Stefnur og áherslur
Unnið er samkvæmt aðgerðaáætlun í þágu frumkvöðla og sprotafyrirtækja sem miðar að því að starfsumhverfi fyrir frumkvöðla, sprotafyrirtæki og nýsköpunarstarf á Íslandi standist allan alþjóðlegan samanburð. Markmiðið er að Ísland verði uppspretta öflugra sprota- og nýsköpunarfyrirtækja þar sem hagnýting þekkingar og tækni stuðlar að aukinni verðmætasköpun og fjölbreyttum störfum í íslensku atvinnulífi.
Aðgerðirnar sem mælt er fyrir um í áætluninni eru markvissar og skýrt afmarkaðar hvað varðar ábyrgð og tíma og þeim er ætlað að:
- bæta aðgengi frumkvöðla og sprotafyrirtækja að fjármagni
- einfalda regluverk fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki
- bæta starfsumhverfi og opinbera þjónustu til stuðnings við frumkvöðlastarf og nýsköpun
- efla alþjóðlegt samstarf á sviði frumkvöðlastarfs og nýsköpunar
- efla greiningar og rannsóknir á frumkvöðla- og nýsköpunarstarfi
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Aðgerðaáætlun
Nýsköpun
Síðast uppfært: 28.4.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.