Jafnréttisnefnd karla
Skipuð verði karlanefnd sem hafi það hlutverk að vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu karla og drengja og þær áskoranir sem karlar og drengir standa frammi fyrir í tengslum við jafnréttismál. Nefndin skal skoða hvernig stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af stöðu karla og drengja og leggja fram tillögur um aukinn þátt karla í umræðum um jafnrétti kynjanna og hvernig megi virkja þá frekar til þátttöku í jafnréttisstarfi. Nefndin starfi í eitt ár.
Markmið aðgerðarinnar verði að fá yfirsýn yfir áskoranir í jafnréttismálum sem karlar og drengir standa frammi fyrir.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið í samstarfi við Jafnréttisstofu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 5.
Staða aðgerðar:
Skipaður hefur verið strákahópur og stefnt er að því að hópurinn skili af sér skýrslu í byrjun árs 2027.