.

Í undirbúningi