1. Inngangur
Skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða skal samkvæmt 5. gr. laga um loftslagsmál, nr. 70/2012, skilað árlega til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um framgang loftslagsaðgerða. Síðast kom skýrslan út árið 2025.
Töluverð vinna hefur farið fram frá útgáfu síðustu skýrslu, m.a. með það að markmiði að sýna betur fram á árangur loftslagsaðgerða og forgangsröðun í takt við markmið ráðherra um að leggja áherslu á færri en markvissari aðgerðir til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þá voru tekin frekari skref í að bregðast við umsögnum sem bárust þegar aðgerðaáætlunin var kynnt í samráðsgátt í júní 2024, en meiri hluti umsagna var ákall um frekara kostnaðar- og ábatamat aðgerða sem og trygga fjármögnun og forgangsröðun.
Aðgerð 7 í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur snýr að loftslagsmálum. Þar stendur:
„[Með] markvissum loftslagsaðgerðum svo að Ísland nái kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 og verði áfram í fremstu röð í baráttu gegn hnattrænni hlýnun. Ríkisstjórnin mun ýta undir orkuskipti í samgöngum og iðnaði, vinna gegn losun frá landi og greiða götu tæknilausna og nýsköpunar á sviði loftslagsmála. Þá verður stutt við líffræðilega fjölbreytni og ráðist í aðgerðir til að vernda hafsvæði og ósnortin víðerni.”
Helstu nýmæli við skýrsluna og vinnu verkefnisstjórnar á síðustu 12 mánuðum eru eftirfarandi:
- Færri og skýrari aðgerðir. Verkefnisstjórn og starfsfólk hennar hefur farið í gegnum allar aðgerðir í aðgerðaáætlun. Sífelluverkefni voru tekin úr áætluninni og aðgerðir í öðrum farvegi, t.d. aðgerðir úr öðrum aðgerðaáætlunum sem ekki töldust sem beinar loftslagsaðgerðir, voru felldar úr eftirfylgni verkefnisstjórnar. Í skýrslunni er gerð grein fyrir afdrifum aðgerða sem felldar eru úr aðgerðaáætlun, auk þess sem farið er yfir aðgerðir sem telst lokið.
- Markmið og mælikvarðar. Skerpt var á markmiðum og árangursmælikvörðum aðgerða í framkvæmd. Í skýrslunni er gerð grein fyrir stöðu allra aðgerða í framkvæmd út frá árangursmælikvörðum.
- Fjölþáttamat. Tekið var í notkun fjölþáttamat fyrir aðgerðir í innleiðingu þar sem aðgerðir eru metnar út frá árlegum samdrætti í losun árið 2030, kostnaðar- og ábatamati, útfærslu aðgerðar, auðframkvæmanleika og umhverfisáhrifum. Þá er unnið við að innleiða mat á samfélagsáhrifum loftslagsaðgerða sem unnið er í samstarfi við Rannsóknarsetur um ójöfnuð hjá Háskóla Íslands.
- Staða aðlögunaraðgerða. Í fyrsta sinn er gerð grein fyrir aðgerðum úr aðlögunaráætlun sem gefin var út í lok árs 2025.
Í kjölfarið verður greint hvort aðgerðir í innleiðingu og framkvæmd endurspegli losunarflokka og hvort skilgreina þurfi nýjar aðgerðir. Samhliða er unnið að gerð loftslagsstefnu sem áætlað er að liggi fyrir í lok árs 2026 og verður hún jafnframt vegvísir fyrir frekari útfærslu og forgangsröðun aðgerða.
Fyrsti kafli er inngangur að skýrslunni, auk þess sem hann fjallar um forgangsverkefni í aðgerða- og aðlögunaráætlunum. Annar kafli fjallar um markmið og skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Þriðji kafli fer yfir þróun losunar gróðurhúsalofttegunda 1990-2025 og stöðu út frá skuldbindingarflokkunum þremur, losun sem fellur undir samfélagslosun, losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir (ETS-kerfið) og losun frá landnotkun (e. Land use, land-use change and forestry, LULUCF). Fjórði kafli fjallar um stöðu mótvægisaðgerða og gerir grein fyrir aðgerðum í innleiðingu, stöðu aðgerða í framkvæmd, mótvægisaðgerðum sem telst lokið og aðgerðum utan aðgerðaáætlunar. Í fimmta kafla er í fyrsta sinn farið yfir aðgerðir úr aðlögunaráætlun sem gefin var út í lok árs 2025, bæði aðgerðir í innleiðingu og aðgerðir í framkvæmd. Í sjötta kafla má svo finna ábendingar verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða.
1.1 Forgangsverkefni aðgerðaáætlunar
Forgangsverkefnin aðgerðaáætlunar endurspegla þær aðgerðir sem hafa mestan væntan árangur. Þrjú forgangsverkefni eru í framkvæmd: Hraðari orkuskipti í samgöngum, fjárfestingar í grænum landbúnaði og endurheimt votlendis og vistkerfa.
Farið er yfir forgangsverkefni og stöðu þeirra í töflu 1, en einnig er fjallað um aðgerðirnar í kafla 4 um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Tafla 1: Forgangsverkefni aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum og staða þeirra í september 2026.
| Rafbílavæðing og hraðari orkuskipti í samgöngum | |||
Lögð er áhersla á að hraða orkuskiptum í samgöngum með styrkjum úr Loftslags- og orkusjóði til kaupa á hreinorkuvöru- og hópbifreiðum, til uppbyggingar hraðhleðslustöðva þar sem hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi og til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Jafnframt er unnið að aukinni rafbílavæðingu bílaleiga og hagrænum lötum gagnvart ökutækjum knúnum jarðefnaeldsneyti til að hraða orkuskiptum. Auk þess verður aukin íblöndun lífeldsneytis nýtt til að draga úr losun á meðan rafvæðing samgangna heldur áfram. | |||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða |
| S.5.A.4 | Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús | 2026-2027 | Í framkvæmd |
| S.5.A.5 | Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði | 2026-2027 | Í framkvæmd |
| S.5.A.6 | Styrkir til uppbyggingar hraðhleðslustöðva í þéttbýli og á þjóðvegakerfinu þar sem hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi. | 2026-2027 | Í framkvæmd |
| S.5.C.3 | Styrkir til kaupa á hreinorku vöru- og hópbifreiðum | 2024-2028 | Í framkvæmd |
| S.5.C.4 | Stigvaxandi krafa um hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum á landi | 2027-2030 | Fyrirhuguð |
| S.5.C.9 | Rafbílavæðing ökutækjaleiga | 2027-2030 | Fyrirhuguð
|
| Fjárfestingar í grænum landbúnaði | |||
Loftslags- og orkusjóður úthlutaði 80 m.kr. til 42 verkefna í mars 2026 til að innleiða nýja áburðartækni í landbúnaði. Markmiðið er að bæta nýtingu og auka nákvæmni við dreifingu áburðar. Áætlaður samanlagður samdráttur vegna verkefnanna nemur 1.007 tonnum CO₂-íg. á ári. Það er eins og árslosun um 500 fólksbíla sem knúnir eru af jarðefnaeldsneyti. Tvær nýjar aðgerðir eru lagðar til undir forgangsverkefninu sem snúa að frekari styrkveitingum úr Loftslags- og orkusjóði. Annars vegar er um að ræða styrki til bænda vegna fjárfestinga í búnaði og/eða vegna verkefna sem stuðla að loftslagsvænni nálgun í landbúnaði og hins vegar styrki til garðyrkjubænda í útirækt sem notast við kæligeymslur til að skipta út kælimiðlum með háan hlýnunarmátt. | |||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða |
| S.4.A.4 | Stuðningur til bænda úr Loftslags- og orkusjóði | 2026-2027 | Í innleiðingu |
| S.3.A.9 | Útskipti kælimiðla í kæligeymslum grænmetisbænda | 2026-2027 | Í innleiðingu |
| Endurheimt votlendis og vistkerfa | |||
Lögð er áhersla á endurheimt votlendis og annarra vistkerfa til að ná landsákvörðuðu markmiði um 400-500 þúsund tonna samdrátt í losun frá landi árið 2035. Endurheimt votlendis og vistkerfa dregur úr losun frá landi og stuðlar jafnframt að aukinni kolefnisbindingu, bættri vatnsmiðlun, aukinni seiglu gagnvart náttúruvá og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Endurheimt votlendis og birkiskóga á jörðum í eigu ríkisins er hafin. Aðgerð um endurheimt þurrlendisvistkerfa (uppgræðsla og landgræðsla) hefur verið færð úr aðgerðaætlun í loftslagsmálum undir landgræðsluaðgerðir Lands og skógar á ríkisjörðum í þeirra umsjón, sem og undir landgræðsluaðgerðir gegnum stuðningskerfi ríkisins fyrir einkalönd. | |||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða |
| L.1.B.1 | Endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisins | 2025-2027 | Í framkvæmd |
| L.1.C.1 | Endurheimt birkiskóga á jörðum í eigu ríkisins | 2025-2027 | Í framkvæmd |
1.2 Forgangsverkefni aðlögunaráætlunar
Aðlögunaráætlun vegna áhrifa loftslagsbreytinga kom í fyrsta sinn út í desember 2025 og er áhersla lögð á vöktun, viðbrögð og mat á áhrifum loftslagsbreytinga á íslenska náttúru, samfélag og innviði til að ná utan um afleiðingar loftslagsbreytinga. Markmiðið er að draga úr loftslagstengdri áhættu til lengri og skemmri tíma með því að auka seiglu samfélags og vistkerfa.
Þessi fyrsta útgáfa tekur til tímabilsins 2026-2030 og eru sex verkefni sett í sérstakan forgang. Forgangsverkefni aðlögunaráætlunar og staða þeirra er sýnd í töflu 2, en einnig er fjallað um aðgerðirnar í kafla 5 um aðlögunaráætlun vegna áhrifa loftslagsbreytinga.
Tafla 2: Forgangsverkefni aðgerðaáætlunar vegna áhrifa loftslagsbreytinga og staða þeirra í september 2026.
| A. Umhverfi: Náttúra, líffræðileg fjölbreytni og landnotkun | ||||
| A.1 Vöktun íslenskrar náttúru m.t.t. áhrifa loftslagsbreytinga | ||||
| Yfirsýn yfir lykilþætti íslenskrar náttúru m.t.t. áhrifa loftslagsbreytinga | ||||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða | |
| A.1.1 | Vöktun og mat á áhrifum loftslagsbreytinga á íslenska náttúru | 2026-2032 | Í framkvæmd | |
| A.1.2 | Grunnkortlagning tegunda, vistgerða, jarðvegs, jarðgrunns og berggrunns | 2026-2032 | Í framkvæmd | |
| A.3 Viðbrögð við breytingum á náttúrufari Íslands | ||||
| Viðbrögð við breytingum á náttúrufari Íslands. | ||||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða | |
| A.3.1 | Efling áherslu á náttúrumiðaðar lausnir til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga | 2027-2030 | Í útfærslu | |
| B. Velsæld: Velferð, lýðheilsa og samfélagslegur viðnámsþróttur | ||||
| B.3 Gerð viðkvæmni- og áhættumats fyrir íslenskt samfélag | ||||
| Viðbrögð við breytingum á náttúrufari Íslands. | ||||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða | |
| B.3.1 | Samræmt verklag við gerð viðkvæmni- og áhættumats | 2025-2026 | Í framkvæmd | |
| B.3.2 | Viðkvæmni- og áhættumat í landbúnaði | 2025-2026 | Í framkvæmd | |
| B.3.3 | Viðkvæmni- og áhættumat í sjávarútvegi | 2025-2026 | Í framkvæmd | |
| B.3.6 | Greining á kerfislægri áhættu | 2026-2030 | Í útfærslu | |
| C. Innviðir: Öryggi, almannavarnir og innviðir | ||||
| C.1 Aðlögun samgönguinnviða að áhrifum loftslagsbreytinga | ||||
| Langtímastefnumörkun um uppbyggingu innviða. | ||||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða | |
| C.1.1 | Auka seiglu og viðnámsþrótt vegakerfisins m.t.t. loftslagsbreytinga | 2025-2029 | Í framkvæmd | |
| C.1.2 | Draga úr tjónnæmi hafna og strandsvæða vegna loftslagsbreytinga | 2025-2029 | Í framkvæmd | |
| C.1.3 | Verklag og gátlistar fyrir hönnun samgöngumannvirkja m.t.t. loftslagsbreytinga | 2025-2029 | Í framkvæmd | |
| C.1.4 | Endurskoðun viðhalds og þjónustu vegakerfisins m.t.t. loftslagsáhrifa | 2026-2029 | Í framkvæmd | |
| D. Þverlæg verkefni: Stefnumótun, hæfni, rannsóknir og miðlun | ||||
| D.1 Efld loftslagsþjónusta | ||||
| Að efla getu stjórnvalda, stofnana, háskóla og sveitarfélaga til að taka upplýstar ákvarðanir og innleiða aðlögunaraðgerðir með markvissum hætti. | ||||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða | |
| D.1.4 | Aukin áhersla á miðlun og samstarf | 2026-2029 | Í útfærslu | |
| D.2 Aukin geta sveitarstjórnarstigsins til aðlögunar að loftslagsbreytingum | ||||
| Að efla getu sveitarfélaga til þess að takast á við loftslagsbreytingar með leiðbeiningum, verkfærum, fræðslu og þátttöku íbúa. | ||||
| Aðgerð | Heiti | Upphaf/endir | Staða | |
| D.2.1 | Útvíkkuð verkfærakista loftslagsvænni sveitarfélaga | 2026-2030 | Í framkvæmd | |