Jafnréttisþing 2015

Félags- og jafnréttismálaráðherra og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings í samræmi við lög nr. 10/2008, um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla.

Á jafnréttisþingi leggur félags- og jafnréttismálaráðherra fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála á umliðnum tveimur árum. Hlutverk þingsins er að efna til umræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnumótun stjórnvalda í jafnréttismálum. Næsta jafnréttisþing verður haldið í október 2017 og verða upplýsingar birtar þegar nær dregur.

Á síðasta jafnréttisþingi, 25. nóvember 2015. Lögð var áhersla á stöðu kvenna og kynjaðar birtingarmyndir á opinberum vettvangi. Markmiðið var að varpa ljósi á ólíka stöðu kvenna og karla í fjölmiðlum og kvikmyndum annars vegar og hins vegar að fjalla um umfang og eðli kynbundinnar hatursorðræðu. Jafnréttisþingið var haldið á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi.

Aðalfyrirlesarar þingsins voru Maria Edström, lektor við Fjölmiðladeild Háskólans í Gautaborg og verkefnisstjóri Nordicom–verkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar um aukið jafnrétti í fjölmiðlum, og Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Kynntar voru niðurstöður nýrra rannsókna um hlut kvenna og karla í íslenskum fjölmiðlum.

-

Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2013 - 2015
  • Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs var veitt að lokinni dagskrá þingsins.

Auglýsing um dagskrá til útprentunar
Hér fylgir dagskrá síðasta jafnréttisþings með tenglum á efni ólíkra fyrirlestra og niðurstöðum málstofa.

DAGSKRÁ

08:30 - 09:00Skráning og afhending ráðstefnugagna
09:00 - 09:10Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs. Ávarp og setning Jafnréttisþings 2015.
09:10 - 09:30Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2013 - 2015
09:30 - 09:45Rósa Guðrún Erlingsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Viðmælendur í fréttum og völdum umræðuþáttum fjölmiðla – niðurstöður könnunar velferðarráðuneytisins og Fjölmiðlavaktarinnar.
09:45 - 10.10Guðný Gústafsdóttir, doktorsnemi og stundakennari við Háskóla Íslands. Kjarnmestu konur í heimi.
10:10 - 10.30Kaffi
10:30 - 11:00Maria Edström, lektor við rannsóknarstofnun um fjölmiðla og upplýsingamál við Háskólann í Gautaborg. Gender Equality in Media in a Nordic Perspective – how to make Change.
11:00 - 11:30

Viðbrögð og umræður:

  • Eva María Jónsdóttir, fjölmiðlakona og miðaldafræðingur.
  • Kolbeinn Tumi Daðason, aðstoðarritstjóri á 365 miðlum.
11:30 - 11:45Uppistand. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari. Vertu ung, vertu sæt!
11:45 - 12:45Hádegismatur
12:45 - 14:30

MÁLSTOFUR

  • Kyn og fjölmiðlar
  • Kyn og kvikmyndir
  • Kyn og hatursorðræða
14:30 - 14:50Kaffi
14:50 - 15:10

Málstofustjórar gera grein fyrir umræðum úr málstofum.

15:10 - 15:40Elsku stelpur! Siguratriði Hagaskóla í Skrekk 2015 sýnt á tjaldi. Pallborðsumræður um ungt fólk og kynjajafnrétti með fulltrúum sigurliðsins og alþingismönnunum Unni Brá Konráðsdóttur og Guðmundi Steingrímssyni. Umræðum stýrir Eva María Jónsdóttir, fjölmiðlakona.
15:40 - 16:10Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Gender Equality in Film Funding in a Nordic Perspective – how to ensure Fairness and Equality when Funding Film Productions.
16:10 - 16:40

Viðbrögð og umræður:

  • Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
  • Hilmar Sigurðsson, formaður SÍK - Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
16:40 - 16:55Uppistand. Hugleikur Dagsson, uppstandari. Um birtingarmyndir kvenna og karla.
16:55 - 17:15Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Ávarp og slit.
17:15 - 17:45Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs 2015 í Vox Home.
17:45Móttaka

Málstofur

Málstofa 1 Kyn og fjölmiðlar

  • Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri og doktor í fjölmiðlafræði.
Svona eru konur

.

  • Valgerður Anna Jóhannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Ísland í alþjóðlegri fjölmiðlavöktun

.

  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu. Þátttakendur eða þiggjendur.
Endurspegla fjölmiðlar samfélagið? Fjölmiðlaverkefni FKA 2013 – 2017

.
Málstofustjóri: Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar.

Málstofa 2 Kyn og kvikmyndir

  • Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og formaður Félags leikskálda og handritshöfunda.
Erum við kynóð?
  • Hilmar Oddsson, kvikmyndaframleiðandi og rektor Kvikmyndaskóla Íslands.
Hvernig nýtum við skóla sem jafnréttistæki? – Kvikmyndanám og konur

.

  • Skúli Friðrik Malmqvist, kvikmyndaframleiðandi.
    Málstofustjóri: María Reyndal, leikstjóri og handritshöfundur.

Málstofa 3 Kyn og hatursorðræða

  • Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Hvað má gera til að vinna gegn hatursorðræðu? – Ábendingar til framtíðar

.

  • María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Sussex.
Hatursorðræða: álitaefni um ábyrgð

.

  • Vilhjálmur Reyr Þórhallsson, yfirlögfræðingur lögfræðisviðs Embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Hatursorðræða frá sjónarhóli lögreglu

.
Málstofustjóri: Þórður Kristinsson, mannfræðingur.

Sjá einnig