Persónuskilríki
Persónuskilríki er skjal með andlitsmynd og eftir atvikum fleiri upplýsingum, sem yfirvöld gefa út handa einstaklingi til sönnunar á því hver hann er. Til gildra persónuskilríkja til notkunar hér á landi teljast vegabréf og nafnskírteini útgefin af Þjóðskrá Íslands og ökuskírteini. Íslendingar geta því hérlendis sannað á sér deili með framvísun vegabréfs, nafnskírteinis eða ökuskírteinis.
Erlendis verða Íslendingar hins vegar að framvísa vegabréfi þurfi þeir að sanna á sér deili þar sem það er eina skilríkið sem er gilt erlendis. Þó að önnur norræn ríki geri ekki þá kröfu til íslenskra ríkisborgara að þeir hafi undir höndum vegabréf á ferðum sínum til Norðurlandanna þá þurfa menn að vera viðbúnir því að geta sannað á sér deili með framvísun vegabréfs. Því er mælt með því að fólk hafi vegabréf undir höndum þegar farið er til Norðurlandanna sem og til annarra ríkja hvort sem þau standa utan Schengen eða ekki.
Upplýsingar um útgáfu skilríkja erlendis má sjá hér.
Vegabréf
Þjóðskrá Íslands er útgefandi íslenskra vegabréfa samkvæmt lögum um vegabréf nr. 136/1998 með síðari breytingum. Aðalafgreiðsla vegabréfa á höfuðborgarsvæðinu er hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu að Hlíðarsmára 1, 201 Kópavogi, en umsóknarstaðir utan höfuðborgarsvæðisins eru hjá sýslumönnum um land allt. Athugið að ekki er skilyrði að sótt sé um vegabréf í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili.
Ökuskírteini
Sýslumenn annast útgáfu ökuskírteina í umboði ríkislögreglustjóra, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 830/2011um ökuskírteini.
Nafnskírteini
Allir íslenskir ríkisborgarar, 14 ára og eldri sem og erlendir ríkisborgarar sem skráðir hafa verið með lögheimili á Íslandi samfellt í 2 ár, geta fengið útgefið nafnskírteini, sbr. lög um útgáfu og notkun nafnskírteina nr. 25/1965. Ef kveðið er á um það í lögum, reglugerðum eða lögreglusamþykktum að menn skuli sanna aldur sinn, þegar svo ber undir, geta þeir þá fullnægt þeirri skyldu með því að leggja fram nafnskírteini. Sjá nánar á vef Þjóðskrár Íslands.
- Dómsmálaráðuneytið fer með löggjöf varðandi persónuskilríki.
- Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fer með löggjöf varðandi Þjóðskrá Íslands.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Gagnlegir tenglar
Vegabréfsáritanir
Persónuréttur
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.