3. Þróun losunar gróðurhúsalofttegunda

Nýjustu gögn fyrir losun gróðurhúsalofttegunda sýna sögulega losun fyrir árin 1990-2025 ásamt framreikningum til ársins 2055 (bráðabirgðatölur frá júlí 2026). Þessir framreikningar eru fyrir sviðsmynd með núgildandi aðgerðum (e. With Existing Measures – WEM). Í sviðsmynd með núgildandi aðgerðum er tekið tillit til þeirra aðgerða sem er lokið, í framkvæmd eða í innleiðingu, eftir því sem unnt er. Sviðsmyndin tekur ekki til áhrifa aðgerða sem eru fyrirhugaðar eða á hugmyndastigi.

 

Mynd 1: Söguleg losun gróðurhúsalofttegunda 2005-2025 á Íslandi ásamt framreikningum 2026-2035. Skuldbindingakerfi auk innanlandsflugs, sem er að hluta innan ETS-kerfisins.

Mynd 1: Söguleg losun gróðurhúsalofttegunda 2005-2025 á Íslandi ásamt framreikningum 2026-2035. Skuldbindingakerfi auk innanlandsflugs, sem er að hluta innan ETS-kerfisins.

3.1 Samfélagslosun

Losun sem fellur undir samfélagslosun er almennt sú losun sem á sér stað á Íslandi sem fellur ekki undir viðskiptakerfið (ETS) eða landnotkun. Þetta er t.d. losun frá vegasamgöngum, fiskiskipum, orkuvinnslu, landbúnaði, kælimiðlum og úrgangi.

Árið 2025 nam samdráttur í samfélagslosun 10% frá árinu 2005 og framreikningar með núgildandi aðgerðum sýna að samdrátturinn stefnir í að vera 21% árið 2030 og 30% árið 2035. Íslensk stjórnvöld hafa sett sér markmið um að ná 41% samdrætti í samfélagslosun gagnvart Parísarsamningnum samkvæmt landsákvörðuðu framlagi til ársins 2030 sem var uppfært í september 2025. Landsákvarðað framlag til ársins 2035 gerir ráð fyrir 50-55% samdrætti miðað við 2005. Enn vantar því upp á að Ísland nái markmiðum sínum um samdrátt í samfélagslosun samkvæmt landsákvörðuðu framlagi til áranna 2030 og 2035.

 

Mynd 2: Söguleg samfélagslosun 2005-2025 ásamt framreikningum áranna 2026-2035. Samdráttarmarkmið frá 2005 eru merkt sérstaklega, 41% árið 2030 og 50-55% árið 2035.

Mynd 2: Söguleg samfélagslosun 2005-2025 ásamt framreikningum áranna 2026-2035. Samdráttarmarkmið frá 2005 eru merkt sérstaklega, 41% árið 2030 og 50-55% árið 2035.

3.2  Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið)

Losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið) er frá staðbundnum iðnaði á Íslandi, flugi frá flugrekendum í umsjón Íslands og sjóflutningum frá skipafélögum í umsjón Íslands. Í ETS-kerfinu eru það rekstraraðilar sem falla undir kerfið sem bera ábyrgð á að gera upp sína losun innan kerfisins með losunarheimildum. Losun frá staðbundnum iðnaði er hluti af heildarlosun Íslands meðan losun frá alþjóðasamgöngum er það ekki.

Losun frá staðbundnum iðnaði á Íslandi jókst mikið 2005-2008 vegna aukinna umsvifa í álframleiðslu. Frá þeim tíma hefur losunin haldist nokkuð stöðug og samkvæmt framreikningunum mun hún halda áfram að vera stöðug.

Eitt af fimm forgangsverkefnum stjórnvalda í innleiðingaráætlun 2025-2026 var að veita aukið fjármagn til rannsókna og þróunar á búnaði og aðferðum til að draga úr losun frá staðbundnum iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið og í maí 2026 var um 360 m.kr. úthlutað úr Loftslags- og orkusjóði til tveggja slíkra verkefna.

 

Mynd 3: Söguleg losun frá staðbundnum iðnaði í ETS-kerfinu árin 2005-2025 ásamt framreikningum 2026-2035.

Mynd 3: Söguleg losun frá staðbundnum iðnaði í ETS-kerfinu árin 2005-2025 ásamt framreikningum 2026-2035.

3.3 Landnotkun (LULUCF)

Losun gróðurhúsalofttegunda frá landnotkun (LULUCF) inniheldur losun og bindingu frá stýrðu landi. Umfang losunar innan landnotkunarflokksins á Íslandi er að mörgu leyti frábrugðið losun og bindingu undir þessum flokki í öðrum ríkjum. Flest Evrópuríki hafa meiri bindingu en losun, þ.e. nettóbindingu, í landnotkunarflokknum en á Íslandi er losunin mun meiri en bindingin, þ.e. nettólosun en ekki nettóbinding. Það má rekja m.a. til mikils umfangs framræsts lands og smæðar skóga á Íslandi í samanburði við önnur ríki. Sögulega hefur nettólosunin haldist nokkuð stöðug þótt sjá megi breytingar í aukinni bindingu vegna skógræktar.

Framreiknuð losun og binding frá landi bendir til þess að nettólosun árið 2035 verði rúm 5200 þúsund tonna CO2-íg. sem er um 850 þúsund tonna CO2-íg. samdráttur frá árinu 2025. Ísland myndi því ná markmiðum sínum um 400-500 þúsund tonna CO2-íg. samdrátt samkvæmt landsákvörðuðu framlagi til 2035 (sjá kafla 2).