Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Starfshópur um gerð Orkustefnu
Starfshópurinn samanstendur af fulltrúum sem tilnefndir eru af öllum þingflokkum auk þess sem...
Þann 2. október 2020 kynnti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, langtíma orkustefnu fyrir Ísland, þá fyrstu sem unnin er með þessum hætti, undir yfirskriftinni „Orkustefna til ársins 2050: Sjálfbær orkuframtíð.“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipaði á vordögum 2018, starfshóp með aðkomu allra þingflokka til að vinna orkustefnu fyrir Ísland. Þess er vænst að tillaga hópsins verði lögð fram til umræðu á Alþingi í byrjun árs 2020.
Í erindisbréfi starfshópsins segir að í fyrsta áfanga skuli fara fram ítarleg undirbúnings og greiningarvinna sem myndar faglegan grundvöll fyrir mótun langtímaorkustefnu. Lagt er fyrir starfshópinn að hafa víðtækt samráð í störfum sínum, kalla eftir hugmyndum við upphaf starfs þar sem leitað verði með opnu ferli eftir hugmyndum og tillögum að innihaldi orkustefnu frá almenningi, hagsmunaaðilum og félagasamtökum
Eldri skjöl:
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Starfshópurinn samanstendur af fulltrúum sem tilnefndir eru af öllum þingflokkum auk þess sem...
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Í erindisbréfi starfshópsins kemur fram að skoða þurfi vel orkustefnur annarra ríkja og bera þær...
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.