2. Markmið og skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum
Samkvæmt 4. gr. Parísarsamningsins eiga ríki heims á fimm ára fresti að skila landsákvörðuðu framlagi (e. Nationally Determined Contribution, NDC) til rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC). Þar tiltaka ríki áfangamarkmið sín um kolefnisbindingu og samdrátt í losun tíu ár fram í tímann. Þau eiga jafnframt að endurspegla mesta mögulega metnað með hliðsjón af aðstæðum hvers ríkis. Haustið 2025 setti Ísland fram markmið til ársins 2035, en áður hafði verið sett fram markmið fyrir árið 2030.
Landsákvarðað framlag Íslands til ársins 2030 tekur til samfélagslosunar, m.a. losunar frá vegasamgöngum, orkuvinnslu, sjávarútvegi, landbúnaði og úrgangsstjórnun.
- Landsákvarðað framlag Íslands til ársins 2030 felur í sér 41% samdrátt í samfélagslosun til 2030 miðað við 2005.
Ísland er ekki með sérstakt markmið um samdrátt í losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið) frekar en önnur ríki sem taka þátt í kerfinu, heldur tekur Ísland þátt í sameiginlegu markmiði um samdrátt í losun sem fellur undir kerfið.
- Ísland tekur þátt í sameiginlegu markmiði með ESB og Noregi í gegnum viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir með heildarmarkmið um 62% samdrátt í kerfinu fyrir 2030.
Ekki er útfært sérstakt tölulegt markmið til ársins 2030 fyrir losun vegna landnotkunar vegna óvissu sem enn ríkir um fyrirkomulag samstarfs við ESB um það markmið. Hins vegar vísar landsákvarðað framlag Íslands fyrir 2030 til þess að Ísland hafi það að markmiði að vinna eftir regluverki ESB um losun vegna landnotkunar sem við ritun þessarar skýrslu felur m.a. í sér að auka ekki við losun frá landi miðað við losun viðmiðunaráranna 2007-2009 ásamt því að bæta þau gögn sem notuð eru við útreikninga á losun frá landi og greiningu á mögulegum aðgerðum til að auka kolefnisbindingu með breyttri landnotkun.
Landsákvarðað framlag Íslands til ársins 2035 útfærir markmið fyrir tímabilið 2031-2035. Um er að ræða töluleg markmið fyrir samfélagslosun og landnotkun óháð mögulegu samstarfi við ESB á tímabilinu og jafnframt ótölulegt markmið um stuðning við samdrátt í losun sem fellur undir ETS-kerfið. Á meðan markmiðið byggir á sama þrískipta grunni og markmiðið fyrir 2030 var stigið það skref að útfæra eftir bestu getu sjálfstæð markmið til að gæta þess að Ísland tryggi skýrleika í markmiðasetningu samkvæmt Parísarsamningnum og til að auka fyrirsjáanleika fyrir loftslagsstefnu Íslands.
Landsákvarðað framlag Íslands til 2035 felur í sér:
- 50-55% samdrátt í samfélagslosun árið 2035 miðað við árið 2005.
- 400-500 þúsund tonna koldíoxíðs (CO2)-íg. samdrátt í losun frá landi árið 2035 miðað við árið 2025. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem sett er fram tölulegt markmið um samdrátt í losun frá landi.
- Einnig er sett fram ótölulegt markmið til samdráttar í ETS-kerfinu með stuðningi stjórnvalda við nýsköpun og tækniþróun við föngun og förgun eða hagnýtingu CO2 frá iðnaði.
Ísland hefur lögfest markmið um kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040 en útfæra þarf betur hvað felst í markmiðinu og hvernig skuli ná því. Í 1. mgr. 4. gr. Parísarsamningsins er vísað í nauðsyn þess að ná jafnvægi milli losunar gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum frá uppsprettum og upptöku þeirra í viðtaka á síðari helmingi þessar aldar svo unnt verði að ná langtímamarkmiði samningsins um að halda hækkun á hitastigi á heimsvísu vel undir 2°C miðað við meðalhitastig jarðar fyrir iðnvæðingu og fylgja eftir viðleitni til að takmarka hækkun hitastigs við 1,5°C miðað við meðalhitastig fyrir iðnvæðingu.
Nýtt frumvarp til loftslagslaga felur í sér tillögu að nýjum heildarlögum um loftslagsmál svo að lögin fylgi þróun og áherslum innan málaflokksins. Í frumvarpinu er jafnframt bráðabirgðaákvæði sem tryggir útfærslu markmiðs um kolefnishlutleysi fyrir árslok 2027. Auk þess er lagt til að lögfesta að skammtíma-, langtíma- og millimarkmið verði sett til að auka skýrleika og varða leiðina að kolefnishlutleysi.