5. Aðlögunaráætlun – áætlun vegna áhrifa loftslagsbreytinga
Loftslagsbreytingar hafa þegar áhrif á íslenskt samfélag, náttúru og innviði vegna hlýnandi loftslags, breyttra úrkomumynstra og aukinna veðuröfga. Í lok árs 2025 samþykktu íslensk stjórnvöld fyrstu aðlögunaráætlun Íslands vegna áhrifa loftslagsbreytinga fyrir tímabilið 2026–2030. Markmið hennar er að draga úr loftlagstengdri áhættu og efla seiglu samfélags og vistkerfa. Áætlunin er unnin samkvæmt 5. gr. a laga nr. 70/2012, um loftslagsmál, og markar heildstæða stefnu stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum.
Áhersla áætlunarinnar er á vöktun, áhættumat og viðbrögð við áhrifum loftslagsbreytinga á náttúru, samfélag og innviði. Meðal þeirra áhættuþátta sem hún tekur til eru aukin náttúruvá og öfgaveður, hopun jökla, hækkandi sjávarstaða, hlýnun og súrnun sjávar og önnur kerfislæg áhrif.
Í aðlögunaráætluninni eru skilgreindar 59 aðgerðir. Í töflu 10 má sjá stöðu þeirra í september 2026.
Tafla 10: Yfirlit yfir stöðu aðgerða í aðlögunaráætlun.
| Staða aðgerða | Fjöldi aðgerða |
| Í framkvæmd | 18 |
| Í útfærslu | 21 |
| Fyrirhugaðar | 20 |
| Alls | 59 |
5.1 Uppbygging aðlögunaráætlunar
Aðlögunaráætlun skiptist í fjögur svið:
- Umhverfi: náttúra, líffræðileg fjölbreytni og landnotkun
- Velsæld: velferð, lýðheilsa og samfélagslegur viðnámsþróttur
- Innviðir: loftslagsþol og öryggi
- Þverlæg verkefni
Aðgerðir eru síðan flokkaðar enn frekar eftir málaflokkum sem endurspegla bæði helstu svið samfélagsins sem verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og þá stjórnsýsluþætti sem tryggja samhæfingu og árangur í aðlögunarstarfi.
5.1.1 A. Umhverfi
Alls eru 16 aðgerðir skilgreindar fyrir svið umhverfis. Helstu markmið á sviði umhverfis eru eftirfarandi:
- Byggja upp grunn fyrir langtímavöktun vistkerfa og mat á viðkvæmni þeirra gagnvart loftslagsbreytingum og súrnun sjávar.
- Þróa spálíkön fyrir útbreiðslu tegunda og búsvæða m.t.t. loftslagsbreytinga með það að markmiði að styðja við náttúruvernd, stefnumótun og skipulag landnotkunar. Styrkja vöktun í tengslum við áhrif loftslagsbreytinga á náttúruvá.
- Náttúrumiðaðar lausnir verði nýttar markvisst til að auka viðnámsþrótt náttúrulegra kerfa og styðja við kolefnisbindingu og samdrátt í losun.
- Setja á laggirnar gagnasafn um búsvæði, jarðfræði, jarðveg og útbreiðslu loftslagsnæmra tegunda sem nýtist í stefnumótun um náttúruvernd, landnotkun og áhættumat vegna loftslagsbreytinga.
- Draga úr áhættu og efla þol vistkerfa með því að styðja við líffræðilega fjölbreytni og ýta undir breyttar áherslur í landnýtingu.
- Verkefni á sviði umhverfis eru auðkennd með bókstafnum A og falla þrjú verkefni undir sviðið:
| A.1. | Yfirsýn yfir lykilþætti íslenskrar náttúru m.t.t. áhrifa loftslagsbreytinga |
| A.2. | Vöktun og viðbragð við náttúruvá vegna loftslagsbreytinga |
| A.3. | Viðbrögð við breytingum á náttúrufari Íslands |
5.1.2 B. Velsæld
Alls eru 14 aðgerðir skilgreindar fyrir svið velsældar. Helstu markmið á sviði velsældar eru eftirfarandi:
- Að efla velsæld og viðnámsþrótt íslensks samfélags gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga.
- Auka þekkingu og getu heilbrigðiskerfisins til að bregðast við loftslagsbreytingum. Tryggja réttlát umskipti á vinnumarkaði með því að byggja á færni- og hæfnispám sem nýtast við markvissa stefnumótun í menntun, nýsköpun og atvinnuþróun.
- Aðlögunaraðgerðir stuðli að félagslegu réttlæti, taki mið af mismunandi áhrifum á hópa og landsvæði og efli samfélagslegan viðnámsþrótt.
- Innleiða lýðheilsumat til að hámarka jákvæð og lágmarka neikvæð áhrif loftslagsbreytinga á heilsu og líðan fólks og þróa lýðheilsuvísa til að fylgjast með þróun þeirra áhrifa.
- Tryggja aðgengi að sí- og endurmenntun í atvinnugreinum sem munu breytast vegna áhrifa loftslagsbreytinga, t.d. grænna umskipta.
- Efla getu stjórnvalda, stofnana og atvinnulífs til að greina viðkvæmni og áhættu sem fylgir loftslagsbreytingum og byggja upp loftslagsþolið samfélag.
Verkefni á sviði velsældar eru auðkennd með bókstafnum B og falla þrjú verkefni undir sviðið:
| B.1. | Aukið loftslagsþol heilbrigðiskerfis og samfélags |
| B.2. | Vísindamiðuð og réttlát aðlögun |
| B.3. | Gerð viðkvæmni- og áhættumats fyrir íslenskt samfélag |
5.1.3 C. Innviðir
Alls eru 13 aðgerðir skilgreindar fyrir svið innviða. Helstu markmið á sviði innviða eru eftirfarandi:
- Efla öryggi og viðnámsþrótt samfélagsins með því að auka seiglu og aðlögunarhæfni innviða og tryggja órofna grunnþjónustu við breyttar aðstæður.
- Samþætt vatnsstjórnun í þéttbýli, reglur og lausnir sem draga úr flóðahættu og mengun, verndun grunnvatns og aukið áfallaþol menningarminja með bættri varðveislu og stafrænum lausnum.
- Endurskoðun á hönnunarviðmiðum og stöðlum fyrir innviði og forgangsröðun aðgerða til að draga úr hættu á rofi.
- Verkefni á sviði innviða eru auðkennd með bókstafnum C og falla fjögur verkefni undir sviðið:
| C.1. | Aðlögun samgönguinnviða að áhrifum loftslagsbreytinga |
| C.2. | Aðlögun orkukerfa að áhrifum loftslagsbreytinga |
| C.3. | Aðlögun veitukerfa að áhrifum loftslagsbreytinga |
| C.4. | Loftslagsþolnar menningarminjar |
5.1.4 D. Þverlæg verkefni
Alls eru 16 aðgerðir skilgreindar á sviði þverlægra verkefna. Helstu markmið á sviði þverlægra verkefna eru eftirfarandi:
- Efla getu stjórnvalda, stofnana, háskóla og sveitarfélaga til að taka upplýstar ákvarðanir og innleiða aðlögunaraðgerðir með markvissum hætti.
- Skapa heildstætt viðkvæmni- og áhættumat vegna loftslagsbreytinga með þróun samræmdrar aðferðafræði sem nýtist við forgangsröðun aðlögunaraðgerða.
- Efla getu sveitarfélaga til þess að takast á við loftslagsbreytingar með leiðbeiningum, verkfærum, fræðslu og þátttöku íbúa.
- Setja skýran ramma um loftslagsþjónustu, hlutverk, ábyrgð og miðlun, tryggja reglubundna uppfærslu Loftslagsatlass Íslands og gagnagáttar um náttúruvá sem byggir á áreiðanlegum gögnum.
- Styrkja vísindalega þekkingu og miðlun hennar til stjórnvalda, almennings og hagaðila ásamt því að efla þverfaglegt samstarf um rannsóknir.
Verkefni á sviði þverlægra verkefna eru auðkennd með bókstafnum D og falla fjögur verkefni undir sviðið:
| D.1. | Efld loftslagsþjónusta |
| D.2. | Þekkingarsköpun, samhæfing og samstarf |
| D.3. | Aukin geta sveitarstjórnarstigsins til aðlögunar að loftslagsbreytingum |
| D.4. | Alþjóðastarf og þróunarsamvinna |
5.2 Staða aðlögunaraðgerða í framkvæmd
Ábyrgðarráðuneyti eða ábyrgðarstofnun aðgerða eru tiltekin í sviga fyrir aftan heiti hverrar aðgerðar (atvinnuvegaráðuneyti (ATRN), innviðaráðuneyti (IRN), umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti (URN) og utanríkisráðuneyti (UTN)).
5.2.1 A. Umhverfi
Fjórar aðgerðir eru í framkvæmd á sviði umhverfis.
A.1.1 Vöktun og mat á áhrifum loftslagsbreytinga á íslenska náttúru (URN) Aðgerðin byggir upp grunn fyrir langtímavöktun vistkerfa og mat á viðkvæmni þeirra gagnvart loftslagsbreytingum og súrnun sjávar. Með því að koma upp neti vöktunarstaða og framkvæma áhættumat vegna loftslagstengdra þátta (s.s. hitabreytinga, þurrka, sjávarhæðarhækkunar, sífrera og framandi tegunda) er markmiðið að greina snemmbær merki um breytingar í náttúru og styðja við stefnumótun, mótvægisaðgerðir, verndaráætlanir og aðlögun í landnotkun. Einnig að koma upp sjálfvirku kerfi til þess að fylgjast með breytingum á jökullónum út frá gervitunglamyndum Kóperníkusaráætlunarinnar. Upphaf/endir: 2026-2032 |
| Unnið er að mótun þessarar aðgerðar, m.a. í ljósi styrkveitingar frá Evrópusambandinu sem kallar á endurskoðun á útfærslu og vörðum. |
A.1.2: Grunnkortlagning tegunda, vistgerða, jarðvegs, jarðgrunns og berggrunns (URN) Aðgerðin miðar að því að byggja upp samræmd landupplýsingagögn um búsvæði, jarðfræði, jarðveg og útbreiðslu loftslagsnæmra tegunda til að styðja við aðlögun að loftslagsbreytingum. Kortlagningin mun gera stjórnvöldum kleift að greina vistkerfi og svæði í hættu, forgangsraða verndaraðgerðum og innleiða viðbragðsáætlanir gegn framandi tegundum sem geta breiðst út með hlýnandi loftslagi. Gagnasafnið verður nýtt í stefnumótun um náttúruvernd, landnotkun og áhættumat vegna loftslagsbreytinga. Upphaf/endir: 2026-2032 |
| Unnið er að mótun þessarar aðgerðar, m.a. í ljósi styrkveitingar frá Evrópusambandinu sem kallar á endurskoðun á útfærslu og vörðum. |
A.2.5: Skriðu- og krapaflóð – efling hættumats og vöktunar (URN) Markmið verkefnisins er að styrkja viðnámsþrótt samfélagsins gagnvart skriðu- og krapaflóðahættu og þar með efla öryggi íbúa og ferðafólks og draga úr eigna- og rekstrartjóni samfélagsins. Verkefnið byggir á rannsóknum, kortlagningu og hættumati sem styður við skipulag og landnýtingu, auk svæðisbundinna spáa, vöktunar og viðvarana sem byggja á öflugri mælitækni og eftirliti. Loftslagsbreytingar geta aukið tíðni ofanflóða, einkum skriðufalla og krapaflóða, og þar með líkurnar á tjóni. Því þarf að styrkja varnir, hættumat og vöktun og tryggja að ákvarðanataka um rýmingar, lokanir og aðrar aðgerðir byggist á traustum gögnum. Upphaf/endir: 2026-2030 |
| Unnið hefur verið að yfirferð gagnasafns um skriðu- og krapaflóð, framsetningu svæðis- og staðbundinna skriðuviðvarana, kortlagningu óstöðugra hlíða og gerð fræðsluefnis um skriðuhættu og skriðuvöktun. Einnig er jarðfræðikortlagning fyrir ofanflóðastaði í vinnslu, auk skriðuhættumats fyrir ákveðin þéttbýlissvæði. Framhald verður á þessum verkefnum. Í tengslum við IceNAP-verkefnið, sem hefst í byrjun næsta árs, verða óstöðugar hlíðar í fremsta forgangi hættumetnar, þörf á vöktunarbúnaði greind og mælitækjum komið fyrir þar sem þörfin er mest. Einnig er markmið að þróa jarðvegsrakalíkan og þröskuldsgildi til þess að bætaa grundvöll fyrir svæðisbundnar viðvaranir. |
A.2.8: Markáætlun um náttúruvá (Rannís) Auglýst verður eftir umsóknum og fjármagni úthlutað til rannsóknar- og nýsköpunarverkefna tengdum náttúruvá. Náttúruvá getur verið margvísleg og loftslagsbreytingar hafa nú þegar aukið og munu áfram auka náttúruvá á Íslandi sem getur komið fram í öfgakenndara veðurfari, skriðum, flóðum o.fl. sem hefur mikil áhrif á samfélög og innviði. Mikilvægt er að undirbúa íslenskt samfélag sem best og byggja stefnumótun og aðgerðir á rannsóknum og nýjustu þekkingu. Lagt er til að úthluta 500–600 m.kr. til samstarfsverkefna rannsóknastofnana og fyrirtækja á breiðum þekkingarlegum grundvelli þar sem litið verður til þverfaglegs samstarfs. Áhersla er lögð á víðtækt samstarf og miðlun niðurstaðna. Verkþættir: A) Mótun auglýsingar. B) Umsókna- og úthlutunarferli. C) Verkefni hefjast. D) Eftirfylgni og þekkingaryfirfærsla/innleiðing. Upphaf/endir: 2025-2026 |
| Stjórn markáætlunar auglýsti styrki úr markáætlun um náttúruvá haustið 2025. Sextán gildar umsóknir bárust. Tilkynnt var eftir fund stjórnar í mars 2026 að ákveðið hefði verið að styrkja fimm verkefni um tæpar 600 m.kr. Verkenfin snúa að jarðskjálftavöktun í tengslum við náttúruvá á Reykjanesskaga, eflingu færni til að takast á við veður á hálendi Íslands, vöktun náttúruvár með fjarskiptainnviðum, eldfjallavá í Krýsuvík og að samþætta áhættustjórnun vegna jarðskjálftavár á Íslandi. |
5.2.2 B. Velsæld
Þrjár aðgerðir eru komnar í framkvæmd á sviði velsældar.
B.3.1 Samræmt verklag við gerð viðkvæmni- og áhættumats (URN) Viðkvæmni- og áhættumat Íslands ætti að snúa að beinum og óbeinum áhættum vegna loftslagsbreytinga, auk þess sem sérstaklega er hugað að kerfislægum áhættum, s.s. áhættum þvert á landamæri, og miðað að því að koma auga á tækifærin sem gætu falist í breyttu loftslagi. Skapa þarf skýran ramma utan um framkvæmd viðkvæmni- og áhættumats Íslands til þess að tryggja að slíkt mat verði heildrænt, taki mið af mismunandi geirum og byggi á samræmdum upplýsingum og aðferðum. Sett verður fram tímalína sem rímar við tímalínu aðlögunaráætlunar Íslands, samræmd aðferðafræði, skilgreiningar og leiðbeiningar fyrir lykilgeira og sveitarfélög. Samhliða því verður lögð áhersla á að setja fram lykiláhættur og skilgreina lykilgeira íslensks samfélags ásamt því að meta hverjir beri ábyrgð á gerð viðkvæmni- og áhættumats hvers málaflokks. Upphaf/endir: 2025-2027 |
Veðurstofa Íslands vann árið 2025 fyrstu bráðabirgðaútgáfu viðkvæmni- og áhættumats Íslands. Byggir hún á fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum sem teknar voru saman vegna skila Íslands til Evrópusambandsins. Unnið er að þróun samræmds ramma og verklags fyrir næstu útgáfur matsins. Í þeirri vinnu verða m.a. skilgreind markmið og aðferðafræði matsins, lykiláhættur og lykilgeirar, forsendur, samráð og tímalína. Samhliða hefur Veðurstofa Íslands gert samning við Stockholm Environment Institute (SEI) um verkefnið Practical Framework and Core Indicators for Systemic and Transboundary Climate Risks in Iceland, sem mun styðja sérstaklega við þróun aðferðafræði og mælikvarða fyrir kerfislæga loftslagsáhættu og áhættu þvert á landamæri. Veðurstofan hefur jafnframt aflað þekkingar á reynslu annarra Norðurlanda við gerð áhættumats á landsvísu. Fulltrúar VÍ sóttu m.a. á vinnustofu í Stokkhólmi þar sem farið var yfir hvað hefur reynst vel, hvaða áskoranir hafa komið upp og hvaða lærdóm megi nýta við mótun nálgunar sem hentar íslenskum aðstæðum. Sú reynsla nýtist við áframhaldandi þróun rammans. Viðbótarstuðningur við þessa vinnu fæst jafnframt í gegnum IceNAP-verkefnið, sem hefst í byrjun árs 2027 og mun styðja við áframhaldandi þróun og innleiðingu ramma fyrir viðkvæmni- og áhættumat Íslands. |
B.3.2 Viðkvæmni- og áhættumat í landbúnaði (ATRN) Loftslagsbreytingar munu fela í sér breytingar á starfsumhverfi landbúnaðar. Dæmi um áhrif sem geta haft bein áhrif á landbúnað er að þurrkadögum kann að fjölga, úrkomuákefð að aukast og veðurfar að hlýna. Afleiðingar þessa kunna að verða tíðari gróðureldar, aukin flóðahætta, aukin útbreiðsla ágengra lífvera og tíðari skriðuföll. Við viðkvæmni- og áhættumat er viðeigandi loftslagstengd hætta fyrir málaflokkinn metin gróflega og mat gert á viðkvæmni viðeigandi aðila. Vinna þarf viðkvæmni- og áhættumat fyrir landbúnað til að undirbyggja mótun, val og forgangsröðun aðlögunaraðgerða. Upphaf/endir: 2025-2027 |
| Viðkvæmni- og áhættumat í landbúnaði er langt komið. Búið er að vinna samanburð á aðferðum við mat á loftslagsáhættu í íslenskum landbúnaði [1] og viðkvæmni- og áhætttumat fyrir mjólkurframleiðslu á Suðurlandi.[2] |
B.3.3: Viðkvæmni- og áhættumat í sjávarútvegi (ATRN) Loftslagsbreytingar munu fela í sér breytingar á starfsumhverfi sjávarútvegs og lagareldis, einkum sjókvíaeldis. Dæmi um bein áhrif á sjávarútveg og fiskeldi er að úrkomuákefð eykst og veðurfar hlýnar. Afleiðingar þessa kunna að verða tíðari ofsaveður, breytt sjávarstaða og aukin flóðahætta, aukin útbreiðsla ágengra lífvera, súrnun sjávar og að far fiskstofna taki breytingum. Við viðkvæmni- og áhættumat er viðeigandi loftslagstengd hætta fyrir málaflokkinn metin gróflega og mat gert á viðkvæmni viðeigandi aðila. Vinna þarf viðkvæmni- og áhættumat fyrir sjávarútveg og fiskeldi til að undirbyggja mótun, val og forgangsröðun aðlögunaraðgerða. Upphaf/endir: 2025-2027 |
| Beðið er eftir ramma um viðkvæmni- og áhættumat (aðgerð B.3.1) til að halda áfram vinnu við þessa aðgerð. |
5.2.3 C. Innviðir
Fjórar aðgerðir eru komnar í framkvæmd á sviði innviða.
C.1.1: Auka seiglu og viðnámsþrótt vegakerfisins m.t.t. loftslagsbreytinga (IRN) Kortleggja þyrfti viðnámsþrótt eða seiglu vegakerfisins m.t.t. loftslagsbreytinga til að hægt sé að meta forgangsröðun aðgerða til að styrkja samgöngur og takmarka líkur á samgöngurofi. Aðgerðin er grundvallarforsenda þess að hægt sé að bregðast við í tíma, áður en fyrirséðar loftslagsbreytingar valda alvarlegum röskunum. Þróun á aðferðafræði við kortlagninguna er hafin innan Vegagerðarinnar með tilraunaverkefni og verður hægt að byggja á niðurstöðum þess verkefnis fyrir heildarkortlagningu áhættustaða. Mikilvægt er að kortleggja hvar váin er mest til að hægt sé að forgangsraða mögulegum aðgerðum til að draga úr líkum á samgöngutruflunum. Upphaf/endir: 2025-2029 |
| Skýrsla með niðurstöðum úr tilraunaverkefni um skráningu og kortlagningu er væntanleg fyrir lok árs 2026 og leggur það grunninn að vinnu ársins 2027. Skýrslan tekur saman þá staði á þjóðvegi 1 þar sem loftslags- og veðurtengdir atburðir eru algengastir út frá fyrirliggjandi gögnum. |
C.1.2: Draga úr tjónnæmi hafna og strandsvæða vegna loftslagsbreytinga (IRN) Vegagerðin vinnur að greiningum á áhrifum loftslagsbreytinga á strandsvæði m.t.t. sjávarstöðuhækkunar og aukins ölduálags og gefur m.a. út viðmið fyrir skipulag á hafnar- og strandsvæðum. Þessar greiningar ná m.a. til öryggis, viðkvæmni og tjónnæmi þessara svæða. Þörf er á að styrkja þessa vinnu á grundvelli þekkingar og reynslu sem er til staðar. Einnig þarf að styðja þróun líkana; tryggja uppfærslur og viðbætur nýrra gagna og samþættingu þeirra. Niðurstöður úr greiningum og líkanagerð yfir stærri svæði nýtast m.a. til að hægt sé að huga að áhættu vegna loftslagsbreytinga, t.d. við skipulag strandsvæða með mótvægisaðgerðum eða skipulagsskilmálum. Upphaf/endir: 2025-2029 |
| Unnið er að því að þétta gagna- og mælinganet. Stöðug þróun er í líkanagerð en hún er unnin í tengslum við framkvæmdir og skipulag á strandsvæðum. Sú vinna heldur áfram. |
C.1.3: Verklag og gátlistar fyrir hönnun samgöngumannvirkja m.t.t. loftslagsbreytinga (IRN) Vegagerðin tekur nú þegar inn áhrif loftslagsbreytinga í hönnun nýrra samgöngumannvirkja, m.a. breytt hönnunarflóð fyrir brýr og sjávarstöðuhækkanir á strandsvæðum. Töluverð óvissa er um staðbundin áhrif loftslagsbreytinga og því mikilvægt að verklag þróist með bættum upplýsingum og aukinni þekkingu. Samgöngumannvirki sem hönnuð eru til langs tíma valda ákveðnum áskorunum. Sem dæmi má nefna brýr með 100 ára hönnunarlíftíma, þar sem óvissa um áhrif loftslagsbreytinga eykst því fjær í tíma sem horft er. Nauðsynlegt er að til sé skýrt verklag sem styður við rökstudda ákvarðanatöku um hvort mögulegur viðbótarkostnaður vegna dýrari hönnunar og byggingar mannvirkis skili árangri samkvæmt kostnaðarhlið. Einnig þarf að fylgjast með og þróa nýjar lausnir í hönnun sem auðvelda viðbragð og breytingar á mannvirkjum ef bregðast þarf við loftslagsáhættu. Upphaf/endir: 2025-2029 |
| Unnið er að gátlista fyrir hönnuði samgöngumannvirkja um aðlögun að loftslagsbreytingum. Verklag fyrir rökstuddri ákvarðanatöku er í þróun samhliða auknum skráningum og þekkingu. |
C.1.4: Endurskoðun viðhalds og þjónustu vegakerfisins m.t.t. loftslagsáhrifa (IRN) Bregðast þarf við mögulegum breytingum í viðhaldi og þjónustu sökum breytinga og aukinna sveiflna í veðurfari. Til dæmis má búast má við því að frost- og þíðuferlar verði algengari sem leiðir til aukins niðurbrots vega auk breytinga á umfangi vetrarþjónustu, breytingar á úrkomuákefð og flóðum, breytingar á árfarvegum og breytingar á hviðum og vindafari í tengslum við hörfun jökla. Margar þessara breytinga eru hægfara og hægt að aðlaga verklag og viðbragð á vettvangi jafnóðum en nauðsynlegt er að auka við skráningar til að hægt sé að meta áhrif til framtíðar og uppfæra hönnunarkröfur á grundvelli raungagna og skráninga. Upphaf/endir: 2026-2029 |
| Verið er að móta verklag og aðferðafræði til að bæta vettvangsskráningar. Þegar er búið að bæta aðferðafræði til að auðvelda samantekt á skráningum m.t.t. veðurfarstengdra atburða. Einnig eru nokkur rannsóknarverkefni tengd veðurlíkönum í gangi, m.a. hviðulíkön og vegveðurlíkön. |
5.2.4 C. Þverlæg verkefni
Sjö aðgerðir eru komnar í framkvæmd á sviði þverlægra verkefna.
D.1.1: Efling loftslagsþjónustu hjá Veðurstofu Íslands (URN) Til að tryggja skilvirka og samhæfða framkvæmd, eftirfylgni og utanumhald er brýnt að skilgreina loftslagsþjónustu skýrar í lögum, regluverki og stefnugögnum stjórnvalda. Slík skilgreining ætti að tilgreina hlutverk og ábyrgð Veðurstofu Íslands og þá sérstaklega miðlunar- og þjónustuhlutverk skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar. Snar þáttur í efldri loftslagsþjónustu er að tryggja aðgengilegar upplýsingar um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi. Upphaf/endir: 2023-2029 |
Skrifstofa loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands hefur frá stofnun hennar unnið að því að byggja upp og samhæfa loftslagsþjónustu og bæta aðgengi að upplýsingum um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi. Unnið er að uppbyggingu vefsvæðis skrifstofunnar sem innlendrar aðlögunargáttar þar sem markmiðið er að gera upplýsingar, gögn, verkfæri og leiðbeiningar um loftslagsbreytingar og aðlögun aðgengileg á einum stað. Samhliða heldur áfram vinna við þarfagreiningu, miðlun og samráð við hagaðila og lögð er áhersla á að skýra hlutverk og ábyrgð Veðurstofu Íslands og annarra aðila við framkvæmd loftslagsþjónustu. Frekari innspýting fæst í þessa vinnu með LIFE IceNAP-verkefninu sem hefst í byrjun árs 2027 og mun styðja við eflingu loftslagsþjónustu, miðlun og samstarf við hagaðila. |
D.1.2: Loftslagsatlas Íslands – sviðsmyndir, þróun, útgáfur og miðlun (URN) Loftslagsatlas Íslands er myndræn vefsjá sem veitir yfirsýn yfir líkleg áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi. Hann byggir á niðurkvarðaðri úrvinnslu sviðsmynda IPCC og nær yfir bæði land og hafsvæði innan íslenskrar efnahagslögsögu. Atlasinn er formlegur farvegur til að miðla viðurkenndum loftslagssviðsmyndum og styðja við stefnumótun, aðlögun og fræðslu. Á vegum vísindanefndar um loftslagsbreytingar og Veðurstofunnar hefur verið unnið úr hnattrænum reikniniðurstöðum loftslagslíkana sem byggja á losunarsviðsmyndum IPCC. Til að tryggja að framreikningar séu byggðir á nýjustu þekkingu þarf að uppfæra úrvinnslu reglulega eftir því sem ný gögn verða aðgengileg. Þróa þarf aðferðir og verkfæri til að framkvæma slíka niðurkvörðun hratt og örugglega. Jafnframt er mikilvægt að þróa og miðla frávikasviðsmyndum, s.s. vegna samdráttar eða mögulegs hruns AMOC. Niðurstöðum úr sviðsmyndagreiningum verður miðlað í gegnum Loftslagsatlas Íslands sem og í skýrslum og greinargerðum. Markmiðið er að afleiðingar helstu frávika frá líklegri þróun séu vel skjalfestar og gagnlegt efni aðgengilegt hagaðilum. Fyrsta útgáfa atlassins var birt í apríl 2025 og nýjar útgáfur munu bæta við fleiri loftslagsvísum og sviðsmyndum, þróa nýja virkni og tengjast öðrum gagnagáttum, s.s. varðandi náttúruvá og áhættu. Upphaf/endir: 2023-2029 |
Loftslagsatlas Íslands var birtur í apríl 2025. Loftslagsatlasinn byggir á sviðsmyndum Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sem byggja á niðursköluðum NEX-GDDP-CMIP6 gögnum sem hafa verið endurreiknuð fyrir Ísland. Auk þess sýnir atlasinn mögulega útbreiðslu sjávarflóða með 20, 50 og 200 ára endurkomutíma á 77 stöðum á Íslandi. Unnið er áfram að þróun atlassins með fleiri loftslagsvísum og sviðsmyndum, nýrri virkni og tengingum við önnur gögn um náttúruvá og loftslagsáhættu. Sú vinna hefur þegar verið styrkt með nýju verkefni Veðurstofu Íslands innan Copernicus Climate Change Service (C3S) National Collaboration Programme (NCP), sem unnið er í samstarfi við Norwegian University of Life Sciences (NMBU). Í verkefninu er þróuð rekstrarhæf loftslagsvöktunar- og spáþjónusta fyrir Ísland, m.a. með upplýsingum um sögulega þróun loftslags, stöðu þess nær rauntíma, skammtíma- og árstíðaspár og nýja loftslagsvísa. Gert er ráð fyrir að afurðir verkefnisins verði samþættar Loftslagsatlas Íslands og styrki þannig áframhaldandi þróun hans sem miðlægs verkfæris fyrir loftslagsupplýsingar og ákvarðanatöku. Frekari stuðningur við þróun atlassins og tengdra loftslagsupplýsinga fæst jafnframt í gegnum LIFE IceNAP-verkefnið, sem hefst í byrjun árs 2027. |
D.1.3: Gagnagátt fyrir náttúruvá með áherslu á vatns- og sjávarflóð (URN) Tilraunaverkefni um gagnagátt vegna vatns- og sjávarflóða hófst árið 2021 í kjölfar útgáfu Loftslagsþolins Íslands. Framhald af því verkefni hefur verið sett fram í aðlögunaráætlun Íslands. Þegar innleiðingu gagnagáttarinnar verður lokið og fyrirliggjandi gögn yfirfarin og gerð aðgengileg verður unnið að því að koma inn upplýsingum um yfirfarin gögn fyrir fleiri vatnasvið og frá sjávarborðsmælum. Gagnagáttin verður jafnframt þróuð áfram til þess að birta fleiri gögn til viðbótar við vatnsflóð og sjávarflóð. Notendakannanir verða framkvæmdar og kannað hvort og þá hvaða úrbætur þarf að ráðast í til þess að gagnagáttin virki sem skyldi fyrir hagaðila og nýtist við ákvarðanatöku aðgerða til þess að draga úr og laga sig að áhrifum loftslagsbreytinga. Upphaf/endir: 2025-2029 |
| Wiski-web hefur verið innleidd og verður nýtt sem gagnagátt. Hún er opin og hægt að sækja þau rauntímagögn sem núna eru aðgengileg. Veðurstofan vinnur nú að því að fá heimild frá orkufyrirtækjunum, sem fjármagna hluta mælinga, til að birta þær rennslisraðir í gagnagáttinni. Markmiðið er að hægt verði að nálgast vatnshæðar- og sjávarhæðarmælingar sem gerðar eru hér á landi á einum stað. Næstu skref eru að færa inn fleiri upplýsingar í gagnagáttina, m.a. stærð vatnasviða, endurkomutíma vatnsflóða, yfirfarin gögn og líkanreiknuð gögn. Jafnt og þétt munu bætast við gögn sem unnt verður að nálgast í þessari gagnagátt á wiski-web. |
D.3.1: Útvíkkuð verkfærakista loftslagsvænni sveitarfélaga (SÍS) Þetta verður gert með því að auka magn, fjölbreytni og aðgengi að fræðsluefni, leiðbeiningum, sniðmátum og öðru gagnlegu efni um aðlögun að loftslagsbreytingum í samhengi íslenskra sveitarfélaga. Upphaf/endir: 2025-2029 |
| Búið er að bæta við kafla í verkfærakistuna um aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum. Um er að ræða fyrstu útgáfu og er textinn því frekar almennur. Þar er útskýrt í hverju aðlögun sveitarfélaga felst og beinir notendum á það hagnýta efni sem þegar er í boði, s.s. leiðarvísi Byggðastofnunar um leiðir til aðlögunar og Loftslagsatlas Íslands. Unnið er að næstu útgáfu þessa kafla sem verður ítarlegri og uppfærður í takt við væntanleg ný heildarlög um loftslagsmál. |
D.4.1: Samstarf við SOFF, sjóð um kerfisbundnar veðurathuganir (UTN) Sjóður um kerfisbundnar veðurathuganir (e. Systematic Observations Financing Facility, SOFF), er samstarf þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna (Alþjóðaveðurfræðistofnunin, Þróunaráætlun SÞ og Umhverfisstofnun SÞ) með þátttöku aðildarríkja og alþjóðlegra fjármálastofnana. Sjóðurinn hefur það markmið að tryggja sjálfbæra langtímafjármögnun til að efla veðurathuganakerfi í þróunar- og smáeyþróunarríkjum, og styður við öflun og greiningu á veður- og loftslagsgögnum á svæðum þar sem athuganir eru takmarkaðar. Með þessum hætti stuðlar sjóðurinn að sterkari veðurathugunum á heimsvísu og betri viðbrögðum við náttúruhamförum sem og aðlögun að loftslagsbreytingum. Upphaf/endir: 2025-2027 |
| Samstarf Íslands við SOFF er í formi árlegra fjárframlaga, setu í stýrinefnd og sérfræðiþekkingar. |
D.4.2: Samstarf við Aðlögunarsjóðinn (UTN) Aðlögunarsjóðurinn (e. Adaptation Fund) fjármagnar verkefni sem ætlað er að styðja við aðlögun þróunarríkja að loftslagsbreytingum og stuðla að sjálfbærri þróun í samræmi við Heimsmarkmið SÞ. Verkefni á vegum sjóðsins lúta m.a. að því að bæta viðbúnað gegn náttúruhamförum, styðja við sjálfbæra nýtingu og landgræðslu, draga úr vatnsskorti, efla matvælaöryggi og laga landbúnað að breytingum á loftslagi, og tryggja lífsviðurværi í samfélögum sem eru viðkvæm fyrir loftslagsáhrifum. Upphaf/endir: 2024-2026 |
| Samstarf Íslands við Aðlögunarsjóðinn er í formi árlegra fjárframlaga, virkrar þátttöku og eftirfylgni með starfi sjóðsins. |
D.4.3: Samstarf við Norræna þróunarsjóðinn (UTN) Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) var stofnaður með samkomulagi Norðurlandanna árið 1988. Sjóðurinn styður við verkefni þróunarríkja á sviði loftslagsmála og styrkir samtímis leiðtogahlutverk Norðurlandanna á sviðinu, með fjármögnun verkefna, þekkingaruppbyggingu og samstarfi. Veittir eru styrkir, lán og hlutafé með það að leiðarljósi að bregðast hratt við í samræmi við aðstæður. Sjóðurinn styður fyrst og fremst við byrjunarstig verkefna og veitir hvatafjármögnun með áherslu á fátækustu þróunarríkin og smáeyþróunarríki, auk sérstakrar áherslu á viðkvæma samfélagshópa, s.s. konur og stúlkur. Þá er sjóðnum ætlað að tengja saman ólíka fjárfesta og hvetja til aðkomu bæði einkafjármagns og opinbers. Samstarf Íslands við Norræna þróunarsjóðinn er í formi árlegra fjárhagslegra framlaga og stjórnarsetu. Þá er stutt sérstaklega við samstarfssjóð um orku og umhverfismál (e. The Energy and Environment Partnership Trust Fund), sem starfar undir sjóðnum. EEP Africa veitir hvatafjármögnun til verkefna í 17 ríkjum í sunnan- og austanverðri Afríku, með áherslu á hreina orku. Upphaf/endir: 2022-2030 |
| Samstarf Íslands við Norræna þróunarsjóðinn er í formi árlegra fjárhagslegra framlaga og stjórnarsetu. |