Hoppa yfir valmynd

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga starfar samkvæmt VII. kafla sveitarstjórnarlaga, og reglugerð nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Ráðherra sveitarstjórnarmála skipar nefndina, einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tvo án tilnefningar.

Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með reikningsskilum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga og að hafa eftirlit með því að fjármálastjórn sveitarfélaga sé í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Leiði athugun nefndarinnar í ljós að afkoma sveitarfélags sé ekki í samræmi við ákvæði laganna eða að fjármál sveitarfélagsins stefni að öðru leyti í óefni skal nefndin aðvara viðkomandi sveitarstjórn og kalla eftir skýringum. Sveitarstjórn er skylt í slíkum tilvikum að gera eftirlitsnefndinni grein fyrir hvernig hún hyggst bregðast við aðvörun nefndarinnar  innan tveggja mánaða.

Aðgerðir eftirlitsnefndar og skyldur sveitarfélaga

Ef sveitarfélag kemst í fjárþröng og sveitarstjórn telur ekki unnt að standa í skilum skal hún tilkynna það eftirlitsnefndinni. Nefndin lætur þá rannsaka fjárreiður og rekstur sveitarfélagsins og leggur síðan fyrir sveitarstjórn að bæta úr því sem áfátt kann að reynast. Hafi sveitarfélag ekki brugðist við fjárhagsvanda sínum innan þriggja mánaða eða beri aðgerðir til lausnar fjárhagsvanda ekki tilætlaðan árangur getur eftirlitsnefndin gripið til frekari aðgerða.

Telji eftirlitsnefndin að fjárhagur sveitarfélags sé það slæmur að það geti ekki með eðlilegum rekstri staðið undir lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum eða það hafi ekki burði til að leysa vandann án utanaðkomandi fjárhagslegrar aðstoðar er nefndinni heimilt að kanna möguleika á fjölþættum fjárhags- og stjórnunarlegum aðgerðum til lausnar fjárhagsvanda sveitarfélagsins með þátttöku ríkisvalds, sveitarfélags, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, Lánasjóðs sveitarfélaga og annarra lánadrottna. Getur ráðuneytið að tillögu eftirlitsnefndar heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn í slíkum tilvikum að leggja álag á útsvar og fasteignaskatt sem nemi allt að 25%.

Þegar greiðslubyrði sveitarfélags umfram greiðslugetu er svo mikil að ljóst er að eigi mun úr rætast í bráð getur ráðherra að tillögu eftirlitsnefndar svipt sveitarstjórn fjárforráðum og skipað sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn enda hafi sveitarstjórn vanrækt skyldur sínar samkvæmt sveitarstjórnarlögum og fjármál sveitarfélagsins verið í ólestri. Áður en til slíks kemur skal þó skora á sveitarstjórn að koma fjármálum sveitarfélagsins á réttan kjöl innan tiltekins frests.

Sjá skipun nefndarinnar.  

Starfsmaður nefndarinnar er Gústav Aron Gústavsson, sérfræðingur á skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála í innviðaráðuneyti.

Minnisblöð um störf eftirlitsnefndar

Ársskýrslur eftirlitsnefndar

Bréf eftirlitsnefndar til sveitarstjórna

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum