4. Aðgerðaáætlun – aðgerðir til samdráttar í losun og aukinnar kolefnisbindingar
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er helsta stjórntæki stjórnvalda til innleiðingar og framkvæmdar aðgerða sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða auka bindingu kolefnis. Aðgerðaáætluninni er jafnframt ætlað að samræma og styðja innleiðingu loftslagsaðgerða þvert á samfélagið og skapa grunn fyrir framgang loftslagsmarkmiða stjórnvalda.
Árið 2024 kom út ný og uppfærð aðgerðaáætlun með 150 loftslagsaðgerðum sem lögð var fram í samráðsgátt stjórnvalda. Ný verkefnisstjórn sem var skipuð vorið 2025 vinnur bæði að innleiðingu nýrra aðgerða og eftirfylgni með þeim aðgerðum sem þegar eru í innleiðingu. Verkefnisstjórnin vinnur einnig að því að straumlínulaga verklag og mælikvarða fyrir aðgerðir.
Í töflu 3 hér að neðan má sjá stöðu aðgerða undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í september 2026. Í undirköflum er jafnframt gerð frekari grein fyrir uppbyggingu aðgerðaáætlunar, aðgerðum í innleiðingu, stöðu aðgerða í framkvæmd, aðgerðum sem er lokið og aðgerðum utan aðgerðaáætlunar. Skýrsla þessi gerir ekki sérstaklega grein fyrir aðgerðum sem eru á hugmyndastigi eða fyrirhugaðar.
Ábyrgðarráðuneyti aðgerða eru tiltekin í sviga fyrir aftan heiti hverrar aðgerðar (atvinnuvegaráðuneyti (ATRN), félags- og húsnæðismálaráðuneyti (FRN), fjármála- og efnahagsráðuneyti (FJR), forsætisráðuneyti (FOR), heilbrigðisráðuneyti (HRN), innviðaráðuneyti (IRN), menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti (MNH), mennta- og barnamálaráðuneyti (MRN), umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti (URN) og utanríkisráðuneyti (UTN)).
Tafla 3: Yfirlit yfir stöðu aðgerða í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í september 2026.
| Staða aðgerða | Fjöldi aðgerða |
| Í innleiðingu | 19 |
| Í framkvæmd | 40 |
| Lokið | 27 |
| Utan áætlunar | 29 |
4.1 Uppbygging aðgerðaáætlunar
Mótvægisaðgerðir skiptast upp í fjögur kerfi byggð á skuldbindingarflokkum: Samfélagslosun, viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið), landnotkun (LULUCF) og þverlægar aðgerðir.
4.1.1 Samfélagslosun
Samfélagslosun (e. Effort Sharing Regulation – ESR), sem m.a. fellur til frá vegasamgöngum, smærri iðnaði, fiskiskipum, orkuframleiðslu, landbúnaði, kælimiðlum og úrgangi, telst á beina ábyrgð ríkja. Aðgerðir í þessum flokki eru auðkenndar með S-i.
Mynd 5: Samfélagslosun ársins 2025 skipt eftir flokkum aðgerðaáætlunar.
Samfélagslosun ársins 2025 var um 2794 þúsund tonna CO2-íg. samkvæmt bráðabirgðagögnum frá Umhverfis- og orkustofnun. Sjö málaflokkar í aðgerðaáætluninni falla undir samfélagslosun:
| S.1: Orkuvinnsla | Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við raforku- og varmavinnslu. |
| S.2: Smærri iðnaður | Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við bruna á jarðefnaeldsneyti í ýmsum smærri iðnaði. |
| S.3: Efnanotkun | Losun vegna kælimiðla í kælikerfum og annarrar efnanotkunar. |
| S.4: Landbúnaður | Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við ýmsa ferla í landbúnaði, bæði við búfjárhald, landnotkun og áburðarnotkun, og bruna jarðefnaeldsneytis við notkun tækja og vinnuvéla. |
| S.5: Ökutæki og innviðir | Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við eldsneytisbruna í ökutækjum. |
| S.6: Skip og hafnir | Losun gróðurhúsalofttegunda sem kemur til vegna bruna jarðefnaeldsneytis í skipum og bátum. Alþjóðasiglingar með farþega og vörur falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) og eru ekki taldar fram hér. |
| S.7: Úrgangsstjórnun | Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til vegna meðhöndlunar úrgangs á Íslandi, þ.e. metanlosun vegna urðunar úrgangs, losun vegna brennslu og losun vegna fráveitu. |
Yfirlit yfir fjölda og stöðu aðgerða undir skuldbindingaflokknum samfélagslosun má sjá í töflu 4 hér að neðan.
Tafla 4: Yfirlit yfir stöðu aðgerða í flokknum samfélagslosun í september 2026.
| Staða aðgerða | Fjöldi aðgerða |
| Í innleiðingu | 16 |
| Í framkvæmd | 19 |
| Lokið | 14 |
| Utan áætlunar | 14 |
4.1.2 Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir
Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (e. Emission Trading System - ETS) gegnir lykilhlutverki í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Undir ETS-kerfið fellur losun frá iðnaðarferlum í staðbundnum iðnaði, en einnig losun vegna nánast alls flugs innan EES, þar með talið innanlandsflugs. Þá voru stærri skip í sjóflutningum milli landa einnig innleidd í kerfið á árinu 2024. Aðgerðir í þessum flokki eru auðkenndar með V-i.
Þrír málaflokkar í aðgerðaáætluninni falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir:
| V.1: Staðbundinn iðnaður | Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður til við iðnað og orkuvinnslu á Íslandi sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS). Losunin er að mestu vegna ál-, kísil- og kísilmálmframleiðslu. Losun innan ETS-kerfisins frá íslenskum iðnaði var 1,68 milljón tonn CO2-íg. árið 2025. |
| V.2: Flug og flugvellir | Losun vegna flugs innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) yfir ákveðnum þröskuldi. Það á einnig við um innanlandsflug. Losun vegna flugs utan EES-svæðisins fellur alla jafna undir CORSIA-kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Losun innan ETS-kerfisins frá íslenskum flugrekendum var 601 þúsund tonns CO2-íg. árið 2025. |
| V.3: Sjóflutningar | Losun vegna sjóflutninga frá skipum að stærð 5000 brúttótonn eða stærri, til, frá eða á milli hafna innan EES, heyrir undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS). Losun innan ETS-kerfisins frá skipafélögum undir umsjón Íslands var 76 þúsund tonna CO2-íg. árið 2025. |
Yfirlit yfir fjölda og stöðu aðgerða undir skuldbindingaflokknum viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir má sjá í töflu 5 hér að neðan.
Tafla 5: Yfirlit yfir stöðu aðgerða í flokknum viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir í september 2026.
| Staða aðgerða | Fjöldi aðgerða |
| Í innleiðingu | 1 |
| Í framkvæmd | 2 |
| Lokið | 5 |
| Utan áætlunar | 4 |
4.1.3 Landnotkun (LULUCF)
Gögn og upplýsingar um losun og bindingu vegna landnotkunar eru háð meiri óvissu en gögn um aðrar uppsprettur, eins og t.d. losun frá jarðefnaeldsneyti og iðnaðarferlum, enda er um flókna vistfræðilega ferla að ræða og mikinn breytileika eftir aðstæðum. Undanfarin ár hefur verið unnið að bættri gagnaöflun til að tryggja fullnægjandi og samanburðarhæf gögn og heldur sú vinna áfram. Aðgerðir í þessum flokki eru auðkenndar með L-i.
Nettólosun ársins 2025 innan landnotkunar var um 6080 þúsund tonna CO2-íg. samkvæmt bráðabirgðagögnum frá Umhverfis- og orkustofnun. Einn málaflokkur í aðgerðaáætluninni fellur undir landnotkun:
| L.1: Landnotkun og skógrækt | Losun gróðurhúsalofttegunda, auk bindingar kolefnis, vegna landnotkunar eða breytingar á landnotkun. Losun og binding vegna landnotkunar skiptist milli fimm viðfangsefna, mólendis, votlendis, ræktarlands, byggðar og skógræktar, en aðgerðir í málaflokknum eru mótaðar á grundvelli þeirra kerfislægu umbreytinga sem stefna þarf að þvert á viðfangsefni málaflokksins. |
Yfirlit yfir fjölda og stöðu aðgerða undir skuldbindingaflokknum landnotkun má sjá í töflu 6 hér að neðan.
Tafla 6: Yfirlit yfir stöðu aðgerða í flokknum landnotkun í september 2026.
| Staða aðgerða | Fjöldi aðgerða |
| Í innleiðingu | 1 |
| Í framkvæmd | 8 |
| Lokið | 1 |
| Utan áætlunar | 4 |
4.1.4 Þverlægar aðgerðir
Aðgerðir sem heyra undir þverlæga flokka aðgerða skiptast í samfélagslega hvata og fjárhagslega hvata til umskipta. Aðgerðir í þessum flokki eru auðkenndar með Þ-i.
| Þ.1: Fjárhagslegir hvatar | Skýr útfærsla fjárhagslegra hvata er nauðsynleg skilvirkri innleiðingu loftslagsaðgerða. Innan málaflokksins eru ýmsir fjárhagslegir hvatar sem ýta undir fjárfestingar og nýsköpun atvinnulífs, sveitarfélaga og samfélagsins alls í þágu loftslagsmála. |
| Þ.2: Samfélagslegir hvatar | Grundvöllur skilvirkrar innleiðingar loftslagsaðgerða er þátttaka samfélagsins alls. Upplýsingar um loftslagsmál þurfa að vera öllum aðgengilegar. Menntun og fræðsla þarf að þróast með þeim umbreytingum sem eiga sér stað og nauðsynlegt er að áhersla stjórnvalda á loftslagsmál birtist í rannsóknum og allri þróun samfélagsins. |
Yfirlit yfir fjölda og stöðu aðgerða sem flokkast sem þverlægar aðgerðir má sjá í töflu 7 hér að neðan.
Tafla 7: Yfirlit yfir stöðu aðgerða sem flokkast sem þverlægar aðgerðir í september 2026.
| Staða aðgerða | Fjöldi aðgerða |
| Í innleiðingu | 1 |
| Í framkvæmd | 11 |
| Lokið | 7 |
| Utan áætlunar | 7 |
4.1.5 Aðgerðir tengdar Loftslags- og orkusjóði
Loftslags- og orkusjóður var stofnaður með sameiningu Loftslagssjóðs og Orkusjóðs 1. júlí 2024 og var fyrsta heila starfsár sjóðsins árið 2025[1]. Sjóðurinn er helsta stjórntæki stjórnvalda til að fjármagna loftslagsaðgerðir, ásamt aðgerðum er snúa að orkuskiptum og orkusparnaði. Styrkveitingar úr sjóðnum til loftslagstengdra verkefna námu alls 11,2 ma. kr. árið 2025 og er áætlaður loftslagsávinningur þeirra rúmlega 50 kílótonn CO2 ígilda á ársgrundvelli (tafla 8).
Alls voru þrjú köll vegna loftslagstengdra verkefna á árinu 2025, ásamt sífelluverkefnum sjóðsins um orkuskipti í samgöngum á landi. Þá hafa það sem af er ári 2026 verið þrjú köll til viðbótar ásamt sífelluverkefnum. Yfirlit yfir aðgerðir í aðgerðaáætlun sem tengjast úthlutunum úr Loftslags- og orkusjóði má sjá í töflu 9.
Tafla 8: Úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði fyrir árið 2025.
| Gerð / auglýsing | Fjöldi umsókna | Styrkupphæð (m.kr) | Þús. tonn CO2-íg á ári |
| Fólks- og sendibílar | 6724 | 5.681 | 15,1 |
| Hóp- og vörubifreiðar | 453 | 2.883 | 14,5 |
| Nytjahjól | 22 | 3.8 | - |
| Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita | 48 | 1.000 | 3,0 |
| Almenn auglýsing 2025 | 292 | 1.200 | 19,7 |
| Styrkir til loftslagsvænna tæknilausna í landbúnaði | 84 | 80 | 1,0 |
| Styrkir til nýsköpunarlausna fyrir ETS-iðnað | 10 | 400 | - |
Tafla 9: Aðgerðir í aðgerðaáætlun sem tengjast úthlutunum úr Loftslags- og orkusjóði
| Heiti aðgerðar | Staða |
| S.4.A.4: Stuðningur til bænda úr Loftslags- og orkusjóði | Í innleiðingu |
| S.4.A.2: Loftslagsvænn landbúnaður | Í framkvæmd |
| S.5.A.4: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús | Í framkvæmd |
| S.5.A.5: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði | Í framkvæmd |
| S.5.A.6: Styrkir til uppbyggingar hraðhleðslustöðva í þéttbýli og á þjóðvegakerfinu þar sem hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi | Í framkvæmd |
| S.5.B.2: Styrkir til kaupa á nytjahjólum | Í framkvæmd |
| S.5.C.2: Styrkir til kaupa á hreinorku fólks- og sendibílum | Í framkvæmd |
| S.5.C.3: Styrkir til kaupa á hreinorkuvöru- og hópbifreiðum | Í framkvæmd |
| S.1.B.6: Átak í nýtingu jarðhita til húshitunar á svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía | Lokið |
| S.4.B.2: Styðja við innleiðingu tækni til nákvæmnisdreifingar áburðar | Lokið |
| V.1.B.2: Fjárfestingar í nýsköpun og tækniþróun innan ETS-geirans | Lokið |
4.2 Mótvægisaðgerðir í innleiðingu
Aðgerðir í innleiðingu 2026-2027 eru aðgerðir sem stjórnvöld stefna á að komist til framkvæmda árin 2026-2027. Sumar aðgerðir eru áfram í innleiðingu frá síðustu skýrslu verkefnisstjórnar.
Við ákvörðun um hvaða aðgerðir fara í innleiðingu er markvisst leitað eftir nýjum hugmyndum að aðgerðum hjá ráðuneytum. Hugmyndir að aðgerðum eru síðan útfærðar nánar og fara í gegnum fjölþáttamat. Niðurstöður fjölþáttamatsins liggja til grundvallar vali á aðgerðum til innleiðingar. Aðgerðir sem metnar eru til þess fallnar að stuðla að samdrætti í losun eða teljast mikilvægur stuðningur við aðrar aðgerðir eru teknar til innleiðingar.
4.2.1 Samfélagslosun
S.1.B.1: Tilraunaverkefni um háhitavarmadælur í fiskiðnaði (URN) Greina tækifæri, áskoranir og fýsileika mögulegs tilraunaverkefnis með háhitavarmadælur tengdar við fiskimjölsverksmiðjur sem reknar eru á skerðanlegri raforku. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.1.B.2: Sjálfbært eldsneyti til orkuframleiðslu (URN) Frá og með 1. janúar 2030 verði gerð lögbundin krafa um að allt fljótandi eldsneyti sem notað er til orkuframleiðslu og afhent er inn á dreifikerfi raforku eða hitaveitna, þ.m.t. eldsneyti til varaafls, uppfylli sjálfbærniviðmið samkvæmt lögum nr. 40/2013, um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | 8.500 tonn CO2-íg. |
| Kostnaðar- og ábatamat | 27.500 kr./tonn CO2-íg. |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.2.C.1: Uppsprettugreining á losun gróðurhúsalofttegunda (URN) Samvinnuverkefni með sveitarfélögum um uppsprettugreiningu á losun gróðurhúsalofttegunda eftir sveitarfélögum. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.4.A.4: Stuðningur til bænda úr Loftslags- og orkusjóði (ATRN og URN) Loftslags- og orkusjóður mun veita styrki vegna fjárfestinga í búnaði og/eða vegna verkefna sem stuðla að loftslagsvænni nálgun í landbúnaði. Aðgerðin hefur verið útvíkkuð, hún hét áður „S.4.B.3: Stuðningur til bænda til aðgerða sem draga úr áburðarþörf“. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Liggur ekki fyrir að svo stöddu |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.4.A.9: Útskipti kælimiðla í kæligeymslum grænmetisbænda (URN) Garðyrkjubændur í útirækt notast við kæligeymslur til þess að auka geymsluþol framleiðslunnar áður en varan fer á markað. Í mörgum kæligeymslum eru kælikerfi með kælimiðlum sem hafa háan hnatthlýnunarmátt (F-gös) og hafa því slæm áhrif á loftslagið. Mikilvægt er að skipta út þessum efnum fyrir önnur efni sem hafa minni áhrif á loftslagið. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Liggur ekki fyrir að svo stöddu |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.5.A.3: Regluverk um einfaldari greiðsluleiðir á hreinorkuáfyllingarstöðvum (URN) Notendum hreinorkuökutækja tryggðar einfaldar greiðsluleiðir á almennum hleðslu- eða áfyllingarstöðvum, þ.e. með greiðslukortum eða snertilausum búnaði, án þess að þörf sé á áskrift. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.5.B.5: Almenningssamgöngur á hreinorku milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar (IRN) Fækka ferðum einkabíla og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna ferða milli höfuðborgarsvæðis og Keflavíkurflugvallar. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.5.B.6: Aukin upptaka deilihagkerfis í samgöngum (IRN) Greind verði staða og þróun deilihagkerfis í samgöngum, mótuð stefna og ráðist í aðgerðir til að stuðla að bættu umhverfi fyrir deilihagkerfi í samgöngum. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.5.C.6: Lagaheimild tryggð fyrir losunarlitlum eða losunarfríum svæðum (IRN) Með breytingum á lögum skal tryggð lagaheimild fyrir losunarlitlum eða losunarfríum svæðum (e. Low or Zero-emission Zones) á Íslandi. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.6.A.2: Forgangsröðun og uppbygging rafmagnshleðsluinnviða í höfnum (URN) Greindar verða hagkvæmar leiðir að því að koma upp rafmagnshleðsluinnviðum fyrir rafknúin skip í höfnum. Unnið verður að forgangsröðun hafna og aðgerðaáætlun fyrir framkvæmdir í höfnum. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.6.A.3: Forgangsröðun og uppbygging hreinorkuinnviða í höfnum (URN) Greindar verða hagkvæmar leiðir, forgangsröðun og framkvæmdaáætlun um uppbyggingu áfyllingarinnviða fyrir skip knúin endurnýjanlegum orkugjöfum (öðrum en rafmagni) í höfnum, t.a.m. grænu vetni, metanóli og ammóníaki. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.6.B.4: Samkomulag milli einstakra fyrirtækja í sjávarútvegi og stjórnvalda um samdrátt í eldsneytisnotkun (URN) Samkomulag stjórnvalda við einstaka fyrirtæki í sjávarútvegi miðar að samvinnu við loftslagsaðgerðir í sjávarútvegi og að ríkið hvetji fyrirtæki í sjávarútvegi til frekari samdráttar í eldsneytisnotkun í rekstri sínum um 50% árið 2030 miðað við árið 2005. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | 19.000 tonn CO2-íg. |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.6.B.10: Stuðningur við strandsiglingar í innanlandssiglingum (IRN) Ráðist verði í aðgerðir til að auka hlut strandflutninga í innanlandsflutningum og skapa rekstrarskilyrði sem styðja við tilfærslu vöruflutninga af vegum yfir á sjó. Í því skyni verði stuðlað að bættri samkeppnisstöðu reglubundinna strandsiglinga gagnvart landflutningum. Sjóflutningar eru almennt orkuhagkvæmari en landflutningar fyrir þungar og fyrirferðarmiklar vörur og geta jafnframt dregið úr álagi á vegakerfi og aukið umferðaröryggi. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.6.B.11: Orkuskipti smábáta með breytingum á núverandi flota (URN) Aðgerðin felur í sér stuðning við breytingar á bátum sem þegar eru í notkun yfir í rafmagns- og tengiltvinnlausnir, með það að markmiði að flýta innleiðingu orkuskipta í smábátaflotanum. Stuðningurinn felst í fjárhagslegum hvötum til raf- og tengiltvinnvæðingar smábáta. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | |
S.7.B.4: Innleiða bann við urðun lífræns úrgangs (URN) Lögfesta og innleiða bann við urðun á lífrænum úrgangi frá og með árinu 2028. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
S.7.B.6: Samvinnuverkefni um uppbyggingu brennslustöðva (URN) Samvinnuverkefni um uppbyggingu nauðsynlegra innviða svo árleg brennsla á 100-140 þúsundum tonna af úrgangi með orkunýtingu og kolefnisföngun verði möguleg. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | 0 þúsunda tonn CO2-íg. |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
4.2.2 Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir
S.7.B.6: Samvinnuverkefni um uppbyggingu brennslustöðva (URN) Samvinnuverkefni um uppbyggingu nauðsynlegra innviða svo árleg brennsla á 100-140 þúsundum tonna af úrgangi með orkunýtingu og kolefnisföngun verði möguleg. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | 75 þúsunda tonna CO2-íg. |
| Kostnaðar- og ábatamat | Mat í vinnslu |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
4.2.3 Landnotkun (LULUCF)
L.1.D.1: Vernd og viðhald kolefnisríkra vistkerfa og gróðurs við skipulagsgerð (FRN) Aðgerðin felur í sér að fyrir liggi leiðbeiningar um hvernig vernda megi kolefnisrík vistkerfi, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis með skipulagsgerð. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
4.2.4 Þverlægar aðgerðir
Þ.2.C.3: Endurskoðun gátlista heilsueflandi samfélags (HRN) Endurskoða gátlista heilsueflandi samfélags á vegum embættis landlæknis m.t.t. loftslagsáherslna, velsældarhagkerfis og sjálfbærni, til að styðja markvisst við sveitarfélög og tengda aðila til að fara í viðeigandi aðgerðir og við mat á framvindu. Fjölþáttamat | |
| Árlegur samdráttur í losun árið 2030 | Ekki metið |
| Kostnaðar- og ábatamat | Ekki metið |
| Útfærsla aðgerðar | |
| Auðframkvæmanleiki | |
| Umhverfisáhrif | |
| Samfélagsáhrif | Ekki metið að svo stöddu |
4.3 Mótvægisaðgerðir í framkvæmd
Aðgerðir í framkvæmd eru 40 talsins. Hér er í fyrsta sinn gerð tilraun til að meta framgang aðgerða með árangursmælikvörðum. Fyrir aðgerðir sem munu framvegis koma til framkvæmda munu markmið og mælikvarðar verða skilgreindir sem hluti af fjölþáttamati aðgerða í innleiðingu.
4.3.1 Samfélagslosun
S.2.A.1: Reynsluverkefni um losunarfría framkvæmd hjá Vegagerðinni (IRN)
Framkvæmd valin í reynsluverkefni út frá fyrirliggjandi orkuinnviðum og verkþáttum til að leggja grunn að prófun lágkolefnislausna í framkvæmdum Vegagerðarinnar.
Markmið: Velja og innleiða tilraunaverkefni í samgöngukerfinu til að prófa og meta lágkolefnislausnir á framkvæmdasvæðum.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Undirbúningur. 2) Val á verkefni. 3) Framkvæmd hafin. 4) Mat á árangri.
S.2.A.5: Styðja við innleiðingu aðgerða í vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 (FRN)
Framfylgja stefnu og aðgerðaáætlun um vistvæna mannvirkjagerð, sem unnin var á vegum verkefnisins Byggjum grænni framtíð, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs.
Markmið: Tryggja að allar aðgerðir sem lagðar eru fram í vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 verði innleiddar og lokið samkvæmt áætlun.
Upphaf/endir: 2022-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarði: Fjöldi aðgerða í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð sem er lokið (af 90 aðgerðum).
S.3.A.8: Stuðningur við stofnun námsbrautar í Tækniskólanum í kæli- og frystivélavirkjun (MRN)
Að stjórnvöld styðji opinberlega við hugmyndir um að kæli- og frystivélavirkjun verði gert hærra undir höfði hér á landi með sérstakri námsbraut.
Markmið: Að stofnuð verði sérstök námsbraut í kæli- og frystivélavirkjun á Íslandi.
Upphaf/endir: 2025-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Undirbúningur námsbrautar. 2) Stofnun námsbrautar. 3) Kennsla hefst.
S.4.A.2: Loftslagsvænn landbúnaður (ATRN)
„Loftslagsvænn landbúnaður“ (LOL) verkefnið verður útvíkkað og nýir þátttakendur munu bætast við. Haldið verður áfram að efla fræðslu um náttúruvernd, loftslags- og umhverfismál til að aðstoða þátttökubændur við að setja sér markmið og fara í aðgerðir sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða binda kolefni og um leið skila hagkvæmari búrekstri. Nýnæmi er í því að hluti fræðslustarfsins verður nú sniðinn að styrkjum úr Loftslags- og orkusjóði.
Markmið: Styðja við bændur í að móta leiðir í náttúruvernd, loftslags- og umhverfismálum með sérstöku átaksverkefni til tveggja ára.
Upphaf/endir: 2026-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára sem verkefnið er í gangi.
S.4.A.3: Undirbúa hagkvæmt styrkjaumhverfi fyrir landbúnað (ATRN)
Þróun og prófun heildstæðs kerfis sem hvetur bændur til hagkvæmari og loftslagsvænni búskaparhátta og verður tilbúið til innleiðingar árið 2027.
Markmið: Að móta heildstætt stuðningskerfi fyrir landbúnað sem styður við loftslagsmarkmið Íslands, sjálfbæra nýtingu og fjölbreytni.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Skipun starfshóps. 2) Undirbúningur. 3) Samráð. 4.) Samþykkt tillaga til innleiðingar.
S.4.C.2: Rannsókn á geymslu búfjáráburðar (ATRN)
Gerð verður rannsókn á þætti geymslu búfjáráburðar í losun frá landbúnaði og greining á leiðum til að draga úr losun við geymslu.
Markmið: Framkvæma rannsókn á hauggeymslum til að bæta gögn um losun vegna geymslu búfjáráburðar.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Samningur um rannsókn gerður. 2) Rannsókn á geymslu búfjáráburðar á kúabúum framkvæmd. 3) Rannsókn á geymslu búfjáráburðar á sauðfjárbúum framkvæmd. 4) Niðurstöður birtar.
S.5.A.1: Innviðaáætlun um uppbyggingu á skilvirku neti hreinorkuáfyllingarstöðva (IRN)
Innleiðing á Alternative Fuels Infrastructure Regulation (AFIR), Evrópureglugerð sem miðar að því að styðja við uppbyggingu innviða fyrir óhefðbundna orkugjafa í samgöngum. Regluverkið skal tryggja skilvirkt net hreinorkuáfyllingarstöðva sem og þjónustustig afhendingar hreinorkukosta.
Markmið: Innleiða AFIR-reglugerð sem miðar að því að styðja við uppbyggingu innviða fyrir óhefðbundna orkugjafa í samgöngum.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Innleiðing AFIR-reglugerðar.
S.5.A.2: Fjárstuðningur til uppbyggingar á skilvirku neti hreinorkuáfyllingarstöðva (URN)
Fjárhagslegur stuðningur við uppbyggingu hreinorkuáfyllingarstöðva fyrir vistvæn ökutæki um land allt, sér í lagi flóknar og umfangsmiklar fjárfestingar og tengingar við flutningskerfin. Aðgerðinni er ætlað að styrkja net hleðslustöðva hringinn í kringum landið þannig að hvergi finnist þéttbýlisstaður á Íslandi án hraðhleðslustöðvar og hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva.
Markmið: Komið verði upp skilvirku neti hreinorkuáfyllingarstöðva um allt land.
Upphaf/endir: 2016-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2016-2026 (11 ár).
S.5.A.4: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús (URN)
Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.
Markmið: Að styrkja innviði fyrir rafbílavæðingu með styrkjum úr Loftslags- og orkusjóði.
Upphaf/endir: 2026-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2026-2027 (tvö ár).
S.5.A.5: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði (URN)
Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.
Markmið: Að styrkja innviði fyrir rafbílavæðingu með styrkjum úr Loftslags- og orkusjóði.
Upphaf/endir: 2026-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2026-2027 (tvö ár).
S.5.A.6: Styrkir til uppbyggingar hraðhleðslustöðva í þéttbýli og á þjóðvegakerfinu þar sem hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi (URN)
Styrkir til uppbyggingar hraðhleðslustöðva í þéttbýli og á þjóðvegakerfinu þar sem hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.
Markmið: Að hraða styrkingu nets hleðslustöðva hringinn í kringum landið með styrkjum úr Loftslags- og orkusjóði þannig að hvergi finnist þéttbýlisstaður á Íslandi án hraðhleðslustöðvar og hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva.
Upphaf/endir: 2026-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2026-2027 (tvö ár).
S.5.B.2: Styrkir til kaupa á nytjahjólum (URN)
Loftslags- og orkusjóður styrkir kaup á nytjahjólum, með eða án rafmagns. Um er að ræða hjól sem eru sérstaklega hönnuð til þess að flytja farm og farþega, eru dýr í innkaupum en geta nýst með sams konar hætti og einkabílar og þannig dregið úr akstri og brennslu jarðefnaeldsneytis.
Markmið: Styrkja kaup á nytjahjólum með styrkveitingum úr Loftslags- og orkusjóði 2025-2026.
Upphaf/endir: 2025-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2025-2026 (tvö ár).
S.5.B.3: Uppbygging almenningssamgöngukerfis og hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu (IRN)
Ríkið og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vinna að uppbyggingu almenningssamgöngukerfis og hjóla- og göngustíga í samræmi við sáttmála um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu.
Markmið: Hlutfall ferða hjólandi, gangandi og með almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu verði 28% árið 2030.
Upphaf/endir: 2019-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Hlutfall ferða með almenningssamgöngum (%) á höfuðborgarsvæðinu eykst í samræmi við mælikvarða samgönguáætlunar frá 24% árið 2019 í 28% árið 2030.
S.5.B.4: Uppbygging almenningssamgöngukerfis og hjóla- og göngustíga utan höfuðborgarsvæðisins (IRN)
Ríkið styður við rekstur almenningssamgangna á hreinorku og við virka ferðamáta með fjárveitingum og bættu lagaumhverfi, en tryggja þarf viðeigandi tíðni í heildstæðara, skilvirkara og þjónustumiðaðra leiðakerfi um land allt.
Markmið: Hlutfall ferða hjólandi, gangandi og með almenningssamgöngum utan höfuðborgarsvæðisins verði 28% árið 2030.
Upphaf/endir: 2019-2030
Staða aðgerðar:
25/28
Árangursmælikvarðar: Hlutfall ferða með almenningssamgöngum (%) utan höfuðborgarsvæðisins eykst í samræmi við mælikvarða samgönguáætlunar frá 20% árið 2019 í 28% árið 2030.
S.5.B.7: Gagnvirk upplýsingaveita almenningssamgangna, göngu- og hjólaleiða (IRN)
Mótuð verði og innleidd gagnvirk upplýsingaveita fyrir heildstætt almenningssamgöngukerfi, göngu- og hjólaleiðir.
Markmið: Koma upp gagnvirkri upplýsingaveitu fyrir almenningssamgöngukerfi, göngu- og hjólaleiðir.
Upphaf/endir: 2024-2028
Árangursmælikvarðar: 1) Upplýsingar um almenningssamgöngur á Íslandi eru aðgengilegar í Klappinu auk korta- og leiðsögukerfum, svo sem Google Maps og Maps. 2) Vettvangur einnar samræmdrar upplýsingaveitu ákvarðaður. 3) Upplýsingar um almenningssamgöngur birtar í samræmdri stafrænni upplýsingaveitu. 4) Upplýsingar um helstu hjóla- og gönguleiðir aðgengilegar í upplýsingaveitunni.
S.5.C.2: Styrkir til kaupa á hreinorku fólks- og sendibílum (URN)
Styrkir fyrir kaupum hreinorkuökutækja sem kosta undir 10 m.kr. verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði og lækki stuðningurinn í þrepum í takt við tækni- og verðþróun á markaði.
Markmið: Styrkja kaup á hreinorkuökutækjum (fólks- og sendibílar) með styrkveitingum úr Loftslags- og orkusjóði 2024-2027.
Upphaf/endir: 2024-2027
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2024-2027 (fjögur ár).
S.5.C.3: Styrkir til kaupa á hreinorkuvöru- og hópbifreiðum (URN)
Styrkir fyrir kaupum á hópferðabifreiðum sem ganga fyrir hreinorku verða veittir úr Loftslags- og orkusjóði að undangenginni auglýsingu.
Markmið: Styrkja kaup á hreinorkuökutækjum (vöru- og hópbifreiðir) með styrkveitingum úr Loftslags- og orkusjóði 2024-2028.
Upphaf/endir: 2024-2028
Árangursmælikvarðar: Fjöldi ára þar sem styrkir voru veittir á tímabilinu 2024-2028 (fimm ár).
S.6.A.1: Uppbygging landtenginga í höfnum (IRN)
Greindar verða hagkvæmar leiðir að því að koma upp rafmagnshleðsluinnviðum fyrir rafknúin skip í höfnum. Unnið verður að forgangsröðun hafna og aðgerðaáætlun fyrir framkvæmdir í höfnum.
Markmið: Fjölga höfnum með rafmagnshleðsluinnviðum
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
1. Innleiðing AFIR-reglugerðar sem setur kröfu um rafmagnstengingar í stærri höfnum frá 2030. 2. Innleiðing Fuel EU Marine sem gerir kröfu á að séu landtengingar tiltækar skuli stærri skip (5000 brúttótonn) tengjast frá 2030.
S.7.B.1: Eftirfylgni með lögum um flokkun úrgangsstrauma (URN)
Framfylgja lögum um skyldu til flokkunar úrgangs til að hámarka verðmætasköpun viðkomandi strauma og lágmarka myndun blandaðs úrgangs.
Markmið: Auka hlutfall heimilisúrgangs sem fer til endurvinnslu, þ.e. a.m.k. 50% frá og með árinu 2020; 55% frá og með 2025; 60% frá og með 2030; 65% frá og með 2035.
Upphaf/endir: 2024-2035
Árangursmælikvarðar: Hlutfall heimilisúrgangs sem fer til endurvinnslu (tölur frá 2024).
Aðgerðin er jafnframt í eftirfylgni á https://urgangur.is/maelabord/
4.3.2 Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið)
V.2.A.3: Bætt umferðarstjórnun við flugtök og lendingar
Innleiðing Isavia ohf. á flugvallarsamvinnuákvarðanatöku (e. Airport Collaborative Decision Making, A-CDM) og samræmdri brottfararstjórnun (e. Coordination of Arrival and Departure Management, CADM) á Keflavíkurflugvelli.
Markmið: Að bæta stjórnun og ákvarðanatökur við komur og brottfarir flugvéla og nýta þannig flugvélaeldsneyti betur og minnka losun CO2 með því að innleiða CADM og A-CDM.
Upphaf/endir: 2024-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) CADM innleitt af Isavia á Keflavíkurflugvelli. 2) A-CDM innleitt af Isavia á Keflavíkurflugvelli.
V.2.B.4: Tryggt framboð á sjálfbæru flugvélaeldsneyti
Skipaður verður vinnuhópur sem kortleggur leiðir til að tryggja nægt aðgengi að vistvænum orkugjöfum, þ.m.t. með fýsileikakönnun innlendrar framleiðslu og hvatakerfum.
Markmið: Að Ísland marki sér skýra sýn um framtíðarstefnu í eldsneytismálum og aðgengi að sjálfbæru flugvélaeldsneyti (SAF) með útgáfu skýrslu vinnuhóps með tillögum.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Skýrsla vinnuhóps með tillögum um framtíðarstefnu í eldsneytismálum og aðgengi að sjálfbæru flugvélaeldsneyti.
4.3.3 Landnotkun (LULUCF)
L.1.A.1: Framkvæmdaáætlun um bætta landnýtingu í þágu loftslagsmála á jörðum í eigu ríkisins (URN)
Aðgerðin felur í sér að greina tækifæri til bættrar landnýtingar í þágu loftslagsmála og líffræðilegrar fjölbreytni á jörðum í eigu ríkisins og móta heildstæða framkvæmdaáætlun með skýrum markmiðum og forgangsröðun aðgerða. Ríkissjóður Íslands á tæplega 430 jarðir og með þessari aðgerð gengur ríkið á undan með góðu fordæmi um sjálfbæra landnýtingu á jörðum í eigu ríkisins.
Markmið: Að móta heildstæða framkvæmdaáætlun um bætta landnýtingu á jörðum í eigu ríkisins í þágu loftslagsmála og verndar líffræðilegrar fjölbreytni**.**
Upphaf/endir: 2024-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Heildstæð framkvæmdaáætlun lögð fram fyrir hvert ár 2026-2030.
L.1.A.2: Endurskoðun og styrking stuðningskerfis ríkisins í landgræðslu og skógrækt á einkalöndum (URN)
Þátttaka einstaklinga, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana í undirbúningi og framkvæmd aðgerða í landgræðslu og skógrækt er lykilatriði til að ná markmiðum í loftslagsmálum og markmiðum líffræðilegrar fjölbreytni í tengslum við landnotkun. Því er mikilvægt að endurskoða og efla stuðningskerfi ríkisins þannig að það verði enn skilvirkara hvað varðar fjármögnun aðgerða á einkalöndum. Jafnframt þarf að skýra hvernig Land og skógur nálgast samfélagið með virkum hætti, m.a. með miðlun, ráðgjöf og hvatningu til þátttöku í aðgerðum.
Markmið: Að endurskoða og styrkja stuðningskerfi ríkisins fyrir aðgerðir í landgræðslu og skógrækt á einkalöndum þannig að það styðji enn betur við loftslagsmarkmið stjórnvalda, vernd líffræðilegrar fjölbreytni og eflingu byggða.
Upphaf/endir: 2024-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Ný reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt hefur verið birt. 2) Nýir hvatar, sem styðja enn betur við vernd og endurheimt kolefnisríkra vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu, hafa verið þróaðir og innleiddir í stuðningskerfið. 3) Nýtt hvata- og stuðningskerfi í landgræðslu og skógrækt hefur verið innleitt.
L.1.A.4: Framkvæmd umbótaáætlunar um bætt gögn og upplýsingar í losunarbókhaldi Íslands (URN)
Land og skógur hefur lagt fram þriggja ára umbótaáætlun um bætt gögn og upplýsingar er snúa að losun frá landi. Aðgerðin felst í eftirfylgni á framkvæmd umbótaaðgerðar og tryggja þannig hraða innleiðingu umbóta í losunarbókhaldi Íslands.
Markmið: Að fylgja eftir þriggja ára umbótaáætlun um bætt gögn og upplýsingar um losun frá landnotkun.
Upphaf/endir: 2025-2028
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Markmið fyrir hvert ár uppfyllt 2025-2027 (þrjú ár).
L.1.B.1: Endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisins (URN)
Aðgerðin felur í sér markvissa endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisins í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisins. Á hluta ríkisjarða er framræst votlendi sem ekki er í nýtingu og þar felast veruleg tækifæri til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta ástand vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni.
Markmið: 635 ha af votlendi á jörðum í eigu ríkisins endurheimtir á árunum 2026 og 2027.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Votlendi endurheimt (ha) af 635 ha markmiði fyrir lok árs 2027. Endurheimt hefst í september 2026 að fengnum framkvæmdaleyfum, undirbúningi, vöktun og kortlagningu sem hefur farið fram á fimm ríkisjörðum.
ATH. Aðgerðin felst einungis í endurheimt til samræmis við framkvæmdaáætlun ríkisins 2026-2027 en ekki annarrar endurheimtar á vegum ríkisins eða annarra.
L.1.B.2: Mótun aðferðafræði fyrir framleiðslu vottaðra kolefniseininga með endurheimt votlendis (URN)
Aðgerðin felst í að þróa verklag og aðferðafræði fyrir endurheimt votlendis sem uppfyllir viðeigandi reglur og staðla fyrir skráningu og vottun samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda frá landi sem hágæðakolefniseiningar. Jafnframt felur aðgerðin í sér framkvæmd eins prufuverkefnis í endurheimt votlendis samkvæmt aðferðafræðinni. Aðgerðin er hugsuð sem hvatning fyrir einkaaðila, fyrirtæki og stofnanir til að ráðast í endurheimt votlendis sem uppfyllir kröfur um vottuð verkefni.
Markmið: Að þróa og gefa út aðferðafræði fyrir endurheimt votlendis sem uppfyllir kröfur um skráningu og vottun kolefniseininga.
Upphaf/endir: 2023-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Þróun aðferðafræði. 2) Opið samráð. 3) Vottunarferli. 4) Birting
L.1.C.1: Endurheimt birkiskóga á jörðum í eigu ríkisins (URN)
Aðgerðin felur í sér endurheimt birkiskóga á jörðum í eigu ríkisins í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisins. Náttúrulegir birkiskógar þekja um 1,5% af landsvæði Íslands en veruleg tækifæri eru til að auka útbreiðslu þeirra og þar með kolefnisbindingu. Til þess þarf markvissar endurheimtaraðgerðir, m.a. með friðun svæða og áætlun um aðgerðir á borð við gróðursetningu og eflingu fræseta, í samræmi við aðferðafræði skógræktar á landslagsheildum (e. Forest Landscape Restoration) og með vistkerfisnálgun að leiðarljósi.
Markmið: 400 ha af birkiskógum á jörðum í eigu ríkisins endurheimtir á árunum 2026 og 2027.
Upphaf/endir: 2025-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Birkiskógar endurheimtir (ha) af 400 ha markmiði fyrir lok árs 2027.
ATH. Aðgerðin felst einungis í endurheimt til samræmis við framkvæmdaáætlun ríkisins 2026-2027 en ekki annarrar endurheimtar á vegum ríkisins eða annarra.
L.1.C.6: Aukin þekking og sjálfbær notkun viðarafurða (URN)
Aðgerðin felur í sér áætlanagerð um hvernig megi auka hvata og þekkingu um nýtingu og varðveislu kolefnis í viðarafurðum úr íslenskum skógum á sjálfbæran hátt.
Markmið: Að auka bindingu kolefnis í viðarafurðum um 160% árið 2030 miðað við árið 2025.
Upphaf/endir: 2025-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Aukning í kolefnisbindingu í viðarafurðum (%), miðað við 2025.
L.1.D.2: Greining á stjórntækjum til verndunar kolefnisríkra vistkerfa (URN)
Aðgerðin felur í sér að kortleggja og greina stjórntæki sem vinna að aukinni verndun kolefnisríkra vistkerfa.
Markmið: Að greina stjórntæki til að sporna við þurrkun votlendis.
Upphaf/endir: 2026-2028
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Greining á stjórntækjum. 2) Tillögur að útbótum.
1.3.4 Þverlægar aðgerðir
Þ.1.A.8: Sjálfbærar fjárfestingar lífeyrissjóða (FJR)
Breyta lögum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða til að liðka fyrir sjálfbærum fjárfestingum þeirra.
Markmið: Breyta lögum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða til að liðka fyrir sjálfbærum fjárfestingum þeirra.
Upphaf/endir: 2021-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Drög í samráðsgátt. 2) Lagasetning.
Þ.1.C.1: Sýnileiki kolefnisspors ríkisins (FJR)
Aðgerðin felur í sér markvissari gagnasöfnun og framsetningu kolefnisspors ríkisrekstrar á sem fjölbreyttastan hátt hvað varðar rekstur, þjónustuveitingu, innkaup og rekstur húsnæðis.
Markmið: Draga úr kolefnisspori ríkisins í gegnum markvissa gagnaframsetningu og kynningu**.**
Upphaf/endir: 2021-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Vöruhús gagna undirbúið hjá Fjársýslu ríkisins. 2) Umhverfis- og orkustofnun klárar mælaborð.
Þ.2.A.4: Fjölgun loftslagsvænna skóla gegnum Grænfánaverkefni Landverndar (MRN)
Lögð er áhersla á að allir skólar verði loftslagsvænir og þar gegnir Grænfánaverkefni Landverndar lykilhlutverki á öllum skólastigum sem og önnur verkefni sem styðja við loftslagsvæna skóla á borð við UNESCO-skólaverkefni Félags Sameinuðu þjóðanna.
Markmið: Að efla menntun til sjálfbærni og menntun á sviði umhverfis- og loftslagsmála á öllum skólastigum með samstarfssamningi við Landvernd um verkefnið Skólar á grænni grein (Grænfánaverkefnið).
Upphaf/endir: 2022-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Samstarfssamningur í gildi (fimm ár).
Þ.2.B.1: Endurskoðun á sjóðakerfi og skipulag Rannís með það að markmiði að auka vægi loftslagsmála og fjölga sjálfbærum lausnum (MNH)
Unnið er að endurskoðun sjóðakerfa og skipulags Rannís. Aðgerðin felst í því að rýna breytingar á sjóðakerfinu og tryggja að það virki sem hvati fyrir sjálfbærar lausnir og loftslagsverkefni í nýsköpun og rannsóknum.
Markmið: Uppfært sjóðaumhverfi þar sem haldið er utan um tölfræði styrktra verkefna á sviði loftslags og sjálfbærni og að gerð sé grein fyrir áhrifum verkefna á þennan málaflokk í umsókn.
Upphaf/endir: 2021-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun lagt fyrir þing. 2) Frumvarp samþykkt. 3) Innleiðingu nýs sjóðakerfis í samræmi við frumvarp lokið.
Þ.2.C.1: Miðlun vegna loftslagsmála (URN)
Miðla upplýsingum um loftslagsmál á aðgengilegan og áreiðanlegan hátt, byggt á traustum gögnum.
Markmið: Miðla með skýrum hætti upplýsingum um stöðu og árangur í loftslagsmálum á CO2.is.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Aðgerðaáætlun birt á CO2.is. 2) Aðlögunaráætlun birt á CO2.is. 3) Mælikvarðar um framgang mótvægisaðgerða í framkvæmd birtir á CO2.is. 4) Mælikvarðar um framgang aðlögunaraðgerða í framkvæmd birtir á CO2.is.
Þ.2.C.2: Fjölgun loftslagsvænna lýðheilsuvísa (HRN)
Kortlagning á loftslagstengdum lýðheilsuvísum. Meta hvaða gögn eru tiltæk og hvaða gögn vantar til að skilgreina og birta viðeigandi vísa.
Markmið: Markviss kortlagning á loftslagstengdum lýðheilsuvísum ásamt áætlun um innleiðingu.
Upphaf/endir: 2023-2030
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Undirbúningur. 2) Kortlagning. 3) Innleiðingaráætlun.
Þ.2.D.1: Endurskoða loftslagsstefnu Stjórnarráðsins (URN)
Loftslagsstefna Stjórnarráðsins var samþykkt árið 2019 og gildir til ársins 2030. Endurskoða þarf loftslagsstefnuna svo hún endurspegli stöðu loftslagsmála og markmið og tryggja að hún sé samþætt við aðrar stefnur og vottanir, t.d. Græn skref.
Markmið: Uppfærð loftslagsstefna Stjórnarráðsins.
Upphaf/endir: 2025-2028
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Undirbúningur. 2) Rýni. 3) Tillögur að breytingum. 4) Innleiðing á breytingum. 5) Uppfærð loftslagsstefna samþykkt.
Þ.2.D.4: Samstarf ríkis og sveitarfélaga um kolefnishlutleysi (URN)
Móta og skýra áframhaldandi samstarf ríkis og sveitarfélaga með vísan til loftslagsmarkmiða Íslands.
Markmið: Vinna að samtengdum loftslagsmarkmiðum ríkis og sveitarfélaga með samstarfssamningi.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Samstarfssamningur milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis í gildi (þrjú ár).
Þ.2.D.5: Skipulagsgerð sem styður við markmið um kolefnishlutleysi (FRN)
Unnið verði að leiðbeiningum um hvernig hægt er að nýta skipulagsgerð til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis.
Markmið: Setja fram leiðbeiningar um hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis við skipulagsgerð.
Upphaf/endir: 2024-2027
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Vinnsludrög að leiðbeiningum um loftslagsmiðað skipulag, mótvægi og aðlögun liggja fyrir. 2) Rýni og endurbætur. 3) Leiðbeiningar útgefnar á vef.
Þ.2.E.1: Samfélagsleg áhrif loftslagsaðgerða (URN)
Móta leiðbeiningar um mat samfélagslegra áhrifa aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum og ferli til að aðlaga aðgerðir að markmiðum um réttlát græn umskipti.
Markmið: Að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum taki mið af samfélagslegum áhrifum og stuðli að réttlátum grænum umskiptum.
Upphaf/endir: 2024-2026
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: 1) Sérfræðingum falið að vinna að gerð leiðbeininga við mat á samfélagslegum áhrifum aðgerða í loftslagsmálum. 2) Drög að leiðbeiningum liggja fyrir. 3) Leiðbeiningar innleiddar í fjölþáttamat loftslagsaðgerða.
Þ.2.E.3: Græni loftslagssjóðurinn (UTN)
Fjárhagslegt framlag í sérstaka sjóði UNFCCC með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í lág- og millitekjuríkjum og styðja við viðbrögð þróunarríkja vegna loftslagsvár.
Markmið: Stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í lág- og millitekjuríkjum með þátttöku í loftslagssjóðum UNFCCC.
Upphaf/endir: 2024-2028
Staða aðgerðar:
Árangursmælikvarðar: Stuðningur til þróunarríkja vegna loftslagsvár í gegnum sjóði UNFCCC á tímabilinu 2024-2028 (fimm ár).
4.4 Mótvægisaðgerðum sem er lokið
Síðan uppfærð aðgerðaáætlun var kynnt 2024 hefur 27 aðgerðum verið lokið.
Það hefur falið í sér innleiðingu á fjórum reglugerðum, fjórum lagabreytingum og samþykkt á einu nýju frumvarpi. Þá var farið í innleiðingu á uppfærðu ETS-kerfi. Farið var í skattlagningu á F-gösum og breytingar gerðar á útreikningi bifreiðahlunninda auk hækkunar kolefnisgjalds.
Leiðbeiningar voru birtar fyrir opinber innkaup á búnaði sem inniheldur kælimiðla, auk þess sem endurskoðaðar ráðleggingar um mataræði voru gefnar út. Þá voru grunnvörður tengdar loftslagsvá, loftslagsbreytingum og sjálfbærnimálum innleiddar í aðalnámskrá grunnskóla í nóvember 2024.
Þriggja ára umbótaáætlun um bætt gögn og upplýsingar fyrir losunarbókhald Íslands sem snýr að losun frá landnotkun var birt. Greining á ávinningi regluverks um strandveiði var framkvæmd auk rannsóknar á metanlosun búfjár. Þá voru orkunýtnari flugferlar innleiddir af Isavia.
Starfsreglur Loftslags- og orkusjóðs voru endurskoðaðar. Sjóðurinn styrkti 62 verkefni sem tengjast aðgerðum í aðgerðaáætlun um jarðhitaleit, nákvæmnisdreifingu áburðar og nýsköpunarverkefni sem geta dregið úr losun frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins.
4.4.1 Samfélagslosun
S.1.B.3: Einföldun á leyfisveitingarferlum í þágu orkuskipta (URN) Endurskoðun stofnanaskipulags á sviði umhverfis- og orkumála samhliða greiningu og endurhönnun leyfisveitingarferla og kortlagning á mögulegum tækifærum til umbóta er lykilatriði í að hraða verkefnum og framkvæmdum í þágu orkuskipta. Markmið: Endurskoða og einfalda leyfisveitingarferla á sviði umhverfis- og orkumála með það að markmiði að stytta afgreiðslutíma, draga úr flöskuhálsum og auka gagnsæi fyrir hraðari uppbyggingu. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem felur í sér breytingar á 12 lagabálkum til einföldunar regluverks og samræmingar leyfisferla var samþykkt á Alþingi í mars 2026. Markmið breytinganna er að stytta ferla, fækka afgreiðslustöðum og auka skilvirkni í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála án þess að slá af kröfunni um almenningssamráð og vandaða málsmeðferð. |
S.1.B.6: Átak í nýtingu jarðhita til húshitunar á svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía (URN) Aukinn kraftur settur í jarðhitaleit og nýtingu fyrir rafkyntar veitur til að fasa út jarðefnaeldsneyti í varaafli. Greining og útfærsla verði unnin með hagaðilum. Markmið: Stuðningur við nýtingu jarðhita til almennrar húshitunar á svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía með styrkveitingum til jarðhitaleitar. Upphaf/endir: 2023-2026 |
| Átaksverkefninu Jarðhiti jafnar leikinn var ýtt úr vör vorið 2025 og var ákveðið að ráðstafa 1 ma.kr. í sérstakt jarðhitaleitarátak árin 2025-2028, á svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía til húshitunar. Loftslags- og orkusjóði bárust 48 umsóknir um styrk vegna jarðhitaleitar í öllum landshlutum. Þar af hlutu 18 þeirra styrki sem námu samtals 1.035 m.kr. Væntur ávinningur af raforkusparnaði er á bilinu 80-120 GWst á ári eða 2-3 ma.kr sé miðað við markaðsverð raforku. |
S.3.A.1: Stjórnvöld setji skýrar vistvænar kröfur við innkaup kælimiðla (FJR) Útbúin verði stöðluð kröfulýsing varðandi kaup stjórnvalda á búnaði sem inniheldur kælimiðla svo tryggja megi að umhverfisskilyrði séu uppfyllt. Markmið: Birta leiðbeiningar með staðlaðri kröfulýsingu til að stuðla að því að innkaup hins opinbera innihaldi einungis vistvænustu kælimiðla í boði. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Leiðbeiningar með staðlaðri kröfulýsingu varðandi kaup stjórnvalda á búnaði sem inniheldur kælimiðla hafa verið unnar. |
S.3.A.2: Reglugerð um hámarksmagn innfluttra F-gasa (URN) Aðgerðin felur í sér að draga úr losun tiltekinna flúoraðra gróðurhúsalofttegunda (F-gasa) með setningu reglugerðar um hámarksmagn innfluttra vetnisflúorkolefna. Markmið: Draga úr heildarhnatthlýnunarmætti innfluttra kælimiðla um 94% árið 2036 (miðað við 271 kt. CO2-íg.). Upphaf/endir: 2019-2026 |
| Breytingar á reglugerð um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir (nr. 1066/2019) tóku gildi 1. janúar 2024 með uppfærðum viðaukum sem gera ráð fyrir þrepaskiptri niðurfösun á hámarksmagni innfluttra vetnisflúorkolefna og að heildarhnatthlýnunarmáttur dragist saman um 94% árið 2036. |
S.3.A.3: Skattlagning á innflutning á F-gösum (FJR) Aðgerðin felur í sér að hraða útskiptingu flúoraðra gróðurhúsalofttegunda (F-gasa) hér á landi með því að skattleggja innflutning þeirra eftir hnatthlýnunarmætti. Markmið: Að draga úr innflutningi á F-gösum með skattlagningu. Upphaf/endir: 2020-2026 |
| Sérstakur skattur hefur verið settur á innflutning á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum (F-gösum) sem má finna í III. kafla laga nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta. Fjárhæð skattsins er háð hnatthlýnunarmætti lofttegundarinnar sem um ræðir. |
S.4.B.2: Styðja við innleiðingu tækni til nákvæmnisdreifingar áburðar (ATRN) Efla tæknilausnir sem bæta nýtingu áburðar, t.d. með nákvæmnisdreifibúnaði, með styrkjum úr Loftslags- og orkusjóði til að draga úr losun frá landbúnaði. Markmið: Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við sjálfbæra framleiðsluhætti í landbúnaði með innleiðingu tæknilausna sem bæta áburðarnýtingu. Upphaf/endir: 2025-2026 |
| Loftslags- og orkusjóður úthlutaði 80 m.kr. í mars 2026 til 42 verkefna sem fela í sér innleiðingu áburðartækni til að draga úr losun frá landbúnaði. Áætlaður samanlagður samdráttur vegna verkefnanna nemur 1.007 tonnum CO₂-íg. á ári. |
S.4.C.1: Rannsóknir og greining á metanlosun búfjár (ATRN) Aðgerðin felur í sér rannsókn á iðragerjun íslensks búfjár. Markmið: Greina metanlosun frá íslensku búfé með rannsóknum á iðragerjun mjólkurkúa til að leggja grunn að markvissum loftslagsaðgerðum í landbúnaði. Upphaf/endir: 2025-2026 |
| Mælingar á metanlosun mjólkurkúa voru unnar af Landbúnaðarháskóla Íslands og lágu niðurstöður fyrir í upphafi ársins 2025. Í rannsókninni voru einnig könnuð áhrif fóðurbætiefnanna Bovaer og Agolin á metanlosun. Niðurstöðurnar voru birtar í 38. árgangi Icelandic Agricultural and Environmental Science sem kom út í lok árs 2025 (Jóhannes Kristjánsson o.fl., 2025). |
S.5.C.1: Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030 (FJR) Ríkið sé fyrirmynd í innkaupum hreinorkuökutækja og vistvænnar samgönguþjónustu með undanþágum, sbr. reglugerð nr. 1330/2023. Markmið: Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030 með innleiðingu reglugerðar nr. 1330/2023. Upphaf/endir: 2023-2023 |
| Endurskoðun aðgerðar í kjölfar síðustu skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða leiddi í ljós að eiginleg aðgerð sneri að innleiðingu reglugerðar nr. 1330/2023, um opinber kaup á vistvænum og orkunýtnum ökutækjum. Sú reglugerð tók gildi í desember 2023 og telst þessari aðgerð því lokið. |
S.5.C.5: Hagrænir latar á ökutæki knúin jarðefnaeldsneyti (FJR) Hagrænir latar á ökutæki knúin jarðefnaeldsneyti til að stuðla að nýskráningum hreinorkuökutækja í stað ökutækja knúnum jarðefnaeldsneyti. Markmið: Nýskráningum jarðefnaeldsneytisökutækja fækkar. |
| Um áramótin tóku gildi breytingar á vörugjöldum og innleiðing kílómetragjalds meðfram hækkun á kolefnisgjaldi. Aðgerðinni er því lokið. |
S.5.C.7: Breytingar á útreikningi bifreiðahlunninda hreinorkubifreiða (FJR) Í núgildandi reglum um bifreiðahlunnindi er gerður skýr greinarmunur á því hvort um er að ræða bifreið sem knúin er með jarðefnaeldsneyti eða bifreið sem knúin er með rafmagni, vetni eða metan. Lagt er upp með að gera skýrari greinarmun í skattmatsreglum tekjuársins 2024 frá og með 1. júlí 2024 til að gera rafmagns-, vetnis- og metanbifreiðar hagstæðari. Markmið: Markmiðið er að gera skýrari greinarmun á útreikningi bifreiðahlunninda eftir því hvort um er að ræða bifreið sem knúin er með jarðefnaeldsneyti eða bifreið sem knúin er með rafmagni, vetni eða metan. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Breytingar á útreikningi bifreiðahlunninda voru gerðar og komu til framkvæmda 1. júlí 2024. Með þeim breytingum skulu bifreiðahlunnindi af hreinorkubifreiðum reiknast á ársgrundvelli sem 20% af upphaflegu kaupverði bifreiðarinnar, í stað 25% sem gilti á tímabilinu 1. janúar til og með 30. júní 2024. |
S.6.A.4: Umhverfismiðuð gjaldtaka í höfnum (IRN) Hafnir skulu fá heimild til að láta gjaldskrár taka mið af umhverfissjónarmiðum með vísan til orkunýtni og kolefnisnýtni siglinga. Markmið: Heimild fyrir gjaldtöku í höfnum sem innihaldi hvata til umhverfisvænni og sjálfbærari skipareksturs sé innleidd. Upphaf/endir: 2023-2025 |
| Verkefni um umhverfismiðaða gjaldtöku í höfnum telst lokið með lögum nr. 31/2023 sem voru breyting á hafnalögum nr. 61/2003 og innleiddu EES-reglur um gjaldtöku og aðstöðu í höfnum. |
S.6.B.2: Efling hafrannsókna og vöktun helstu nytjastofna í hafi (ATRN) Unnið verður að eflingu hafrannsókna og forgangsröðun fjármagns til hafrannsókna sem tryggir gott ástand vistkerfa í hafi og lágmarkar þannig losun vegna nytja. Markmið: Draga úr losun skipa í fiskveiði. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Hafrannsóknastofnun fékk viðbótarfjármagn á grundvelli aðgerðarinnar og telst aðgerðinni lokið. |
S.6.B.3: Greining á ávinningi regluverks um viðbótaraflaheimildir rafvæddra strandveiðibáta (ATRN) Fylgjast með ávinningi nýlegra breytinga á regluverki um viðbótaraflaheimildir rafvæddra strandveiðibáta sem stuðlað geta að hraðari orkuskiptum á strandveiðum og uppfæra eftir þörfum. Markmið: Greining á aðgerð um ávinning þess að auka hlutfall rafmagnsbáta í strandveiði. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Greiningu á ávinningi regluverks um viðbótaraflaheimildir rafvæddra standveiðibáta er lokið. Lögfest var heimild til að draga allt að 750 kg (í stað 650 kg), í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð, ef skip er skráð sem rafknúið skip á skipaskrá. Heimildin var hvorki nýtt árið 2024 né 2025. |
S.7.B.3: Innleiða bann við urðun lífúrgangs (URN) Annars vegar sé urðun sérsafnaðs lífúrgangs bönnuð og hins vegar verði sérsöfnun lífúrgangs lögfest. Markmið: Að koma í veg fyrir að lífúrgangur sem er flokkaður og safnað sérstaklega endi í urðun. Upphaf/endir: 2021-2025 |
| Bann við urðun sérsafnaðs lífúrgangs og lögfesting sérsöfnunar lífúrgangs var lögfest með lögum um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi) nr. 103/2021. Árið 2020 var gas- og jarðgerðarstöð Sorpu, GAJA, sett í rekstur. Aðgerðinni er því lokið. |
4.4.2 Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir
V.1.B.1: Innleiðing á uppfærðu ETS-kerfi (URN) Tryggja samræmi og samkeppnishæfni rekstraraðila er falla undir ETS-kerfið með því að innleiða tímanlega viðeigandi regluverk, leiðbeina og upplýsa. Markmið: Tryggja samdrátt í losun frá staðbundnum iðnaði er fellur undir ETS-kerfið í samræmi við markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, hafa verið uppfærð í samræmi við markmið ESB um Fær í 55% („Fit for 55“). Markmiðið ETS-kerfisins innan EES er 62% samdráttur í losun frá starfsemi sem fellur undir kerfið árið 2030 miðað við árið 2005. Viðskiptakerfið tekur nú einnig til sjóflutninga. |
V.1.B.2: Fjárfestingar í nýsköpun og tækniþróun innan ETS-geirans (URN) Styðja þarf við þróun tæknilausna sem geta dregið úr losun frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins. Stuðningurinn helst í hendur við viljayfirlýsingu um föngun gróðurhúsalofttegunda undirritaða af stóriðju og stjórnvöldum árið 2021. Markmið: Stuðningur úr Loftslags- og orkusjóði til nýsköpunar og tækniþróunar sem stuðlar að samdrætti í losun frá iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið. Upphaf/endir: 2020-2026 |
Tvö nýsköpunarverkefni hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins. Styrkirnir eru veittir í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en verkefnin snúa annars vegar að kolefnisgeymslu og greiningu á losun og hins vegar að kolefnislausri álframleiðslu. Styrkirnir nema samtals 360 m.kr., en bæði verkefnin hlutu hæstu einkunn fagráðs Rannís. |
V.2.A.1: Uppbygging varaflugvalla (IRN) Varaflugvellir fyrir millilandaflug verða byggðir upp sem minnkar magn eldsneytis sem flugvél þarf til næsta varaflugvallar og eykur þannig orkunýtni. Markmið: Auka hagkvæmni og eldsneytisnýtingu í flugi með uppbyggingu varaflugvalla. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerð telst lokið með lögum sem samþykkt voru í júní 2023 um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Með lögunum var kynnt til sögunnar nýtt varaflugvallargjald sem ætlað er að bregðast við og tryggja fjármagn til uppbyggingar innviða á innanlandsflugvöllum. Markmiðið er að flugvellirnir geti sinnt hlutverki sínu sem mikilvægar gáttir inn í landið og varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll með fullnægjandi hætti. |
V.2.A.2: Orkunýtnari flugferlar innleiddir (IRN) Áfram verði unnið að orkusparnaði í farflugi með innleiðingu „frjáls flugs“ og orkusparandi verklagi við frá- og aðflug að flugvöllum í eigu Isavia ohf. Markmið: Að hámarka orkunýtni og lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda í aðflugi. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Isavia ANS hefur unnið að þessum málum undanfarin ár og hafa ýmsir orkunýtnari flugferlar verið innleiddir sem stuðla að betri orkunýtingu og lægri losun í aðflugi. Aðgerð telst því lokið. |
V.3.A.1: Innleiðing ETS fyrir sjóflutninga (URN) Losun frá sjóflutningum stærri skipa (yfir 5000 brúttótonn og stærri) verður felld undir ETS-kerfið í skrefum. ETS-kerfið tók gildi 1. janúar 2024 en skipafyrirtæki þurftu að gera upp losun sína ári síðar. Þann 1. janúar 2024 tók kerfið gildi fyrir sjóflutninga í formi vöktunar. Árin 2025 og 2026 þurfa skipafélög að gera upp losun sína að hluta og árið 2027 þurfa þau að gera upp losun sína að öllu leyti. Markmið: ETS-kerfi fyrir sjóflutninga innleitt að fullu. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Ísland innleiddi uppfærða ETS-löggjöf með lögum nr. 96/2023 og þar með féllu sjóflutningar skipa sem eru 5000 brúttótonn eða stærri undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir frá 1. janúar 2024. Skipafélög munu þurfa að gera upp vegna losunar áranna 2024 og 2025 að hluta til en að öllu leyti vegna losunar ársins 2026 og eftir það. |
4.4.3 Landnotkun (LULUCF)
L.1.A.3: Heildstæð áætlun um bætt gögn og upplýsingar í losunarbókhaldi Ísland (URN) Aðgerðin miðar að því að þróa aðferðir og setja upp langtímavöktunarverkefni til að meta magn og breytingar á kolefni í íslenskum vistkerfum út frá þekktum matsbreytum þannig að eigi síðar en árið 2030 verði hægt að áætla kolefnisforða allra vistkerfa í losunarbókhaldi Íslands, breytingar á kolefnisforða þeirra og áhrif landnýtingar og endurheimtar á kolefnisforða. Samkvæmt auknum kröfum ESB vegna nýrrar reglugerðar um gæði og kröfu gagna og aðferðafræði í LULUCF til að draga úr óvissu og bæta þekkingu og framsetningu þurfa tölur frá öllum helstu landnýtingarflokkunum að vera komin á aðferðaþrep 2 árið 2026, þ.e. stuðlar byggðir á íslenskum rannsóknum, og aðferðaþrep 3 árið 2030, þ.e. stuðlar byggðir á reiknilíkönum fyrir Ísland. Markmið: Að móta heildstæða þriggja ára áætlun um bætt gögn og upplýsingar þannig að Ísland uppfylli kröfur skuldbindinga um aðferðaþrep og nálgun við mat á losun og bindingu. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Þriggja ára umbótaáætlun fyrir árin 2025-2027 um bætt gögn og upplýsingar í þeim hluta losunarbókhalds Íslands sem snýr að losun frá landnotkun hefur verið mótuð. Áætlunin er aðgengileg á vefnum. |
4.4.4 Þverlægar aðgerðir
Þ.1.A.2: Innleiðing Evrópugerða um sjálfbæran fjármálamarkað (FJR) Innleiða Evrópugerðir sem er ætlað að undirbyggja sjálfbæran fjármálamarkað, svo tryggja megi aðgang að hagstæðari lánakjörum fyrir loftslagsvænar lausnir. Markmið: Innleiða Evrópugerðir um sjálfbæran fjármálamarkað þannig að regluverk og framkvæmd styðji við sjálfbærar fjárfestingar. Upphaf/endir: 2023-2023 |
| Aðgerðin snýr að innleiðingu flokkunarreglugerðar (ESB) 2020/852 (EU Taxonomy). Reglugerðin var innleidd með lögum nr. 25/2023 um að koma á samræmdum ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu. Með reglugerðinni er komið á fót flokkunarkerfi með skilgreiningum á því hvað teljist sjálfbær atvinnustarfsemi. Kerfinu er ætlað að auka gagnsæi með tengdri upplýsingagjöf markaðsaðila og stórra fyrirtækja og hjálpa fjárfestum og fyrirtækjum að átta sig á því hversu sjálfbær tiltekin atvinnustarfsemi er svo þeim sé kleift að taka upplýstar fjárfestingarákvarðanir með sjálfbærni að leiðarljósi. |
Þ.1.A.3: Markviss stuðningur við orkuskipti í gegnum Loftslags- og orkusjóð (URN) Skýra starfsreglur og verklag átakssjóðsins til að styðja við loftslags- og orkuskiptaverkefni á markvissan og skilvirkan hátt. Markmið: Skýra starfsreglur og verklag sjóðsins. Upphaf/endir: 2023-2026 |
| Loftslags- og orkusjóður varð til við sameiningu Orkusjóðs og Loftslagssjóðs árið 2024. Hlutverk Loftslags- og orkusjóðs er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkuauðlinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka nýtingu á innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum. Enn fremur styður sjóðurinn við verkefni sem stuðla að orkuöryggi og samkeppnishæfni á sviði orkumála og orkutengd verkefni á grundvelli orkustefnu, nýsköpunarstefnu, byggðastefnu og stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum. Til að tryggja stuðning við loftslags- og orkuskiptaverkefni á markvissan og skilvirkan hátt voru starfsreglur og verklag sjóðsins skýrt nánar. Aðgerð þessari telst lokið með útgáfu starfsregla sjóðsins. |
Þ.1.A.5: Hækkun og möguleg útvíkkun kolefnisgjalds (FJR) Sem hluti af innleiðingu nýs fjármögnunarkerfis vegna umferðar og orkuskipta, þar sem gert er ráð fyrir að vörugjöld á eldsneyti lækki verulega eða falli niður, var kolefnisgjald á jarðefnaeldsneyti hækkað í upphafi árs 2025. Skoðað verður hvernig megi útvíkka kolefnisgjald þannig að það nái til skemmtiferðaskipa. Markmið: Að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og stuðla að orkuskiptum. Upphaf/endir: 2012-2026 |
| Kolefnisgjald var hækkað í janúar 2025 og svo aftur í janúar 2026 og telst aðgerðinni því lokið. Ekki var talin ástæða til að útvíkka kolefnisgjaldið þannig að það nái til skemmtiferðaskipa. |
Þ.1.A.6: Ívilnun vegna kolefnisjöfnunar (FJR) Framlög til aðgerða sem stuðla eiga að kolefnisjöfnun eru upp að vissu marki frádráttarbær frá tekjuskatti lögaðila, t.d. skógrækt, landgræðsla, endurheimt votlendis og niðurdæling koldíoxíðs. Markmið: Að auka kolefnisbindingu og samdrátt í losun með kolefnisjöfnun. Upphaf/endir: 2021–2021 |
| Aðgerð lauk með breytingum á 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. |
Þ.2.A.1: Útfæra og innleiða áherslur um loftslag og sjálfbærni í aðalnámskrá grunnskóla (MRN) Að hæfniviðmið tengd loftslagsbreytingum, loftslagsvá og sjálfbærni séu innleidd í aðalnámskrá grunnskóla og verði þar með hluti af skyldunámi í grunnskóla. Markmið: Auka áherslu í menntakerfinu á loftslags- og sjálfbærnimál með innleiðingu áherslna í aðalnámskrá grunnskóla. Upphaf/endir: 2024-2025 |
| Grunnvörður tengdar loftslagsvá, loftslagsbreytingum og sjálfbærnimálum voru innleiddar í aðalnámskrá í nóvember 2024. Kennsla samkvæmt nýrri aðalnámskrá hófst haustið 2025 og voru þá loftslags- og sjálfbærnimál að fullu samþætt í kennslu á grunnskólastigi. |
Þ.2.C.4: Endurskoðun opinberra ráðlegginga um mataræði (HRN) Innleiða áherslur norrænu ráðlegginganna um mataræði (NNR 2023) í opinberar ráðleggingar um mataræði að teknu tilliti til íslenskra aðstæðna. Markmið: Stuðla að bættri lýðheilsu með mataræði sem hefur jákvæð áhrif bæði á heilsu fólks og umhverfisins. Upphaf/endir: 2024-2025 |
| Endurskoðaðar ráðleggingar um mataræði voru gefnar út á vegum landlæknis í mars 2025 (https://island.is/s/landlaeknir/frett/endurskodadar-radleggingar-um-mataraedi) og fylgir í spor uppfærslu á norrænum næringarráðleggingum. Í nýjum ráðleggingum er lögð áhersla á neyslu ávaxta, grænmetis og heilkornavara. Ráðleggingarnar endurspegla nýjustu rannsóknir og þekkingu og markmið aðgerðarinnar er að bæta lýðheilsu þjóðarinnar með mataræði sem hefur jákvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfi. |
Þ.2.D.6: Breyting á regluverki vegna skila á umhverfisupplýsingum (URN) Einfalda skil á umhverfisupplýsingum rekstraraðila, m.a. upplýsingum um hráefnanotkun og um losun mengandi efna, þ.á m. gróðurhúsalofttegunda. Markmið: Setja reglugerð sem varðar skil ýmissa rekstraraðila á umhverfisupplýsingum sem kemur í staðinn fyrir skil á grænu bókhaldi. Upphaf/endir: 2020-2025 |
| Reglugerð nr. 206/2025 var sett sem breytir reglugerð nr. 990/2008, um útstreymisbókhald. Reglugerðin heitir nú: Reglugerð um umhverfisupplýsingar. Uppfærð reglugerð tekur á hvoru tveggja, umhverfisupplýsingum (m.a. um hráefnanotkun og magn spilliefna og annars úrgangs) og útstreymisbókhaldi. Eldri reglugerð nr. 851/2002 um grænt bókhald féll úr gildi. |
4.5 Mótvægisaðgerðir utan aðgerðaáætlunar
4.5.1 Samfélagslosun
S.1.A.1: Upplýsingagjöf um losunarbókhald jarðvarma (URN) Taka þarf saman og miðla upplýsingum um bókun losunar frá rekstri jarðvarmavirkjana og samanburði á aðferðafræði ólíkra landa. Markmið: Taka saman og birta upplýsingar um jarðvarma í losunarbókhaldi í alþjóðasamhengi. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Unnið er að upplýsingagjöf um losunarbókhald jarðvarma innan Alþjóðaorkumálastofnunarinnar. Aðgerðin fer því úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.1.B.4: Framkvæmdir við flutnings- og dreifikerfi raforku styðji við markmið stjórnvalda í loftslagsmálum (URN) Loftslagsmarkmið stjórnvalda og sá loftslagsávinningur sem felst í einstaka framkvæmdum á að vera ákvörðunarþáttur í allri áætlanagerð um uppbyggingu og styrkingu flutnings- og dreifikerfis raforku. Leita skal leiða til að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum loftslagsávinningi. Markmið: Áætlanagerð sé með hliðsjón af þeim loftslagsávinningi sem felst í framkvæmdum hverju sinni og styðji við orkuskipti. Upphaf/endir: 2024-2025 |
| Aðgerðin er ekki í sérstakri innleiðingu og fer því úr eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.1.B.5: Aukin orkuöflun fyrir loftslagsaðgerðir og sjálfbærni samfélagsins (URN) Tryggja þá raforku sem er nauðsynleg til að framkvæma orkuskipti á landi, hafi og í lofti. Markmið: Aukin orkuöflun fyrir loftslagsaðgerðir og sjálfbærni samfélagsins. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Um er að ræða sífelluverkefni við orkuöflun en ekki sértæka loftslagsaðgerð. Aðgerðin fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun. |
S.2.B.2: Orkuskipti hreyfanlegra véla og tækjabúnaðar (URN) Styðja við orkuskipti hreyfanlegra véla og tækjabúnaðar í mannvirkjagerð úr Loftslags- og orkusjóði, þegar markaðsforsendur eru fyrir hendi. Markmið: Auka fjölda hreinorkutækja sem styrkt eru af Loftslags- og orkusjóði. Upphaf/endir: 2020-2026 |
| Aðgerðin er ekki í sérstakri innleiðingu og fer því úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.3.A.4: Samvinnuverkefni um bætt mat á kælimiðlanotkun fiskiskipa og fiskvinnslu (URN) Sett verði upp samvinnuverkefni milli Umhverfisstofnunar og fyrirtækja í sjávarútvegi til að kortleggja kælimiðlanotkun fiskiskipa og fiskvinnslu. Markmið: Að losunarbókhald F-gasa endurspegli sem best losun frá fiskiskipum og fiskvinnslu. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Umbætur í losunarbókhaldi Umhverfis- og orkustofnunar teljast ekki sem sértæk aðgerð heldur stöðugt ferli. Aðgerðin fer því úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun. |
S.4.A.1: Innleiða umhverfisbókhald landbúnaðar (ATRN) Setja upp umhverfisbókhaldskerfi sem nýtist býlum í landbúnaði. Markmið: Að mat á losun og bindingu með umhverfisbókhaldi eigi sér stað á 60% býla árið 2030. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin er í farvegi sem sjálfstæð verkefni í gegnum styrki úr Matvælasjóði og fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.4.B.1: Innleiðing á skyldu um skil á upplýsingum um áburðar- og kölkunarþörf (ATRN) Safna með kerfisbundnari hætti jarðvegssýnum úr ræktuðu landi og nota þær upplýsingar til að bæta nýtingu áburðarefna. Markmið: 100% býla skili upplýsingum um áburðar- og kölkunarþörf árið 2030. Upphaf/endir: 2027-2030 |
| Innleiðing á skilum á upplýsingum um áburðar- og kölkunarþörf er felld undir vinnu við undirbúning á hagkvæmu styrkjaumhverfi fyrir landbúnað (aðgerð S.4.A.3). |
S.4.C.6: Landnotkun sem hluti af kolefnisspori matvælaframleiðslu (ATRN) Aðgerðin felur í sér að skilgreina aðferðafræði til að taka landnotkun með í útreikninga á kolefnisspori matvælaframleiðslu. Markmið: Að til sé aðferðafræði fyrir kolefnisspor matvælaframleiðslu sem tekur tillit til landnotkunar. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin er í farvegi sem sjálfstætt verkefni, kolefnisspor íslenskra matvæla (KÍM), og fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.5.B.1: Uppbygging hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu (IRN) Ríkið styður við uppbyggingu hjóla- og göngustíga með fjárveitingum, aðlögun regluverks og að mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun um virka ferðamáta, m.a. hjólreiða og smáfarartækja. Markmið: Efla göngu- og hjólastígakerfi höfuðborgarsvæðisins. 100 km viðbót göngu- og hjólastígakerfis frá stöðunni árið 2019, sbr. samgöngusáttmála. Upphaf/endir: 2020-2026 |
| Aðgerðin er felld undir aðgerð S.5.B.3 sem heitir nú Uppbygging almenningssamgöngukerfis og hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu. |
S.5.C.10: Útfösun bensín- og dísilbifreiða á Íslandi (IRN) Í eldri aðgerðaáætlun var meginreglan sú að óheimilt yrði að nýskrá bensín- og dísilbíla á Íslandi árið 2030 en í skoðun er að færa þessa tímalínu fram um tvö ár og einnig er lagt til að útvíkka skráningarbannið þannig að það gildi jafnframt fyrir ökutæki sem nota blandaða orkugjafa (bæði hreinorkugjafa og jarðefnaeldsneyti). Markmið: Aukið hlutfall hreinorkuökutækja af heildarbílaflota hvers viðeigandi ökutækjaflokks. Upphaf/endir: 2028- |
| Greiningar benda til þess að aðrar aðgerðir, s.s. fjárhagslegir hvatar og latar, stuðli að álíka samdrætti í losun en séu minna íþyngjandi fyrir samfélagið í heild. Aðgerðin er ekki í sérstakri innleiðingu og fer úr eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.6.B.7: Orkuskipti í haftengdri starfsemi (URN) Styðja við orkuskipti í haftengdri starfsemi, hvort heldur sem er í gegnum Loftslags- og orkusjóð eða með stuðningi við umsóknir í alþjóðlega sjóði fyrir sjálfbærar lausnir. Markmið: Aukið hlutfall hreinorkuskipa af heildarskipaflota landsins. Upphaf/endir: 2020-2026 |
| Aðgerðin er ekki í sérstakri innleiðingu og fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.7.A.1: Eftirfylgni aðgerða úr heildarstefnu um úrgangsmál (URN) Markviss eftirfylgni með aðgerðum úr stefnunni „Í átt að hringrásarhagkerfi“ sem snúa að úrgangsforvörnum og meðhöndlun úrgangs. Markmið: Ná markmiðum stefnu um meðhöndlun úrgangs. Upphaf/endir: 2023-2026 |
| Þessi aðgerð er í farvegi undir stefnu um meðhöndlun úrgangs og úrgangsforvarnarstefnu Saman gegn sóun og er hún tekin úr eftirfylgni í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.7.A.2 Innleiðing aðgerðaáætlunar „Minni matarsóun“ (URN) Vinna áfram að framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar „Minni matarsóun“, svo lágmarka megi sóun matar og koma matarleifum í aðra farvegi en urðun. Markmið: Minnka matarsóun á mann um 50% fyrir árið 2030 miðað við árið 2022. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Þessi aðgerð er í farvegi í annarri aðgerðaáætlun og er hún tekin úr eftirfylgni í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
S.7.C.2: Fjárhagslegur stuðningur við innviðauppbyggingu fyrir skólp (URN) Bæta þarf núverandi hreinsivirki til að auka hreinsun skólps með innviðauppbyggingu. Ríkið styrki innviðauppbyggingu í einstökum byggðakjörnum á vegum sveitarfélaga til að bæta hreinsun fráveitu. Reiknað er með að vinnslan hefjist með fullum afköstum árið 2030. Um er að ræða níu svæði: Hafnarfjörð, höfuðborgarsvæðið, Keflavík/Njarðvík, Akranes, Dalvík, Akureyri, Vestmannaeyjar, Grindavík og Þorlákshöfn. Markmið: Auka hreinsun skólps á Íslandi með innviðauppbyggingu á níu stöðum árið 2030. Upphaf/endir: 2020-2026 |
| Aðgerðin færist í aðlögunaráætlun. |
4.5.2 Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir
V.1.A.1: Stofna vettvang stjórnvalda og iðnaðar vegna regluverks og nýsköpunar (URN) Vettvangnum er ætlað að tryggja gagnsæi og samtal með umfjöllun um viðeigandi regluverk (Fær í 55%) og nýsköpunarlausnir, auk fræðslu um viðeigandi regluverk. Markmið: Stofna vettvang stjórnvalda og iðnaðar til að auka gagnsæi og upplýsingagjöf milli stjórnvalda og iðnaðar. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin er ekki í sérstakri innleiðingu og fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
V.1.B.3: Móta ramma vegna orkuúttekta (URN) Setja þarf reglugerð um framkvæmd og eftirfylgni orkuúttektar rekstraraðila í iðnaði, í samræmi við lög um ETS, sem rekstraraðilar láta framkvæma svo úthlutun losunarheimilda skerðist ekki. Markmið aðgerðar: Setja reglugerð um framkvæmd og eftirfylgni orkuúttektar rekstraraðila í iðnaði til að úthlutun til rekstraraðila skerðist ekki vegna skorts á regluverki. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Aðgerðin er í farvegi annars staðar í tengslum við innleiðingu á orkunýtnitilskipun ESB og fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
V.2.B.1: Leiðbeiningar um loftslagsvænni samgöngumáta opinberra starfsmanna (URN) Leiðbeiningar um loftslagsvæna samgöngumáta opinberra starfsmanna. Þær skulu stuðla að nýtingu vistvænni ferðamáta og fjarfunda, sem og tryggja samræmi í útreikningum losunar flugs. Markmið: Draga úr óþarfa ferðalögum og þar með úr losun ferða opinberra starfsmanna með flugi. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Í farvegi annars staðar í Grænum skrefum. Aðgerðin fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
V.2.B.2: Þátttaka í alþjóðlegum kerfum um samdrátt í losun frá flugi (URN) Áframhaldandi þátttaka í alþjóðlegum kerfum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi (ETS og CORSIA) og uppfærsla regluverks eftir þörfum. Markmið: Ísland sé þátttakandi í alþjóðlegum kerfum um samdrátt í losun frá flugi. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin er ekki eiginleg aðgerð heldur sífelluverkefni og fer því úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
4.5.3 Landnotkun (LULUCF)
L.1.C.2: Ræktun skóga á jörðum í eigu ríkisins (URN) Aðgerðin felur í sér ræktun skóga á jörðum í eigu ríkisins með markvissum hætti. Markmið: Auka heildarbindingu ræktaðra skóga um 18% árið 2030, miðað við 2022. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin er í farvegi annars staðar sem hluti af sífelluverkefni Lands og skógar á ríkisjörðum í þeirra umsjón. |
L.1.C.3: Endurheimt þurrlendisvistkerfa á röskuðu landi á jörðum í eigu ríkisins og á þjóðlendum (URN) Aðgerðin felur í sér endurheimt þurrlendisvistkerfa (uppgræðsla og landgræðsla) á jörðum í eigu ríkisins og á þjóðlendum með markvissum hætti. Markmið: Að 100.000 ha af röskuðu þurrlendi verði endurheimt fyrir 2030. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin er í farvegi annars staðar sem hluti af landgræðsluaðgerðum Lands og skógar á ríkisjörðum í þeirra umsjón, sem og í gegnum stuðningskerfi ríkisins fyrir einkalönd. |
L.1.C.5: Aðlögun skóga að loftslagsbreytingum (URN) Aðgerðin felur í sér að efla aðlögun skóga að loftslagsbreytingum með markvissum aðgerðum í vali og kynbótum trjátegunda og kvæma, prófun nýrra tegunda og öflugum rannsóknum á aðlögun þeirra. Jafnframt felur aðgerðin í sér að draga úr áhættu vegna hugsanlega aukinnar tíðni gróðurelda með skipulagi skógræktarsvæða, blöndun tegunda og markvissri meðferð skóga, m.a. með grisjun á réttum tíma, fellingu og endurnýjun skóga. Með þessari nálgun er leitast við að efla þanþol skóga og auka kolefnisbindingu þeirra til lengri tíma. Markmið: Að efla aðlögunarhæfni íslenskra skóga að loftslagsbreytingum með markvissum aðgerðum í vali og kynbótum trjátegunda og kvæma, skipulagi og meðferð skóga þannig að dregið sé úr áhættu af völdum loftslagsbreytinga og kolefnisbinding skóga styrkt til lengri tíma. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Aðgerðin færist í aðlögunaráætlun. |
L.1.D.3: Gerð svæðisáætlana í landgræðslu og skógrækt fyrir hvern landshluta (URN) Aðgerðin felur í sér gerð svæðisáætlana í landgræðslu og skógrækt fyrir hvern landshluta í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila. Í áætlununum er mótuð sameiginleg sýn á hvernig best verði unnið að markmiðum um kolefnishlutleysi með vernd líffræðilegrar fjölbreytni að leiðarljósi og með hliðsjón af skipulagsáætlunum og náttúruvernd. Með svæðisáætlunum er lagður grunnur að samræmdri og sjálfbærri nýtingu lands, jarðvegsvernd og vernd og endurheimt vistkerfa, sem stuðlar að aukinni sátt og samstöðu um aðgerðir. Markmið: Að móta svæðisáætlanir fyrir alla landshluta og sveitarfélög um vernd, endurheimt og eflingu kolefnisríkra vistkerfa og vistkerfa sem eru mikilvæg fyrir líffræðilega fjölbreytni. Upphaf/endir: 2022-2026 |
| Aðgerðin er í farvegi annars staðar og unnin í tengslum við landsáætlun í landgræðslu og skógrækt. |
4.5.4 Þverlægar aðgerðir
Þ.1.A.1: Ívilnanir á tekjuskatti vegna loftslagsvænna fjárfestinga (FJR) Ívilnun sem felst í lækkun tekjuskatts vegna fjárfestinga í „grænu“ lausafé sem telst loftslagsvænt. Ívilnunin er í gildi til loka árs 2025 og verður hún endurskoðuð með það að markmiði að gera hana markvissari. Markmið: Markmiðið er að stuðla að fjárfestingu í umhverfisvænum eignum umfram mengandi eignir. Hvatanum er ætlað að gera loftslagsvæna valkosti raunhæfari við fjárfestingarákvarðanir. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Ívilnun var í gildi til loka árs 2025 en ekki var haldið áfram með verkefnið. |
Þ.1.A.7: Stuðningur við markvissa sókn í Evrópusjóði (FJR) Upplýsingagjöf og markviss stuðningur við umsóknir hagaðila í Evrópusjóði vegna sjálfbærra lausna sem stuðla munu að samdrætti í losun. Markmið: Hlotnir styrkir séu í það minnsta jafnir þeirri upphæð sem var lögð til af hálfu stjórnvalda í erlenda styrktarsjóði fyrir loftslagsmál. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Aðgerðin er ekki í sérstakri innleiðingu og fer því úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
Þ.1.A.9: Sjálfbær fjármögnun ríkissjóðs (FJR) Ríkissjóður hefur gefið út grænt skuldabréf og mun skila árlegri skýrslu um áhrif einstakra útgjaldaliða þar til ráðstöfun andvirðis útgáfunnar er að fullu lokið. Til greina kemur að skoða frekari útgáfu á grænum skuldabréfum styðji það við önnur markmið í aðgerðaáætlun. Markmið: Að styðja við sjálfbærar fjárfestingar ríkissjóðs. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Í farvegi annars staðar í kjölfar þess að verklag við útgáfu grænna skuldabréfa hefur nú verið þróað. Aðgerðin fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
Þ.1.A.10: Samráðshópar stjórnvalda og atvinnugreina um markvissar ívilnanir til loftslagsvænnar fjárfestingar (URN) Stofnaðir verða samráðshópar stjórnvalda og ákveðinna atvinnugreina um markvissar ívilnanir til loftslagsvænnar fjárfestingar. Mikilvægt er að tryggja samkeppnishæfi íslenskra atvinnugreina og efnahagslegan fyrirsjáanleika til að tryggja þátttöku atvinnugreina í orkuskiptum. Markmið: Markvissar fjárhagslegar ívilnanir fyrir stórar atvinnugreinar á Íslandi. Upphaf/endir: 2024-2025 |
| Fellur inn í önnur samráðsferli og því í farvegi annars staðar. Aðgerðin fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
Þ.1.B.2: Eigendastefna opinberra félaga fyrir ákveðnar atvinnugreinar endurskoðuð (FJR) Eigendastefna opinberra félaga rýnd m.t.t. loftslagsmarkmiða. Markmið: Að draga úr losun og skýra hlutverk opinberra félaga í gegnum eigendastefnu í loftslagsáherslum stjórnvalda. Upphaf/endir: 2021-2026 |
| Í farvegi annars staðar þar sem almenna stefnan nær nú vel utan um markmið aðgerðarinnar. Aðgerðin fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
Þ.1.C.2: Gagnsæi um tekjur og útgjöld stjórnvalda vegna aðgerða í loftslagsmálum (FJR) Regluleg birting upplýsinga um áætlaðar og sögulegar tekjur og gjöld ríkisins vegna loftslagsmála, t.a.m. vegna sölu losunarheimilda, greiðslna í erlenda sjóði o.fl. Markmið: Tryggja gagnsæi og upplýsingagjöf um tekjur og útgjöld ríkisins vegna aðgerða í loftslagsmálum, þ.m.t. ETS-kerfisins. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Í farvegi annars staðar í tengslum við aukið gagnsæi í ríkisbókhaldi. Aðgerðin fer úr sérstakri eftirfylgni undir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. |
Þ.2.E.2: Smitáhrif landsins í þágu hnattrænnar ábyrgðar (FOR) Skipaður verði starfshópur til að vinna tillögu að framtíðarsýn, markmiðum og aðgerðaáætlun til að lágmarka neikvæð smitáhrif Íslands. Markmið: Öðlast yfirsýn yfir smitáhrif Íslands til þess að geta betur kortlagt, mælt og takmarkað áhrif þeirra út fyrir landsteinana með gerð aðgerðaáætlunar. Upphaf/endir: 2024-2025 |
| Hætt hefur verið við aðgerðina. Í kjölfar síðustu stjórnarskipta voru gerðar breytingar á fyrirkomulagi verkefnis um samstarfsvettvanginn Sjálfbært Ísland sem fólu m.a. í sér að starf leiðtoga á sviði sjálfbærrar þróunar innan forsætisráðuneytis var lagt niður. Frá árinu 2022 var í ráðuneytinu unnið að stefnu Íslands um sjálfbæra þróun og var hún samþykkt af ríkisstjórn í júlí 2024. Í mars 2025 samþykkti ríkisstjórn þá niðurstöðu forsætisráðherra að beina eftirfylgni stefnunnar í fagráðuneyti, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta. |